Tuttugu vilja sjá um upplýsingamiðlum utanríkisráðuneytisins

Alls barst 21 umsókn um lausa stöðu fjöl­miðla­full­trúa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, sem aug­lýst var fyrir skemmstu. Á meðal umsækj­enda eru upp­lýs­inga­full­trúar tveggja ann­arra ráðu­neyta.

Tuttugu vilja sjá um upplýsingamiðlum utanríkisráðuneytisins
UTN Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur verið til húsa við Rauð­ar­ár­stíg í Reykja­vík, en flytur senn niður í Lands­banka­húsið við Aust­ur­höfn. Mynd: Af vef utanríkisráðuneytisins

Tuttugu og ein umsókn barst um stöðu fjöl­miðla­full­trúa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, en staðan var aug­lýst þann 22. mars og umsókn­ar­frest­ur­inn rann út 12. apríl. Einn umsækj­andi dró umsókn sína til baka, og eftir standa tutt­ugu manns. 

Athygli vekur að á meðal umsækj­enda eru upp­lýs­inga­full­trúar tveggja ann­arra ráðu­neyta, Elva Björk Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Fjalar Sig­urð­ar­son upp­lýs­inga­full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. 

Í hópi umsækj­enda er síðan fjöldi fólks með starfs­reynslu úr fjöl­miðlum, þeirra á meðal Lovísa Arn­ar­dóttir og Benedikt Bóas Hin­riks­son sem bæði störf­uðu á Frétta­blað­inu þar til útgáfu blaðs­ins var hætt um síð­ustu mán­aða­mót.

Sveinn H. Guð­mars­son hefur verið upp­lýs­inga­full­trúi utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins frá árinu 2018, en þar áður var hann upp­lýs­inga­full­trúi Land­helg­is­gæslu Íslands. Hann hefur ákveðið að hverfa til ann­arra starfa.

Umsækjendur um stöðuna eru eftirtaldir:

  1. Aron Guð­munds­son, stjórn­mála­fræð­ingur
  2. Auðunn Arn­órs­son, verk­efna­stjóri
  3. Auður Alberts­dóttir, ráð­gjafi
  4. Árdís Her­manns­dóttir, sam­skipta­stjóri
  5. Benedikt Bóas Hin­riks­son, blaða­maður
  6. Elva Björk Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi
  7. Erla Gunn­ars­dóttir, verk­efna­stjóri
  8. Eva Dögg Atla­dóttir, sam­skipta­full­trúi
  9. Fjalar Sig­urð­ar­son, upp­lýs­inga­full­trúi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins
  10. Davíð Ernir Kolbeins, almanna­teng­ill
  11. Georg Gylfason, sér­fræð­ingur
  12. Glúmur Bald­vins­son, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingur
  13. Heba Líf Jóns­dóttir, ferða­ráð­gjafi
  14. Íris Andra­dóttir, blaða­kona
  15. Kolbrún Páls­dóttir, kynn­inga­stjóri
  16. Lovísa Arn­ar­dóttir, fv. frétta­stjóri
  17. Óli Valur Pét­urs­son, fjöl­miðla- og boð­skipta­fræð­ingur
  18. Sunna Kristín Hilm­ars­dóttir, blaða­maður
  19. Þor­finnur Ómarsson, fjöl­miðla­full­trúi
  20. Ægir Þór Eysteins­son, sér­fræð­ingur
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár