„Af hverju geta þau ekki bara hist í Danmörku eða eitthvað?”

Heim­ildin náði tali af gang­andi veg­far­endum í miðbæ Reykja­víkur fyrir hádegi og spurði út í afstöðu þeirra til leið­toga­fundar Evr­ópu­ráðs sem hefst í Hörpu í dag.

Það er tóm­legt í miðbæ Reykja­víkur fyrir hádegi þriðju­dag­inn 16. maí, en eftir aðeins örfáar klukku­stundir munu leið­togar Evr­ópu­ráðs­ins ganga hver af öðrum inn í Hörpuna þar sem fundað verður um Úkraínu og stöðu lýð­ræðis. Túristar ganga ringl­aðir um göt­urnar og fáa Íslend­inga er að finna meðal þeirra. 

Fyrir utan stærstu hótel mið­bæj­ar­ins standa lög­reglu­þjónar í við­bragðs­stöðu og sjá má græn­klædda her­menn í vestum fylgj­ast með gang­andi veg­far­endum. 

„Ég er bara pínu að hlæja. Mér finnst þetta vera svo ýkt ein­hvern veg­inn. Svolítið mikið örygg­is­gæsla fyrir hvað sem gæti komið upp á Íslandi,“ sagði Julia Mai Linnéa Maria.  

Julia veltir fyrir sér hver kostn­að­ur­inn er við að kaupa vopn handa lög­gæslu­mönnum, þá sér­stak­lega byssur. Henni finnst „út í hött“ að verið sé að kaupa þær fyrir íslenska skatt­pen­inga. 

Julia Mai Linnéa MariaVeltir fyrir sér kostn­aði við byssur handa íslensku lög­regl­unni.

Fund­ur­inn kostar um tvo millj­arða. Þegar Julia átt­aði sig á því að það væru skatt­greið­endur sem greiða fund­ar­kostn­að­inn spurði hún: „Af hverju er mér þá ekki boðið?“. Julia telur að hægt hafi verið að eyða pen­ingnum í margt annað sem snertir mál­efni fólks hér inn­an­lands, til dæmis í að betrumbæta líf þeirra sem búa á Ásbrú á vegum Útlend­inga­stofn­unar. 

Kristinn Atlason sagði fátt fólk vera á kreiki en hann var í hjóla­túr þegar Heim­ildin náði tali af honum skammt frá Hörpu. Ólíklegt er að nið­ur­staða komi úr fund­inum sam­kvæmt Kristni: „Þetta er svo stór fundur, það kemur aldrei neitt út úr þeim". 

Betur hefði mátt fara með fjár­magnið sem þarf til að halda fund­inn að mati Kristins en hann nefnir heil­brigð­is­kerfið og kjör eldri borg­ara sem dæmi. 

Kristinn AtlasonTelur Ísland í góðri stöðu innan Evrópu.

Um stöðu lýð­ræðis segir Kristinn að ein­ræð­is­herrar séu orðnir sýni­legri. „Það eru ein­ræð­is­herrar farnir að sýna sig eins og í Tyrk­landi og Ung­verja­landi." Hann telur þessa þróun þó ekki ógna Íslendi og segir okkur í nokkuð góðri stöðu innan Evrópu. „Við höfum rödd og getum sagt okkar álit og erum frjálsir."

Ferða­kon­urnar og hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir Taron og Natalie eru fæddar í Norður-Karólínu í Banda­ríkj­unum.  Þær höfðu ekki hug­mynd um hvað ætti sér stað í Reykja­vík í dag. „Við sáum eitt­hvað í gær sem við settum spurn­ing­ar­merki við," sagði Natalie og Taron bætti við að þær hefðu séð ýmis skilti, lög­reglu­menn og fólk í jakka­fötum. 

Aðspurðar töldu Taron og Natalie sig ekki geta spurt leið­toga Evrópu að neinu sér­stöku heldur þyrfti fyrst að leysa vanda­mál innan Banda­ríkj­anna. „Ég held við getum ekki spurt að neinu, fyrst þurfum við að leysa úr þeim málum sem bíða okkar heima," sagði Natalie og bætti við: „Við erum báðar hjúkr­un­ar­fræð­ingar þannig að heil­brigð­is­kerfið er eitt af því stærsta." Taron sagði Banda­ríkja­menn einnig standa frammi fyrir vand­kvæðum vegna skot­vopna.  

Taron og NatalieVissu ekki hvað væri um að vera í Reykja­vík.

Stefán Örn Stef­áns­son hefur aldrei séð eins margar lög­reglur og finnst það vit­leysa að verið sé að halda fund­inn í Reykja­vík. Aðspurður hvers vegna sagði Stefán: „Af því að... af hverju geta þau ekki bara hist í Danmörku eða eitt­hvað? Ég veit það ekki. Hvað eru þau að þvæl­ast alla leið­ina hingað?"

Eins og áður kom fram kostar fund­ur­inn um það bil tvo millj­arða „sem er alveg út úr kort­inu fjár­hæð," sam­kvæmt Stefáni. 

„Það er hægt að nýta þetta í svo margt annað. Bara inn­viði hérna í þjóð­fé­lag­inu, bara algjör­lega. Í mál­efni sem skipta okkur meira máli en ein­hver svona skrípa­leikur. Og ég veit ekki einu sinni hver til­gang­ur­inn er með þessu, að ræða mál­efni Úkraínu… ég skil þetta bara ekki."

Stefán Örn Stef­áns­sonTelur að hægt hefði verið að nýta tvo millj­arða króna á annan hátt.

„Það er færra fólk, það er eins og það haldi sig í burtu frá mið­bænum," segir Lilja Sólrún Jóns­dóttir. Henni finnst ekki að fund­ur­inn ætti að vera hér. „Við erum bara alltof lítil þjóð til að taka á móti svona stóru lög­reglu­liði og fólki sem að er mik­il­vægt. Við höfum ekki mikið bol­magn til þess." 

Lilja Sólrún Jóns­dóttirAð hennar mati skilar fund­ur­inn engu.

„Hvað með allt fólkið hérna heima? Allt sem að þarf á aðstoð að halda. Af hverju ekki að eyða pen­ing­unum í það? Það finnst mér miklu mik­il­væg­ara heldur en að halda svona stóran fund. Hverju skilar fund­ur­inn?"

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár