Sagt að leita annað Ein­stæðri móður á fimm­tugs­aldri var sagt að leita til ann­ars sveit­ar­fé­lags þegar hún sótti fyrst um félags­lega íbúð á Sel­tjarn­ar­nesi fyrir sig og börnin sín tvö. Konan sést hér í íbúð sinni á Nesinu sem er í eigu sveit­ar­fé­lags­ins. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þau vildu bola mér burt“

Kona í félags­legri íbúð á Sel­tjarn­ar­nesi segir erfitt að kom­ast inn í félags­lega kerfið í bænum. Reynt var að láta hana sækja um íbúð í öðru sveit­ar­fé­lagi eða fara á almennan leigu­markað. Konan er þó afar ánægð með þjón­ustu sveit­ar­fé­lags­ins eftir að hún komst að. Hún mæti ekki for­dómum vegna stöðu sinnar.

Einstæð móðir á fimm­tugs­aldri, sem býr í félags­legri íbúð á Sel­tjarn­ar­nesi ásamt tveimur börnum, segir að þegar hún hafi fyrst sótt um slíka íbúð hjá sveit­ar­fé­lag­inu þá hafi henni verið bent á að leita annað. „Þegar ég fór fyrst í félags­þjón­ust­una var sagt við mig að þau ættu í mesta lagi 10 íbúðir og að 90 pró­sent af þeim væru öryrkjar. Ég fékk bara það við­mót: Leitaðu ann­ars staðar. Þú munt ekki fá neina íbúð hér, bær­inn er ekk­ert að kaupa neinar nýjar íbúðir. Þau vildu bara bola mér burt,“ segir konan, sem ekki vill láta nafns síns getið. 

Einn félags­ráð­gjafi sem hún leit­aði til hjá bænum sagði henni að nota frekar sparn­að­inn sinn til að leigja sér íbúð en að bíða eftir félags­legri íbúð hjá bænum. Konan lét sér hins vegar …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elítusamfélagið á Nesinu

Slagurinn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirninga
ViðtalElítusamfélagið á Nesinu

Slag­ur­inn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirn­inga

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi, segir að sveit­ar­fé­lagið sé í áður óþekktri krísu vegna þess að það á ekki lengur lóðir til að selja. Ekki náist sátt um það hvort bær­inn eigi að standa vörð um opin­bera þjón­ustu eða vera lág­skatta­sam­fé­lag með skerta þjón­ustu. Hann lýsir því hvernig minni­hluti hægri sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna hafi mikil völd og áhrif í bænum.
Ásgerður um baráttuna við háværa minnihlutann sem vill rukka 4500 í sund
ViðtalElítusamfélagið á Nesinu

Ásgerður um bar­átt­una við háværa minni­hlut­ann sem vill rukka 4500 í sund

Ásgerður Hall­dórs­dóttir, sem var bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi í 13 ár, segir ákveð­inn arm sjálf­stæð­is­manna á Sel­tjarn­ar­nesi hafa í gegnum tíð­ina beitt sér fyrir því að lág­marka kostn­að­ar­þátt­töku bæj­ar­fé­lags­ins í opin­berri þjón­ustu. Hún nefnir sem dæmi hug­myndir um að rukka bæj­ar­búa um kostn­að­ar­verð fyrir aðgang að sund­laug­inni og leik­skóla­pláss, sem væri um 310 þús­und á mán­uði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár