„Við stóðum öll í þeirri trú að þetta væri fjáröflun fyrir krakkana“

Nemendur í grunn­skóla í Hafn­ar­firði settu upp leik­sýn­ingu í fjár­öfl­un­ar­skyni fyrir útskrift­ar­ferð sína. Skólinn ætl­aði að taka stóran hluta fjár­ins til að greiða fyrir kostnað vegna sýn­ing­ar­innar og láta nem­end­urna greiða 24.000 krónur úr eigin vasa fyrir ferð­ina.

„Við stóðum öll í þeirri trú að þetta væri fjáröflun fyrir krakkana“
Hafn­ar­fjörður Nemendur í grunn­skóla í Hafn­ar­firði settu upp leik­sýn­ingu til að safna fyrir útskrift­ar­ferð sinni. Mynd: Wikimedia Commons

Nemendur í tíunda bekk í grunn­skóla í Hafn­ar­firði héldu leik­sýn­ingu til að safna fyrir útskrift­ar­ferð sinni. For­eldrum og nem­endum brá í brún þegar skóla­yf­ir­völd ætl­uðu að nýta stóran hluta ágóð­ans í að greiða kostnað við að halda leik­sýn­ing­una. Inni í kostn­að­inum var leiga á tækja­bún­aði og kaup á nýjum glugga- og leik­tjöldum. 

„Kynnt sem fjáröflun“

Ákveðið hafði verið að nem­endur í 10. bekk grunn­skól­ans myndu fara í sér­staka útskrift­ar­ferð. Í henni fólst að gista tvær nætur í skála í Þórsmörk, fara í kajak­sigl­ingu, borða grill­mál­tíð og pizzaveislu. Áætlaður kostn­aður var 36.500 krónur á hvern nem­anda. 

Til að afla fjár vegna ferð­ar­innar, og lág­marka þannig útlagðan kostnað nem­enda, var þeim gert að sækja skyldu­á­fanga í svið­listum og í kjöl­farið settu nem­endur upp leik­sýn­ingu sem selt var inn á. 

„Það er ákveðið að setja upp söng­leik og þetta er kynnt sem fjár­öflun  skóla­ferða­lags fyrir for­eldrum og börnum,“ segir for­eldri nem­enda í 10. bekk í sam­tali við Heim­ild­ina. Bæði for­eldrar og nem­endur voru látin vita af því að ein­hver kostn­aður fylgdi því að setja upp söng­leik­inn og að hann yrði dreg­inn frá söfn­un­ar­fénu. 

Rétt eftir ára­mót byrj­aði und­ir­bún­ings­vinna og ung­ling­arnir lögðu sig mikið fram við gerð sýn­ing­ar­innar með hjálp kenn­ara og for­eldra. „Allt í kringum það var rosa­lega flott. Kenn­ar­inn sem sá um þetta gerði þetta vel, byggði krakk­ana vel upp og þetta var allt óskap­lega gleði­legt og skemmti­legt.“ 

Uppselt var á sýn­ing­una sem naut mik­illa vin­sælda og söfn­uð­ust yfir milljón króna í miða­sölu. Skólinn ætl­aði að nota þann pen­ing til að greiða fyrir kostnað vegna sýn­ing­ar­innar, þar með talið yfir­vinnu­laun kenn­ara  sam­kvæmt for­eldri sem Heim­ildin ræddi við. Foreldri segir það ekki hafa komið skýrt fram að borga ætti slíkt með fjár­öflun nem­enda.

„Krakkarnir virðast ekki vera að fá allt sem þau öfluðu“

„Svo kemur að því að gera upp fjár­öfl­un­ina. Þá kemur í ljós að krakk­arnir virð­ast ekki vera að fá allt sem þau öfl­uðu.“ Nemendur skól­ans fengu aðeins hálfa milljón króna og gátu þar með ein­göngu borgað fyrir rútu­ferð­ina í Þórsmörk. Þetta fannst þeim skrítið miðað við vel­gengni sýn­ing­ar­innar. Í kjöl­farið sendi skóla­stjórn póst á for­eldra með útlistun á því í hvað pen­ing­arnir voru not­aðir. 

Þá kemur í ljós að nem­endur fengu and­virði þess sem var selt í sjoppu leik­sýn­ing­ar­innar, sem var tæp­lega 400 þús­und krónur þegar búið var að draga frá kostnað. Auk þess söfn­uð­ust 125 þús­und í formi styrkja og fór sá pen­ingur beint til nem­enda. Það gera rúm­lega 500 þús­und krónur sem skipt­ast áttu á milli 44 nem­enda. Nemendur áttu því aðeins 12.500 krónur inni á mann eftir fjár­öfl­un­ina og áttu að greiða 24.000 krónur úr eigin vasa fyrir útskrift­ar­ferð­ina. 

Með þeim hund­ruðum þús­unda sem skól­inn tók til sín voru meðal ann­ars keyptar gard­ínur og leik­tjöld í sal­inn þar sem sýn­ingin fór fram. Skólinn hætti við að nota ágóð­ann til að borga kenn­urum yfir­vinnu­laun eftir spurn­ingar for­eldra. „Við stóðum öll í þeirri trú að þetta væri fjár­öflun fyrir krakk­ana. For­eldrar voru margir hverjir búin að leggja á sig fleiri klukku­tíma við að vinna við sviðs­mynd og sauma bún­inga þannig að þau voru ekki til­búin fyrir það að krakk­arnir fengju 12.500 krónur fyrir ferð­ina.“

Eftir fund með ósáttum for­eldrum var ákveðið að nem­endur fengju hluta ágóða miða­söl­unnar, eða rúm 400 þús­und, og þyrftu því að greiða 10.000 krónur á mann fyrir útskrift­ar­ferð­ina í stað 24.000 króna. Þetta gerði það að verkum að í heild­ina fengu nem­endur rúm­lega 900 þús­und krónur af öllu því fé sem safn­að­ist. Þeir for­eldrar sem þegar höfðu greitt hærri upp­hæð þurftu að láta skól­ann vita til að hægt yrði að fá end­ur­greitt. 

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár