Grimmilegir fordómar á íslenskum vinnumarkaði

Þær vinna of mikið, er neitað um fatnað í réttri stærð og upp­lifa að ekki sé hlustað á þær. Það eina sem þær eiga sam­eig­in­legt er að vera konur í yfir­þyngd.

Grimmilegir fordómar á íslenskum vinnumarkaði
Rannsókn „Ég vil að sam­fé­lagið með­taki það að fólk sem er í ofþyngd er ekki síðra en aðrir,“ segir Steinunn Helga Sig­urð­ar­dóttir. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ný rann­sókn Stein­unnar Helgu Sig­urð­ar­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ings varpar ljósi á skað­lega fram­komu gegn konum í yfir­þyngd á íslenskum vinnu­mark­aði. Fram­koman hefur leitt til þung­lyndis, kvíða og lágs sjálfs­mats. Steinunn kallar eftir því að lögum verði breytt svo að þau verndi fólk gegn for­dómum vegna holda­fars.

Krist­jana Mjöll Jóns­dóttir Hjörvar er ein af þeim konum sem mætt hafa for­dómum vegna holda­fars á vinnu­mark­aði. Hún létt­ist um tugi kílóa árið 2019 og sá í kjöl­farið skýrar hve miklum for­dómum hún hafði orðið fyrir á vinnu­mark­aði vegna þyngdar.

„Ég þarf að hafa miklu minna fyrir því núna að fólk trúi að ég hafi eitt­hvað að segja,“ segir Krist­jana, sem vó um 140 kíló áður en hún fór í maga­hjá­veitu­að­gerð, þá 39 ára gömul. „Fólk tekur meira mark á mér, hlustar betur og spyr mig frekar álits.“ 

Þetta rímar við reynslu kvenn­anna sjö sem Steinunn tók við­töl við. Stundum komu þær með …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár