Ung móðir biður ráðherra að auka jöfnuð háskólanema

Hund­ruðum þús­unda getur munað á skrá­setn­ingar- og skóla­gjöldum milli háskóla. Ungur laga­nemi við Háskól­ann á Akureyri seg­ist ekki geta átt íbúð, verið í námi og með barn á leik­skóla nema í fjar­námi úti á landi. Grunn­skólar fá hærri upp­hæðir en sumir af íslensku háskól­unum til að styðja við nem­endur sína.

Ástríður Glódís og Haraldur Ernir
Ástríður Glódís og Haraldur Ernir Hin 24 ára Ástríður Glódís segir að auka þurfi jöfnuð og tæki­færi fólks til að stunda háskóla­nám. Mynd: Aðsend

Á þessum tíma árs kepp­ast háskólar lands­ins við að ná til sín nýjum nem­endum í grunn- og meist­ara­nám. Alls eru sjö starf­rækir háskólar hér á landi. Ung móðir í laga­námi segir að ekki hefði verið mögu­leiki fyrir sig að stunda háskóla­nám nema í fjar­námi. Hún biður háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra að auka jöfnuð meðal náms­manna. 

Skrásetningar- og skólagjöld

Greiða þarf 75.000 krónur í skrá­setn­ing­ar­gjald kjósi nemi að stunda nám við Háskóla Íslands, Háskól­ann á Akureyri, Háskól­ann á Hólum eða Land­bún­að­ar­há­skóla Íslands. Grunnnám við Háskól­ann í Reykja­vík kostar 288.000 krónur á önn, eða 576.000 krónur fyrir skóla­árið. Skóla­gjöld fyrir meist­ara­nám í HR eru mis­mun­andi eftir deildum. Dýrast er MPM nám á 2.190.000 krónur fyrir skóla­árið í heild sinni. 

Fyrir grunn­nám við Háskól­ann á Bifröst borgar nem­andi 317.000 krónur á önn en meist­ara­nemi 499.000 krónur. Dýrast er að stunda grunn­nám við Lista­há­skóla Íslands en þar kostar önnin 340.972 krónur. …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár