Rík elíta sem býr í einbýlishúsum, er með húshjálp og keyrir um á Teslu

Elítur og valda­kjarnar á Íslandi eru lík­legri til að hreiðra um sig í tveimur sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en öðrum búsetu­kjörnum lands­ins, á Sel­tjarn­ar­nesi og í Garðabæ. Hagtölur sýna svart á hvítu að þar eru áherslur, stjórn­mála­skoð­anir og sam­setn­ing íbúa allt önnur en í nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum.

Ísland er lítið land. Hér búa um 391 þús­und manns, sem er svip­aður fjöldi og býr í rúm­ensku borg­inni Iasi eða pólsku borg­inni Szczecin. Þrátt fyrir smæð­ina hefur stétta­skipt­ing auk­ist hratt hér­lendis á ekk­ert svo löngum tíma. Þröngur hópur efsta lags­ins hefur tekið til sín mun stærri hluta af verð­mæta­sköp­un­inni en allir hinir. 

Þetta er einn hluta umfjöll­unar Heim­ild­ar­innar um sam­fé­lag elít­unnar sem birt­ist í dag. Hægt er að nálg­ast blað dags­ins með því að smella hér.

Á árunum 2010 til 2020 fór til að mynda um 44 pró­sent af öllum nýjum auð sem varð til í vasa þeirra tíu pró­sent lands­manna sem þén­uðu mest. Í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum jókst þessi mis­skipt­ing skarpt, meðal ann­ars vegna aðgerða sem stjórn­völd og Seðla­banki Íslands gripu til og gögn­uð­ust fjár­magns­eig­endum langt umfram aðra. Árið 2021 fór til að mynda 54,4 pró­sent af nýjum auð til …

Kjósa
116
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Mér var bent á að Moggafólki hafa sárnað þessi skrif frekar illa.

    Elskurnar þar vísa nefnilega í greinina, augljóslega í hefndarskyni og benda á að höfundur hennar búi sjálfur, ásamt fjölskyldu sinni í 4 herbergja "glæsiíbúð". 140 fm á þriðju hæð í blokk í póstnúmeri 105. Íbúðin hans er meira að segja með svölum!!
    Hann sé því hluti af elítunni. :D

    Kostulegt barasta. :)
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elítusamfélagið á Nesinu

Slagurinn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirninga
ViðtalElítusamfélagið á Nesinu

Slag­ur­inn um hvort Nesið eigi bara að vera fyrir Seltirn­inga

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar á Sel­tjarn­ar­nesi, segir að sveit­ar­fé­lagið sé í áður óþekktri krísu vegna þess að það á ekki lengur lóðir til að selja. Ekki náist sátt um það hvort bær­inn eigi að standa vörð um opin­bera þjón­ustu eða vera lág­skatta­sam­fé­lag með skerta þjón­ustu. Hann lýsir því hvernig minni­hluti hægri sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna hafi mikil völd og áhrif í bænum.
Ásgerður um baráttuna við háværa minnihlutann sem vill rukka 4500 í sund
ViðtalElítusamfélagið á Nesinu

Ásgerður um bar­átt­una við háværa minni­hlut­ann sem vill rukka 4500 í sund

Ásgerður Hall­dórs­dóttir, sem var bæj­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi í 13 ár, segir ákveð­inn arm sjálf­stæð­is­manna á Sel­tjarn­ar­nesi hafa í gegnum tíð­ina beitt sér fyrir því að lág­marka kostn­að­ar­þátt­töku bæj­ar­fé­lags­ins í opin­berri þjón­ustu. Hún nefnir sem dæmi hug­myndir um að rukka bæj­ar­búa um kostn­að­ar­verð fyrir aðgang að sund­laug­inni og leik­skóla­pláss, sem væri um 310 þús­und á mán­uði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár