Már vill láta birta fundargerðir stýrinefndar um losun hafta

„Mig lang­aði alltaf að birta miklu meira en hægt var að birta,“ segir fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri. Hann telur að opin­ber birt­ing fund­ar­gerða stýrinefndar um losun hafta muni „þurfa að stroka yfir sumt sem sagt hefur verið. Það myndi líka styðja mínar frá­sagnir af þessu.“

Már vill láta birta fundargerðir stýrinefndar um losun hafta
Seðla­banka­stjóri Már sat í emb­ætti frá ágúst­mán­uði 2009 og fram á síð­sumar 2019, eða í ára­tug. Mynd: Hari

Sumar þeirra aðferða sem Seðla­bank­inn, þá undir stjórn  Más Guð­munds­sonar, beitti til að takast á við greiðslu­jöfn­un­ar­vand­ann sem skap­að­ist við banka­hrunið, og eft­ir­köst þess, voru afar umdeildar. Seðla­bank­inn hefur ekki viljað afhenda upp­lýs­ingar um þær með vísun til trún­aðar. Á meðal verk­efna sem þetta á við eru fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, Eigna­safn Seðla­banka Íslands (ESÍ) og stöð­ug­leika­samn­ing­arnir svoköll­uðu, sem gerðir voru þegar íslensk stjórn­völd náðu sam­komu­lagi við kröfu­hafa föllnu bank­anna um hvernig ætti að skipta á milli sín eft­ir­stand­andi eignum þeirra. Fjöl­miðlar sem óskað hafa upp­lýs­inga um hverjir nýttu sér fjár­fest­ing­ar­leið­ina, sem inni­hélt virð­is­aukn­ingu á þann gjald­eyri sem skipt var í krónur; upp­lýs­inga um þær eignir sem seldar voru úr ESÍ; og eftir því að fá að sjá hvað var í stöð­ug­leika­samn­ing­unum, hafa lent á þagn­ar­vegg.

Það sem laut að stefnu­mótun varð­andi losun fjár­magns­hafta var á for­ræði svo­kall­aðrar stýrinefndar um losun fjár­magns­hafta. Már segir í ítar­legu við­tali við 40 ára afmæl­is­rit Vís­bend­ingar að hann hafi und­an­farið verið að tala fyrir því að fund­ar­gerðir stýrinefnd­ar­innar verði birtar opin­ber­lega í eins miklum mæli og mögu­legt er. „Mig lang­aði alltaf að birta miklu meira en hægt var að birta. En ég hlýddi lög­fræð­ing­unum í Seðla­bank­anum varð­andi það. Það má ekki ganga í ber­högg við lögin og birta eitt­hvað sem lýtur að mál­efnum ein­stakra per­sóna eða fyr­ir­tækja. Þar er lína sem lög­gjaf­inn hefur fyr­ir­skipað að sé til. Við viljum vita allt, það er fullt af hlutum sem mig langar að vita um sem ég fæ ekk­ert að vita um, ég verð bara að sætta mig við það. 

Það ætti hins vegar að vera auð­veld­ara að birta a.m.k. hluta efnis og fund­ar­gerða stýrinefnd­ar­innar. Þar er að stórum hluta til verið að fjalla um almenna stefnu­mótun en ekki mál ein­stakra aðila sem lúta banka­leynd.“

Mun þurfa að stroka yfir ýmislegt

Már segir í við­tal­inu að hann ætli sér að síðar meir að skrifa um þessi mál. „Eitt af því sem kom opin­ber­lega fram undir lok míns tíma­bils var að banka­ráð Seðla­banka Íslands hafði áhuga á því eftir að það var búið að losa höft að það yrði tekin saman skýrsla um fram­kvæmd­ina. Ég var sam­mála því. Á þessu tíma­bili sem verið var að taka ákvarð­anir um þessi skref var starf­andi stýrinefnd um losun hafta, sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra stýrði, og ég ásamt öðru af mínu fólki og fólki úr ráðu­neytum sátum í. Það var á þessum stað sem ákvarð­anir um end­an­legar til­lögur, sem fóru svo sumar yfir á rík­is­stjórn­ar­borðið, voru teknar form­lega. Ég er þeirrar skoð­unar að það þurfi að fara yfir allt efni þess­arar nefndar og birta allt sem hægt er að birta. Þá held ég nú að það verði að stroka yfir sumt sem sagt hefur verið. Það myndi líka styðja mínar frá­sagnir af þessu.

Þetta er auð­vitað mjög marg­þætt saga. Sumt var opin­bert, til dæmis það hvernig var tekið á aflandskrón­unum og það ferli allt saman. En stefnu­mót­unin, aðdrag­and­inn að því sem var gert 2015 varð­andi slita­búin, hann er miklu minna þekktur. Það voru að vísu á þessu tíma­bili að leka alls­konar hlutir út í blöðin. Og ég man að við Bjarni vorum báðir mjög óánægðir með það. Eftir á að hyggja voru kannski ein­hverjir í ferl­inu að tala fyrir ákveð­inni leið sem þeir vildu fara. Sem að lokum var ekk­ert farin.“

Áskrif­endur Vís­bend­ingar geta lesið við­talið við Má í heild sinni í 40 ára afmæl­is­rit­inu, eða á glæ­nýrri heima­síðu rits­ins. Slóðin á hana er www.visbending.is.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár