Bæj­ar­stjóri í 13 ár Ásgerður Hall­dórs­dóttir var bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­ness í 13 ár. Sel­tjarn­ar­nes er áhuga­vert sam­fé­lag meðal ann­ars fyrir þær sakir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur alltaf verið með hreinan meiri­hluta í bæj­ar­stjórn­inni þar og hefur mótað sam­fé­lagið eftir sínu höfði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ásgerður um baráttuna við háværa minnihlutann sem vill rukka 4500 í sund

Ásgerður Hall­dórs­dóttir, sem var bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi í 13 ár, segir ákveð­inn arm sjálf­stæð­is­manna á Sel­tjarn­ar­nesi hafa í gegnum tíð­ina beitt sér fyrir því að lág­marka kostn­að­ar­þátt­töku bæj­ar­fé­lags­ins í opin­berri þjón­ustu. Hún nefnir sem dæmi hug­myndir um að rukka bæj­ar­búa um kostn­að­ar­verð fyrir aðgang að sund­laug­inni og leik­skóla­pláss, sem væri um 310 þús­und á mán­uði.

Þegar Ásgerður Hall­dórs­dóttir úr Sjálf­stæð­is­flokknum var bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi frá 2009 til 2022 áttu sér ítrekað stað umræður um það hvort sveit­ar­fé­lagið ætti að hætta að nið­ur­greiða ýmsa opin­bera þjón­ustu. Meðal ann­ars var um að ræða starf­semi sund­laug­ar­innar og leik­skól­ans.

Blaða­maður tók við­tal við Ásgerði um fyr­ir­tækið Skólamat þegar hún var enn þá bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi árið 2021. Þá nefndi hún þetta atriði um nið­ur­skurð­ar­kröf­una í fram­hjá­hlaupi. Orð Ásgerðar sátu í blaða­manni og bað hann hana því um annað við­tal til að biðja hana að segja nánar frá því hvað hún ætti við. Ásgerður er einnig kjör­inn við­mæl­andi til að fá grein­ingu á Sel­tjarn­ar­nesi þar sem hún stýrði bæj­ar­fé­lag­inu í meira en ára­tug og hefur búið svo lengi þar. 

Ásgerður segir að á Sel­tjarn­ar­nesi sé „hávær minni­hluti“ …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Ólafsson skrifaði
    Athyglisvert viðtal við Ásgerði.
    3
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Hvað skyldu margir fara í sund ef það kostaði 4.500 krónur í hvert skipti?
    Mig grunar að þeir yrðu ekki fleiri en svo að tekjurnar myndu minnka verulega frá því sem nú er.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elítusamfélagið á Nesinu

Slagurinn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirninga
ViðtalElítusamfélagið á Nesinu

Slag­ur­inn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirn­inga

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi, segir að sveit­ar­fé­lagið sé í áður óþekktri krísu vegna þess að það á ekki lengur lóðir til að selja. Ekki náist sátt um það hvort bær­inn eigi að standa vörð um opin­bera þjón­ustu eða vera lág­skatta­sam­fé­lag með skerta þjón­ustu. Hann lýsir því hvernig minni­hluti hægri sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna hafi mikil völd og áhrif í bænum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár