Auður Anna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, segir að það sé kominn tími til að Íslendingar girði sig í brók þegar kemur að endurvinnslu hér á landi. Hún segir kerfið vera komið í ógöngur og að hætta verði að notast við einnota drykkjarumbúðir, en Íslendingar nota nokkur hundruð milljóna einnota drykkjarumbúða á ári hverju.
„Það er mjög gott að það komi fram hvað verður um þessar fernur. Það er náttúrlega ótækt að það sé verið að sannfæra fólk um eitthvað annað. Við erum komin í ógöngur með þetta eins og annað. Við lítum bara á endurvinnslu sem neyðarúrræði. Við eigum að nýta hlutina aftur og aftur og aftur. Þetta er kerfi sem við erum búin að reyna núna í 30 ár og þetta er flóknara og flóknara, erfiðara og erfiðara og ægileg leynd. Þetta virðist ekki ganga upp. Þannig að við verðum að hætta þessu einnota umbúða kerfi, þær eru bara ekki að virka. Við þurfum öðruvísi kerfi. Við þurfum að umbreyta kerfunum sem við erum með því þau eru ekki að virka.“
Auður segir að það þurfi að laga endurvinnslukerfið hér á landi og gera það almennilega.
„Það er kominn tími til að við girðum okkur í brók og tökum á þessu máli eins og öllum öðrum. Og þá verður að gera það almennilega, ekki með einhverjum svona plástrum eins og hefur verið. Þetta bara virkar ekki.“
Fá ekki sæti við borðið
Þá segir Auður að Landvernd hafi í töluverðan tíma reynt að fá áheyrnarfulltrúa í stjórn Úrvinnslusjóðs, en sjóðurinn hefur ekki orðið við þeirri beiðni. Neytendasamtökin hafa einnig beðið um áheyrnarfulltrúa hjá stjórn sjóðsins, en líka fengið neitun frá sjóðnum. Auður telur það gríðarlega mikilvægt að samtök eins og Landvernd séu við borðið þegar mikilvægar ákvarðanir eru ræddar eða teknar í umhverfismálum hér á landi.
„Það er náttúrlega gríðarlega mikilvægt en það er eins og í öðrum starfshópum að þetta virðist vera stefna hjá umhverfisráðuneytinu núna eins og þið hafið fjallað um hjá Heimildinni, að útiloka í raun þá sem vita eitthvað um málið. Að útiloka umhverfisverndarsamtök frá til dæmis starfshópunum sem eiga að fjalla um umhverfismál. Þannig að þetta er bara mjög slæmt. Svo er leitað til alþjóðlegra ráðgjafafyrirtækja sem að þekkja málin illa. Nýjasta málið hérna á Íslandi er það sem ég fjallaði um síðast, sem er skýrsla Boston Consulting Group um fiskeldið, þar sem er augljóst að þeir sem skrifa skýrsluna vita ekkert um málið. Þekkja bara peninga. Þannig að svona ákvarðanataka hjá þeim sem við höfum kosið til að taka ákvarðanir fyrir okkur og embættismenn sem eru ráðnir til þess, það er bara komið í hendurnar á ráðgjafarfyrirtækjum sem horfa bara á peninga,“ segir Auður Anna.
Athugasemdir (2)