Verkefnastjóri deildi óvart persónulegu spjalli: „Kæfði þetta“

For­eldrar leik­skóla­barna í Laug­ar­dal eru óánægðir vegna spjalls tveggja verk­efna­stjóra hjá Reykja­vík­ur­borg um fyr­ir­spurn um stöðu á leik­skóla­málum í hverf­inu.

Verkefnastjóri deildi óvart persónulegu spjalli: „Kæfði þetta“
Leik­skóli Ráðið var að ræða biðlista fyrir leik­skóla hverf­is­ins. Mynd: Unsplash

Eiríkur Búi Hall­dórs­son, verk­efna­stjóri verk­efn­is­ins Hverfið mitt hjá borg­inni, deildi sínum per­sónu­lega skjá í upp­töku af fundi íbúa­ráðs Laug­ar­dals, sem aðgengi­leg er á YouTube. Þar sést spjall þeirra Guðnýjar Báru Jóns­dóttur, verk­efna­stjóra hjá mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu borg­ar­innar, á sam­skipta­for­rit­inu Messen­ger.

Íbúa­ráðið hafði í lok apríl óskað eftir því við skóla- og frí­stunda­svið að teknar yrðu saman tölur um fjölda barna í leik­skólum hverfa, og biðlistum, eftir búsetu þeirra.

SpjallaðÚr spjalli verk­efna­stjór­anna.

Ráðinu þótti svarið við fyr­ir­spurn­inni ekki alveg full­nægj­andi. Í það vant­aði upp­lýs­ingar um biðlistana.

„Svo að það sé á hreinu þá er svarið bara lagt fram við fyr­ir­spurn­inni,“ sagði Guðný við Eirík. „Það er ekki á verk­sviði ráðs­ins að afla þess­ara upp­lýs­inga.“

Eiríkur svar­aði: „Leyfi þeim að ræða þetta fram og til baka - redd­ast von­andi. Geta í mesta lagi bókað.“

„Já, vertu bara harður við þau,“ sagði Guðný. „Það er alltaf þannig að svar við fyr­ir­spurn er bara lagt fram og ekk­ert fram­hald af því.“

Eiríkur sagði Guðnýju í fram­hald­inu að Þor­leifur Örn Gunn­ars­son, full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar á fund­inum, hefði svarað ráð­inu. 

„Kæfði þetta,“ sagði Eiríkur svo. 

Í Facebook-hópnum Leik­skóla­mál í lama­sessi er athygli vakin á þessum sam­skiptum Eiríks og Guðnýjar. Þar hafa fjöl­margir for­eldrar stigið fram og lýst óánægju sinni.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár