Mistök sem mögnuðust síðan upp vegna óheppni

Már Guð­munds­son segir að mis­tökin sem stórir seðla­bankar í heim­inum gerðu í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, og sá íslenski að ein­hverju leyti líka, var að nota í of miklum mæli tæki sem örva fyrst og fremst almenna eft­ir­spurn. Það hafði mikil áhrif á eigna­verð til hækk­unar. „Það hefði kannski átt að fara mýkra í þetta“.

Mistök sem mögnuðust síðan upp vegna óheppni
Ekki hægt að ýta á takka Skaði á fólki og fram­leiðslu­tækjum í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum gerðu það að verkum að það var „ekki bara hægt að ýta á takka og allt færi gang á sama stað og áður, heldur væri allt komið á lægra stig fram­leiðslu­getu,“ segir Már Guð­munds­son. Mynd: Hari

Síðustu ár hafa markast af röð efna­hags­legra áfalla, og við­bragða við þeim. Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri, segir í ítar­legu við­tali við 40 ára afmæl­is­rit Vís­bend­ingar að fyrsta spurn­ingin sem menn verði að spyrja sig þegar þeir meta við­brögð við efna­hags­legu áfalli sé hvert áfallið sé. „Er það eft­ir­spurnar­á­fall og er það tíma­bundið? Ef svo er þá er for­múlan nokkuð ljós. Við kunnum þau við­brögð vel. Þá er slakað tíma­bundið á í pen­inga­málum og rík­is­fjár­málum og svo hert á um leið og slak­inn hverfur og hag­kerfið fer að nálg­ast fulla atvinnu. Ef áfallið er á fram­boðs­hlið­inni þá er þetta flókn­ara. Ef það er tíma­bundið þá get­urðu mildað áhrifin með til dæmis skuld­setn­ingu og þarft ekki að fara í var­an­lega aðlögun. Síðan er við­fangs­efnið alltaf, hvert sem áfallið er, að passa upp á að fjár­mála­kerfið fari ekki að hökta. Ef það ger­ist kemur til kasta seðla­banka, sem eru lán­veit­enda til þrauta­vara.“

Seðla­bankar heims­ins hafi sýnt það í fjár­málakrepp­unni 2007- 2009, og aftur í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum að þeir hafa mikla getu til að standa undir því hlut­verki. Ef því 

hefði ekki verið beitt af fullum þunga í þeirri kreppu eru margir á þeirri skoðun að kerfið hefði ein­fald­lega hrunið. 

Ekki hægt að ýta á takka til að setja allt í gang aftur

Í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum var grein­ingin á eðli áfalls­ins hins vegar ekki ein­föld, að mati Más. „Sam­lík­ing Ben Bernanke [þáver­andi seðla­banka­stjóra Banda­ríkj­anna], þar sem hann líkti ástand­inu við snjóstorm þar sem allir þurfa að vera heima, lands­fram­leiðslan dettur niður úr öllu valdi, það var eng­inn að fara út í búð og allt var stopp, var kannski 60 til 70 pró­sent rétt. Í slíku ástandi er bara beðið eftir því að storm­ur­inn gangi niður og fólki sem lendir í vand­ræðum út af honum hjálpað. Auðvitað voru samt ákveðnar líkur á því að þetta væri ekki alveg þannig. Far­ald­ur­inn sýndi það að hann hafði til­hneig­ingu að koma í bylgjum og gæti dreg­ist á lang­inn. Það gæti leitt til þess að það yrði skaði á fólki og fram­leiðslu­tækjum sem gerðu það að verkum að það væri ekki bara hægt að ýta á takka og allt færi gang á sama stað og áður, heldur væri allt komið á lægra stig fram­leiðslu­getu. Þessu þurfti að bregð­ast við.“

Síðar hafi reyndar komið í ljós að kór­ónu­veiru­kreppan var að hluta V-laga, jafnt á Íslandi sem og ann­ars­staðar. Fólk hafi ein­fald­lega lært að halda athafna­sem­inni uppi með alls­konar aðgerðum þrátt fyrir nýjar bylgjur af smitum.

„Það hefði kannski átt að fara mýkra í þetta“

Már segir að það sem hafi verið rétti­lega gert hér­lendis á far­ald­urs­tímum var að stöðva streymi ferða­manna til lands­ins, sem voru reyndar hvort eð er ekki að koma, og ná með því upp inn­lendri eft­ir­spurn. Til skamms tíma skil­aði það betri nið­ur­stöðu fyrir heild­ar­eft­ir­spurn í hag­kerf­inu og betra atvinnustigi. Til við­bótar kom svo að Íslend­ingar voru fyrir kór­ónu­krepp­una að eyða um 200 millj­örðum króna utan land­stein­anna á ári sem ekki var lengur mögu­legt meðan mest gekk á. Þeir fjár­munir fóru þá frekar í sparnað eða inn­lenda neyslu. 

Mistökin sem stórir seðla­bankar í heim­inum gerðu, og sá íslenski að ein­hverju leyti líka, var að nota í of miklum mæli tæki sem örva fyrst og fremst almenna eft­ir­spurn. Það hafði til dæmis mikil áhrif á eigna­verð til hækk­unar. „Það hefði kannski átt að fara mýkra í þetta. En þessi mis­tök voru að mörgu leyti skilj­an­leg og gerð mjög víða, sér­stak­lega í þró­uðu ríkj­unum sem höfðu miklu meiri getu til að koma með slíkan stuðn­ing, að slaka á aðhaldi og prenta pen­inga. Þessar aðgerðir sitja síðan eftir í kerf­inu, og eiga auð­vitað þátt í þess­ari auknu verð­bólgu sem fylgdi á eftir.“

Svo hafi það gerst í fram­hald­inu af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, og vegna stríðs­ins í Úkraínu, að aðstæður hafi farið að breyt­ast, meðal ann­ars með mik­illi hækkun á orku­verði. Aðstæður sem gerðu það mögu­legt að vera með mjög lága vexti sam­hliða lágri verð­bólgu á vörum og þjón­ustu, þær voru allt í einu ekki lengur fyrir hendi. „Það er einn af drif­kröft­unum á bak­við verð­bólg­una núna, ásamt því að pen­inga­stefnan var við þessar nýju aðstæður orðin allt of slök til að varð­veita verð­stöð­ug­leika.“

Stóru seðla­bank­arnir í heim­inum, sá evr­ópski og banda­ríski, hafi í kjöl­farið gert þau mis­tök að takast á við nýjan vanda líkt og hann væri líka tíma­bund­inn, eins og sá sem skap­að­ist í far­aldr­inum. „Þetta ástand hefur hins vegar reynst miklu var­an­legra og núna hefur skap­ast sú hætta, sem þegar hefur að ein­hverju leyti raun­gerst, að þetta fari að leka út í lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar. Þá er erf­ið­ara að koma verð­bólg­unni niður aftur.“

Óumflýjanlegt að gera mistök við hagstjórn

Már seg­ist vera sam­mála grein­ingu hag­fræð­ings­ins Milton Friedman um að við­var­andi verð­bólga sé alltaf á end­anum pen­inga­legt fyr­ir­bæri, sem þarf hins vegar ekki að þýða það að pen­inga­magn ráði för. „Með því að fylgja örvandi pen­inga­stefnu er hægt að búa til verð­bólgu. Þær aðstæður sem voru uppi fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, á þessu langa tíma­bili alþjóða­væð­ingar þar sem vinnu­afl var að flæða frjálst milli landa, þá var inn­lend fram­leiðslu­geta að miklu leyti tekin úr sam­bandi. Það skorti síður vinnu­afl. Annað hvort var vara pöntuð erlendis frá eða vinnu­aflið flutt inn. Síðan fer þetta kerfi allt að gliðna og við bæt­ast geopóli­tísk átök sem gera það að verkum að lönd fara að hugsa meira um þjóðar­ör­yggi og slíka hluti. Alþjóða­væð­ingin fer að ganga til baka og það ger­ist á sama tíma og búið er að gefa ansi mikið eftir í pen­inga­málum. Einhver not­aði það orða­til­tæki um þessa þróun að þetta hafi verið mis­tök sem mögn­uð­ust síðan upp vegna óheppni. Mistökin voru slaki í pen­inga­málum, sem hefði verið hægt að taka í burtu hraðar og minnka þannig verð­bólgu­kúf­inn. Óheppnin var síðan að þetta gerð­ist á sama tíma og for­sendur fyrir lág­verð­bólgu­skeiði um allan heim voru að breyt­ast.“

Hann segir þó rétt að taka fram að það verði alltaf gerð mis­tök við hag­stjórn. Það sé óum­flýj­an­legt þegar verið sé að vinna í raun­tíma og við­kom­andi veit ekki hvernig aðstæð­urnar, sem verið er að bregð­ast við, eru nákvæm­lega fyrr en kannski tveimur árum seinna þegar öll gögn liggja fyrir. „Þú ert að vinna við skil­yrði óvissu og það verða alltaf ein­hver mis­tök. Kost­ur­inn við pen­inga­stefnu að það eru fundir á nokk­urra mán­aða fresti, og ef þú gerir mis­tök á einum fundi þá er hægt að leið­rétta það á þeim næsta fundi eða þarnæsta.“

Að leiða hjá sér hlutina skynsamlega

Már bendir á að það sé til kenn­ing í hag­fræði sem hverf­ist um að leiða hlut­ina hjá sér skyn­sam­lega. Hún sé mik­il­væg þegar verið sé að ræða verð­bólgu­vænt­ingar. „Þegar við vorum búin að vera góðan tíma inni í þessu ástandi lágra vaxta og lágrar verð­bólgu þá fór fólk að hætta að veita ein­stökum verð­breyt­ingum athygli. Það gaf sér að þetta myndi bara sveifl­ast eitt­hvað til og frá án þess að valda of hárri verð­bólgu og það hefði margt betra við tím­ann að gera en að pæla í því. Þegar öll þessi áföll sem hafa raun­gerst á und­an­förnum árum fóru að ríða yfir, og það kemur verð­bólgu­skellur sem verður svo við­var­andi, þá fer fólk að skynja að ástandið er orðið breytt. Til dæmis á því að það er orð­inn til skortur á vinnu­afli, eins og er til að mynda í Bret­landi núna. Þá kemur þrýst­ingur á að laun hækki, sem keyrir enn upp verð­bólg­una.“

Hann telur að senni­lega séu allir nú búnir að gera sér grein fyrir því að þetta er ekki tíma­bundið ástand. Seðla­bankar heims­ins hafi enda tekið hressi­lega við sér og hækkað vexti skarpt. Staðan sé þó þannig víða að þótt búið sé að hækka nafn­vexti mikið þá eru raun­vextir enn nei­kvæðir. „Þá ertu ennþá á bens­ín­gjöf­inni, bara aðeins minna heldur en áður. En ég hef grun um að snún­ings­punkt­arnir séu að nálg­ast. Verð­bólgan í Banda­ríkj­unum er til að mynda byrjuð að lækka.“

Áskrif­endur Vís­bend­ingar geta lesið við­talið við Má í heild sinni í 40 ára afmæl­is­rit­inu, eða á glæ­nýrri heima­síðu rits­ins, vis­bend­ing.is.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár