Hvað er á seyði í Súdan?

Það vantar blóð. Ekki á víg­völl­inn – sem er í sjálfri höf­uð­borg­inni. Þar er nóg af því. Það vantar blóð á sjúkra­húsin. Til að gera að sárum fólks­ins sem blæðir fyrir átök sem eiga sér rætur í fjand­skap tveggja karla. Styrj­öldin í Súdan er þó tölu­vert flókn­ari en svo.

Hvað er á seyði í Súdan?
Undir reyk­skýi Loft­árásir, eldar og sprengjur urðu til þess að Kartúm, höf­uð­borg Súdan, var falin í reykj­ar­mekki við upp­haf stríðs­átak­anna. Mynd: AFP

Byssu­kúlur þjóta og sprengju­brot falla út um allt. Þriðju vik­una í röð geisa hörð átök Súdan. Helst er barist í höf­uð­borg­inni. Samið var um vopna­hlé í síð­ustu viku en það er vart nema að nafn­inu til. 

Fólk er hvergi óhult.

Hund­ruðum erlendra rík­is­borg­ara hefur verið flogið eða siglt undan óöld­inni. Eftir sitja heima­menn, Súdanar, sem freista þess í tug­þús­unda­vís að kom­ast til ein­hvers af ríkj­unum sjö sem eiga landa­mæri að þessu þriðja stærsta ríki Afríku. Oft er þessi langa hættu­för farin fót­gang­andi og aðeins allra helstu nauð­synjar hægt að taka með.

Það er því ólíku saman að jafna, aðstæðum inn­fæddra og fólks­ins sem hefur rík­is­fang í fjar­lægum ríkjum og hefur margt hvert þegar flogið inn í frelsi og frið – og horft á eyði­legg­ingu höf­uð­borg­ar­innar Kartúm úr lofti.  

Ekki allir geta flúið, enda ekki óhætt eða yfir­höfuð ger­legt að flýja hvert sem er. Millj­ónir eru því enn á miðjum víg­vell­inum, berj­ast fyrir lífi sínu við stór­hættu­legar aðstæður. Búa við elds­neyt­is­skort og mat­væla- og lyfja­skort sem fer versn­andi með hverjum deg­inum sem líður.

 Sjúkra­húsin hafa sum hver orðið fyrir loft­árásum og starfs­menn þeirra eru fullir örvænt­ingar: Það vantar bók­staf­lega allt til að sinna hel­særðu fólki. Bankar hafa verið rændir. Apótek sömu­leiðis. Hreint vatn er vart hægt að fá og raf­magns­leysi er við­var­andi. Fjar­skipta­sam­band er stop­ult og hefur stundum legið niðri klukku­stundum saman.

Á flóttaKona heldur á flótta frá Kartúm með far­angur sinn á höfð­inu.

Þetta byrj­aði allt frekar skyndi­lega. Þann 15. apríl heyrð­ist fyrsta skotið og svo hófst linnu­laus hríð. Stríðs­á­stand skap­að­ist hratt, ástand sem Súdanar þekkja allt of vel. Hundruð þeirra áttu eftir að liggja í valnum eftir fyrstu dag­ana. Daga sem ein­kennd­ust af spreng­ingum, reyk, eyði­legg­ingu, öskrum og ópum og skelf­ingu.

Þótt átökin hafi haf­ist með hvelli hafði ólgað undir yfir­borð­inu um tíma.

Í um þrjá ára­tugi ríkti her­for­ingja­stjórn Omars al-Bashirs í Súdan með harðri hendi. Mann­rétt­inda­brot voru tíð og stjórnin sökuð um pynt­ingar og þjóð­ar­morð í Darfúr-hér­aði. Í kjöl­far fjölda­mót­mæla árið 2018 tóku hópar and­vígir Al-Bashir sig saman og steyptu honum af stóli.

Í öryggiðFrakkar sem bjuggu í Súdan komnir í skjól á flug­velli í nágrenni Parísar.

Nýrri stjórn var komið á en aðeins nokkrum mán­uðum síðar var valda­rán framið undir stjórn her­for­ingj­ans Abdel Fattah al-Burhan og hans næst­ráð­anda, Mohamed Hamdan Dagalo, sem yfir­leitt er kall­aður Hemeti.

Og nú eru það þessir fyrr­ver­andi banda­menn sem berj­ast. Hemeti leiðir vold­ugan upp­reisn­ar­her, RSF, og Al-Burhan stjórn­ar­her­inn. Ósættið er rakið til þess að áform voru uppi um að sam­eina her­ina sem hefði þýtt að annar þeirra hefði orðið að gefa eftir völd sín.

Al-Burhan er atvinnu­her­maður sem þaut upp valda­stig­ann í tíð Al-Bashir for­seta. Dagalo er kamel­dýra­hirðir frá Darfúr-hér­aði og hefur í nokkur ár verið hægri hönd Al-Burhans.

Vík milli vinaMohamed Hamdan Daglo (efri) er frá Darfúr-hér­aði og hefur stutt hers­höfð­ingj­ann Abdel Fattah al-Burhan (neðri) með ráðum og dáð. Þar til nú.

Til­raunir voru nýlega gerðar til að koma á borg­ara­legri stjórn í land­inu og höfðu her­for­ingj­arnir tveir setið að samn­inga­borðum ásamt leið­togum stjórn­mála­afla. Þegar kom að því að ræða sam­runa RSF við stjórn­ar­her­inn, til að einn form­legur her yrði í land­inu, fór stór gjá að mynd­ast milli her­for­ingj­anna sem ekki tókst að brúa áður en blóðug átök brut­ust út.  

Upp­reisn­ar­her­inn RSF (Rapid Support Forces) var stofn­aður árið 2013, m.a. af mönnum sem til­heyrt höfðu Janjaweed, skæru­liða­hópi sem sak­aður hefur verið um stríðs­glæpi í Darfúr-hér­aði. Janjaweed tók sér stöðu með stjórn­ar­hernum í styrj­öld­inni í Darfúr og aðstoð­aði við að berja upp­reisn­ar­hópa á bak aftur.

RSF er mun form­legri her er fyr­ir­renn­ar­inn. Hann fékk meira að segja árið 2017 opin­beran stimpil sem „sjálf­stæð örygg­is­sveit“.

Al-Burhan er vold­ugur og auð­ugur her­for­ingi og hefur síð­ustu ár aðstoðað Dagalo við að byggja upp við­skipta­veldi í gull­greftri, bygg­ing­ar­starf­semi og verslun með búfénað.

Súdan á landa­mæri að sjö ríkjum auk þess sem það liggur að Rauða­haf­inu. Þetta er auð­ugt land af bæði nátt­úru­feg­urð og auð­lindum. Níl­ar­fljót og dal­ur­inn sem það rennur um, hefur verið lífæð manna og dýra í árþús­undir. Í þrjú þús­und ár var á svæð­inu kon­ungs­ríki en líkt og urðu örlög svo margra þjóða Afríku tóku Bretar þar völd í lok nítj­ándu aldar. Það var ekki fyrr en eftir miðja 20. öld að landið hlaut sjálf­stæði og lýð­veldið Súdan var form­lega stofnað.

Hundruð um borðÞað var ekki pláss fyrir fleiri í stóru far­þega­skipi sem notað var til að flytja hund­ruð erlendra rík­is­borg­ara frá Rauða­hafs­strönd Súdan til Sádi-Arabíu.

En við tók hvert valdaránið á fætur öðru. Margar þjóðir bjuggu (og búa enn) innan landamæra Súdan. Trú­ar­brögð voru ólík í suð­ur­hluta lands­ins og þeim nyrðri, menn­ingin sömu­leiðis og tungu­málin. Borg­ara­styrj­öld braust út árið 1989 og end­aði með stofnun Suður-Súdan árið 2011.

Það var þó eng­inn endir á átökum eins og síð­ustu dagar sýna. Yfirvöld í Súdan hafa í ofaná­lag átt í deilum við flest nágranna­ríki sín. Tekist er á um hvar landa­mærin liggja, um virkj­anir og aðra nýt­ingu Nílar að ógleymdu ósætti vegna stuðn­ings eins ríkis við annað en ekki hitt. Þá hafa stjórn­völd í mörgum löndum, jafn­vel fjar­lægum, verið að skipta sér af mál­efnum Súdans lengi. Sum eru að reyna að stilla til friðar, þótt oft sé það gert með eigin hags­muni í huga. Aðrir vilja að ein stríð­andi fylk­ing umfram aðra nái yfir­hönd­inni, hafa til dæmis áhyggjur af því að Rússar nái ítökum á Rauða­hafi, opni þar her­stöð líkt og Al-Bashir, fyrr­ver­andi for­seti, hafði verið opinn fyrir.  

Á flugiHermaður heldur á ungri stúlku sem flutt var með hraði frá Súdan og til Jórdaníu eftir að átökin brut­ust út. Þaðan voru hinir erlendu rík­is­borg­arar fluttir til sinna heima­landa.

En hvernig munu þessi ósköp enda?

Hinu ofur við­kvæma vopna­hléi var komið á í síð­ustu viku. Það var ekki það fyrsta sem var reynt og verður lík­lega ekki það síð­asta.  Báða þyrstir þá Al-Burhan og Hemeti í blóð og völd. Hvorugur hefur verið á þeim bux­unum að gefa eftir. Ólíklegt hefur mátt telj­ast að þeir setj­ist fúsir að samn­inga­borðum á ný.

Full­trúar Sam­ein­uðu þjóð­anna vilja þó meina að þeir eygi von. Að stríð­andi fylk­ingar hafi í fyrsta sinn frá því að átökin brut­ust út sagst vera opnar fyrir við­ræðum. Engin tíma­setn­ing á slíkar við­ræður hefur þó verið ákveðin.

Og enn er skotið og sprengjum kastað.  Því reyna Súdanar enn að flýja til nágranna­landa, landa sem vilja flest alls ekki taka á móti þeim.

Flestir hafa flúið til Tsjad. Þar blasir eymdin ein við flótta­fólk­inu finni alþjóða­stofn­anir og sam­tök ekki fjár­magn og það hratt til að fæða það og klæða.

Og hvort að það geti nokkru sinni snúið aftur heim er alls óvíst.

 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár