Hafa hætt að taka lyfin sín vegna bannsins

Dæmi eru um að starfs­fólk íslenskra flug­á­hafna hafi ákveðið að hætta í lyfja­með­ferð við ADHD vegna evr­ópskrar reglu­gerðar sem bannar inn­töku slíkra lyfja hjá starf­andi flug­á­höfnum. Flug­freyjur hafa að und­an­förnu sætt handa­hófs­kenndum skimunum.

Hafa hætt að taka lyfin sín vegna bannsins
Leifs­stöð Starfs­fólk flug­á­hafna getur átt von á því að lenda í handa­hófs­kenndum skimunum fyrir geð­lyfjum og vímu­efnum bæði hér á landi og erlendis. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Icelandair til­kynnti flug­á­höfnum sínum í maí að notkun ADHD-lyfja væri með öllu óheimil vegna inn­leið­ingar evr­ópskrar reglu­gerðar sem tók gildi hér­lendis árið 2021. Hún kveður meðal ann­ars um skimun fyrir geð­virkum efnum en þau hafa lengi verið bönnuð í flug­tengdum störfum. 

Eftir að til­kynn­ingin var send út bár­ust ADHD-sam­tök­unum fjöl­margar fyr­ir­spurnir frá starfs­fólki flug­fé­lags­ins.

FormaðurVil­hjálmur Hjálm­ars­son, for­maður ADHD sam­tak­anna.

„Það var fullt af áhafn­ar­fólki sem var í öngum sínum,” segir Vil­hjálmur Hjálm­ars­son, for­maður sam­tak­anna. „Það bara hætti að taka þessi lyf.“

Eyrún Björk Jóhanns­dóttir, vara­for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands, segir að félag­inu hafi borist fyr­ir­spurnir um stöð­una frá fólki sem hafði áhyggjur af því að missa vinn­una vegna ADHD lyfja­notk­unar.

„Við sinnum okkar félags­mönnum ef þeir leita til okkar og stöndum með þeim og hjálpum þeim,“ segir Eyrún Björk. 

Hún segir jafn­framt að málið sé vand­með­farið enda sé þarna um að ræða Evr­ópu­reglu­gerð sem evr­ópskum flug­fé­lögum beri að fylgja. „Það er ekki hægt að ganga fram hjá þessu.“ 

Ekki vitað til þess að fólki hafi verið sagt upp

Í svari Icelandair við skrif­legri fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar segir að starfs­fólk geti búist við handa­hófs­kenndum skimunum en einnig er ski­mað við upp­haf starfs og í lækn­is­skoð­unum. Reglu­gerðin sem um ræðir á við um allt starfs­fólk flug­á­hafna en aðrar flug­stéttir falla einnig undir hana m.a. flug­virkjar, flug­um­sjón­ar­menn, flug­um­ferð­ar­stjórar, hlað­fólk og fólk sem starfar við ræst­ingar flug­vél­anna. 

Vara­for­maðurEyrún Björk Jóhanns­dóttir, vara­for­maður Flug­freyju­fé­lags Íslands.

Hvorki Vil­hjálmur né Eyrún kann­ast við það að fólki hafi verið sagt upp störfum eða það ákveðið að segja upp vegna ADHD-lyfja­notk­unar. Í svari Icelandair segir að félagið ræði ekki heil­brigð­is­upp­lýs­ingar starfs­fólks og geti það því ekki svarað því hvort ein­hverjir hafi þurft að hætta störfum vegna notk­unar ADHD-lyfja. 

„Almennt er stefna félags­ins að vinna með starfs­fólki að far­sælli lausn ef upp koma mál er varða heilsu þeirra,“ segir í svar­inu.

Vil­hjálmur segir til skoð­unar að ADHD sam­tökin beiti sér fyrir breyt­ingum á reglu­gerð­inni. Það taki samt sem áður sinn tíma. 

„Þarna eigum við bara að sýna for­dæmi, vekja athygli á þessu í Evrópu og breyta þessu,“ segir Vil­hjálmur.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár