Forstjóri HSS segir ráðherra hafa beitt sig þrýstingi og vill að umboðsmaður Alþingis skoði framgönguna

Markús Ingólfur Eiríks­son for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja segir frá óeðli­legum þrýst­ingi og óvið­un­andi fram­komu Willums Þór Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra og ráðu­neyt­is­stjóra heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins í sinn garð í yfir­lýs­ingu á vef HSS í dag. Hann hyggst fá umboðs­mann Alþingis til að skoða þessi sam­skipti og ágrein­ings­mál um fjár­veit­ingar til stofn­un­ar­innar, sem hafa ekki haldið í við fjölgun íbúa á Suð­ur­nesjum.

Forstjóri HSS segir ráðherra hafa beitt sig þrýstingi og vill að umboðsmaður Alþingis skoði framgönguna
For­stjóri og ráð­herra Markús Ingólfur Eiríks­son for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja og Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra.

Markús Ingólfur Eiríks­son, for­stjóri Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja (HSS), seg­ist hafa verið „beittur óeðli­legum þrýst­ingi og orðið fyrir óvið­un­andi fram­komu“ af hálfu Willums Þór Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra, með þátt­töku ráðu­neyt­is­stjóra heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, er hann hafi reynt að fá aukin fjár­fram­lög til stofn­un­ar­innar.

Frá þessu segir for­stjór­inn í yfir­lýs­ingu á vef HSS og dregur fram að hann telji fram­göng­una ekki í sam­ræmi við góða stjórn­sýslu né siða­reglur ráð­herra.

Markús seg­ist hafa óskað eftir því að umboðs­maður Alþingis taki sam­skiptin við ráð­herra og ráðu­neyt­is­stjóra til skoð­unar, auk þess sem hann hefur óskað eftir áliti umboðs­manns á þeim ágrein­ings­málum sem eru uppi varð­andi fjár­mögnun heil­brigð­is­þjón­ustu á Suð­ur­nesjum. Hann segir veru­lega hafa skort á efn­is­leg svör frá ráðu­neyt­inu við erindum HSS um stöðu mála.

Fjárveitingar langt frá því að halda í við fjölgun íbúa

Í yfir­lýs­ingu Markúsar segir að allt frá árinu 2019, er hann tók við sem heil­brigð­is­ráð­herra, hafi hann beitt sér fyrir því að bæta þjón­ustu við íbúa Suð­ur­nesja og í því hafi m.a. falist að „berj­ast gegn því rang­læti sem íbú­arnir hafa þurft að þola af hálfu stjórn­valda, sér­stak­lega hvað varðar það að fjár­veit­ingar til heil­brigð­is­þjón­ustu á svæð­inu hafa ekki tekið mið af fjölgun íbúa og þró­unar rekstr­ar­kostn­aðar.“

Hann bendir á að skýrsla sem Deloitte vann fyrir HSS, og upp­færð var í síð­asta mán­uði með nýj­ustu upp­lýs­ingum, sýni fram á að fjár­fram­lög til heil­brigð­is­þjón­ustu á hvern íbúa á Suð­ur­nesjum hafi dreg­ist saman um 27 pró­sent fyrir stofn­un­ina í heild og þar af um 50 pró­sent á sjúkra­sviði, frá árinu 2008.

„Staðan hefur því hríð­versnað milli ára, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir af minni hálfu til að fá heil­brigð­is­ráðu­neytið og ráð­herra til að leið­rétta það stóra gat sem aðgerð­ar­leysi stjórn­valda um ára­bil hefur leitt af sér, gat sem núver­andi ráð­herra ber ekki einn ábyrgð á að mynd­að­ist,“ segir for­stjór­inn í yfir­lýs­ing­unni.

Verulegur ágreiningur

Hann segir að í fyrra hafi verið ljóst að það stefndi í óefni, en heil­brigð­is­ráðu­neytið hefði ekki brugð­ist við með full­nægj­andi hætti. Auka­fjár­veit­ingar hefðu feng­ist, sem ekki hefðu dugað til enda væri grunn­vandi stofn­un­ar­innar enn óleystur.

„Eftir birt­ingu upp­færðu skýrslu Deloitte í síð­ustu viku, fékk ég form­legt bréf frá ráðu­neyt­inu um að miðað við umfang starf­semi slysa- og bráða­mót­töku HSS væri sú deild van­fjár­mögnuð og ráðu­neytið hygð­ist beita sér fyrir að fjár­veit­ingar til hennar yrðu hækk­aðar um 300 m.kr. í fjár­lögum næsta árs. Með þeirri ákvörðun ráðu­neyt­is­ins felst ákveðin við­ur­kenn­ing á að minn mál­flutn­ingur sé sam­kvæmur sann­leik­anum. Hún dugar þó ekki til að leysa vand­ann nema að hluta,“ skrifar Markús í yfir­lýs­ingu sinni.

For­stjór­inn segir segir þar jafn­framt að ágrein­ing­ur­inn á milli hans og heil­brigð­is­ráð­herra um skyldur stjórn­valda um fjár­mögnun þjón­ustu við íbúa Suð­ur­nesja sé veru­legur.

„Ég hef því tekið ákvörðun um að óska eftir áliti Umboðs­manns Alþingis á þeim ágrein­ings­málum enda hefur veru­lega skort á efn­is­legum svörum af hálfu ráðu­neyt­is­ins við erindum mínum og nið­ur­stöðum skýrslna Deloitte. Þá hef ég einnig ákveðið að óska eftir að Umboðs­maður Alþingis taki afstöðu til fram­göngu ráð­herra, með þátt­töku ráðu­neyt­is­stjóra heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, gagn­vart mér þegar ég sinnti starfs­skyldum mínum sem fel­ast í að upp­lýsa um óþægi­legar stað­reyndir eða gagn­rýna stjórn­völd. Sú fram­ganga er að mínu mati hvorki í sam­ræmi við góða stjórn­sýslu né siða­reglur ráð­herra þar sem ég hef verið beittur óeðli­legum þrýst­ingi og orðið fyrir óvið­un­andi fram­komu,“ segir í yfir­lýs­ingu Markúsar.

Markús hefur verið for­stjóri HSS frá árinu 2019, en starf­aði þar áður hjá Rík­is­end­ur­skoðun, sem sér­fræð­ingur á stjórn­sýslu­sviði.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár