Fastur á geðdeild í þúsund daga: Mannréttindabrot og úrræðaleysi

Þrír ein­stak­lingar eru fastir á geð­deild og bíða eftir örygg­is­þjón­ustu. Sá sem hefur beðið lengst hefur beðið í tæp­lega þús­und daga. Algjört óvissu­á­stand ríkir þegar kemur að fram­tíð­ar­hús­næði örygg­is­þjón­ustu hér á landi. Á síð­asta ári greiddi félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið ríf­lega 607 millj­ónir króna vegna örygg­is­þjón­ustu við átta ein­stak­linga og ekk­ert fram­tíð­ar­úr­ræði í sjón­máli. Enn fleiri eru fastir á geð­deildum Land­spít­al­ans vegna biðar eftir ann­ars konar búsetu­úr­ræði og langt síðan staðan hefur verið jafn slæm.

Fastur á geðdeild í þúsund daga: Mannréttindabrot og úrræðaleysi
Nanna Briem, fram­kvæmda­stjóri Geð­þjón­ustu Land­spít­al­ans. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þrír ein­stak­lingar bíða á geð­deildum Land­spít­al­ans eftir því að kom­ast í örygg­is­þjón­ustu, það er búsetu­úr­ræði með örygg­is­gæslu. Sá sem lengst hefur beðið hefur í dag, þriðju­dag­inn 9. maí, beðið í 994 daga. „Þeir eru fastir þarna inni. Rétt­ar­geð­deild er ekki geymslu­staður. Þetta er legu­deild á sjúkra­húsi þar sem mark­miðið er að við­kom­andi fái með­ferð og end­ur­hæf­ingu aftur út í sam­fé­lagið,“ segir Nanna Briem, fram­kvæmda­stjóri Geð­þjón­ustu Land­spít­al­ans. 

„Það á ekki að vera í boði að fólk missi mann­rétt­indi sín við það að vera lagt inn á spít­ala“
Grímur Atlason
fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar

Grímur Atlason, fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar, segir stöð­una óboð­lega og hún bitni verst á þeim sem bíða: „Þetta er mann­rétt­inda­brot og þetta er brot á stjórn­ar­skránni. Það á ekki að vera í boði að fólk missi mann­rétt­indi sín við það að vera lagt inn á spít­ala.“

…
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár