GreiningHlutfallslega flestir á hátekjulistanum á Seltjarnarnesi Sá Seltirningur sem hafði hæstar tekjur árið 2021 þénaði 913,7 milljónir króna á því ári. Þorri tekna hans voru fjármagnstekjur.
8:56Spurt & svaraðÍbúar á Nesinu um samfélagið: „Fólkið hérna á pening og það sést“ Blaðamaður Heimildarinnar tók fólk tali á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi og spurði það spurninga um samfélagið. Í svörum fólksins kemur meðal annars fram að eitthvað sé um stéttaskiptingu í sveitarfélaginu og að það sé samfélag fólks sem á peninga.
Fréttir 1Sænska útgáfan af Seltjarnarnesi: Þar sem fátækt og þjáningar eiga ekki heima Í Stokkhólmi er að finna hverfi sem er þekkt fyrir ríkidæmi og menningu sem á að búa til leiðtoga. Þetta hverfi heitir Djursholm. Þar eru meðaltekjurnar hæstar, milljarðamæringarnir margir og lítill áhugi á að taka á móti flóttamönnum, fátæku fólki og félagslegum vandamálum.
ViðtalSlagurinn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirninga Guðmundur Ari Sigurjónsson, oddviti Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi, segir að sveitarfélagið sé í áður óþekktri krísu vegna þess að það á ekki lengur lóðir til að selja. Ekki náist sátt um það hvort bærinn eigi að standa vörð um opinbera þjónustu eða vera lágskattasamfélag með skerta þjónustu. Hann lýsir því hvernig minnihluti hægri sinnaðra sjálfstæðismanna hafi mikil völd og áhrif í bænum. 14 mín. lestur
GreiningMiklu færri útlendingar og takmörkuð þátttaka í félagslegri þjónustu Á Seltjarnarnesi eru sex félagslegar leiguíbúðir og sex íbúðir sem teljast til almenna íbúðakerfisins.
GreiningKjósa Sjálfstæðisflokkinn og greiða lægra útsvar Þeir sem hafa einungis fjármagnstekjur greiða ekki útsvar og taka þar af leiðandi ekki þátt í að borga fyrir ýmiss konar grunnþjónustu. Útsvarið er lægst á Seltjarnarnesi og í Garðabæ á höfuðborgarsvæðinu en skuldastaða sveitarfélaganna hefur verið að versna.
Viðtal 2Ásgerður um baráttuna við háværa minnihlutann sem vill rukka 4500 í sund Ásgerður Halldórsdóttir, sem var bæjarstjóri á Seltjarnarnesi í 13 ár, segir ákveðinn arm sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi hafa í gegnum tíðina beitt sér fyrir því að lágmarka kostnaðarþátttöku bæjarfélagsins í opinberri þjónustu. Hún nefnir sem dæmi hugmyndir um að rukka bæjarbúa um kostnaðarverð fyrir aðgang að sundlauginni og leikskólapláss, sem væri um 310 þúsund á mánuði. 10 mín. lestur
Fréttir„Þau vildu bola mér burt“ Kona í félagslegri íbúð á Seltjarnarnesi segir erfitt að komast inn í félagslega kerfið í bænum. Reynt var að láta hana sækja um íbúð í öðru sveitarfélagi eða fara á almennan leigumarkað. Konan er þó afar ánægð með þjónustu sveitarfélagsins eftir að hún komst að. Hún mæti ekki fordómum vegna stöðu sinnar.
Greining 1Rík elíta sem býr í einbýlishúsum, er með húshjálp og keyrir um á Teslu Elítur og valdakjarnar á Íslandi eru líklegri til að hreiðra um sig í tveimur sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu en öðrum búsetukjörnum landsins, á Seltjarnarnesi og í Garðabæ. Hagtölur sýna svart á hvítu að þar eru áherslur, stjórnmálaskoðanir og samsetning íbúa allt önnur en í nágrannasveitarfélögunum.
Áskrift hefur áhrif Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum. Áskrift styður tímafreka rannsóknarblaðamennsku. Ég vil fá áskrift Nei, takk Ertu nú þegar áskrifandi? Skráðu þig inn hér.