Í meðalhófinu með hlýju og mýkt

Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður, hefur sent frá létt­leik­andi bók með alls konar textum og pæl­ingum. Í bók­inni birt­ist hug­mynda­heimur með­al­hófs­manns­ins sem leið­ist öfgar og læti.

Í meðalhófinu með hlýju og mýkt

Á lista í flæð­inu á sam­fé­lags­miðlum um dag­inn var yfir­lit þar sem heim­spek­ingar í sög­unni voru flokk­aðir eftir því hversu mikið pönk þeir voru. Sumir voru pönk á meðan aðrir voru ekki-pönk og allt þar á milli. Ef búinn yrði til slíkur listi yfir íslenska rit­höf­unda þá yrði Guð­mundur Andri Thorsson lík­lega settur á kvarð­ann ekki-pönk.

Hann var að gefa út bók sem er ein­hvers konar bræð­ingur af dag­bók, man­i­festói (frjáls­lynds jafn­að­ar­manns?), örævi­sögu­legum þáttum og heim­speki­legum vanga­veltum.  Guð­mundur Andri segir í bók­inni að hann skilji ekki af hverju ein­kunnin „búta­saumur“ sé talin slæm þegar þing­menn nota orðið um laga­frum­vörp. Hann vonar að þessi bók fái þann stimpil að vera búta­saumur. Hún er það sann­ar­lega, eða kássa, grýta, grautur, súpa, hrær­ingur af alls konar brotum þar sem höf­und­ur­inn er frjáls og leyfir sér flest sem er. 

En af hverju er Guð­mundur Andri anti-pönk? Af því að í bók­inni birt­ast lífs­skoð­anir hans, lífs­sýn, sem gengur út á flest annað en það að vera ein­dreg­inn eða afger­andi. Hann segir meðal ann­ars í bók­inni að hann skrifi ekki til að ögra: „Ég skrifa ekki til að færa neinum óþægi­leg sann­indi en ég geri það ekki heldur til að skrökva. Ég vil ekki ögra en það er heldur ekki keppi­kefli mitt að svæfa.“

Guð­mundur Andri er með­al­hófs­maður. Honum er upp­sigað við ofstæki, predik­anir, lýð­skrum og þá sem telja sig vera hand­hafa sann­leik­ans. Hann gagn­rýnir notkun á tungu­mál­inu sem miðar að því að blekkja eða plata og er  til dæmis með sér­stakan texta um „Hug­mynda­fræði hins ákveðna greinis“. Notkun hans, segir Guð­mundur Andri, bendir oft til lýð­skrums þar sem talað er um alþýð­una, þjóð­ina eða lýð­ræðið. 

Einn kjarni bók­ar­innar er því að gagn­rýna skoð­ana- og dóm­hörku, sem Guð­mundur Andri telur meðal ann­ars að birt­ist oft og tíðum í umræðum á sam­fé­lags­miðlum. „Fyrir utan grund­vall­ar­lífs­við­horf hef ég samt ekki ein­dregnar skoð­anir – miklu heldur tví­dregnar, jafn­vel fjór- eða fimmdregnar. Eða kannski bara ódregnar. Vonandi sein­dregnar. En örugg­lega marg­dregnar og lang­dregnar: ég tala eftir löngu dregnum brautum, sam­kvæmt strúkt­urum sem mynd­ast hafa í hausnum af því að lesa greinar og bækur og blöð ... Stundum er ég svo leiði­tamur að segja mætti að ég hafi ekki skoð­anir heldur hafi skoð­anir mig.“ 

Eins og yfir­leitt þegar Guð­mundur Andri skrifar þá eru þessir textar fal­lega stíl­aðir og sniðnir. Allt er á sínum stað; það ger­ist varla að Guð­mundur Andri noti semíkommu sem láti les­and­ann spyrja sig: Af hverju setur hann semíkommu þarna? Hann er búinn að klappa þetta til, pússa af van­kanta ef þeir voru ein­hvern tím­ann þarna, þannig að útkoman rennur hlý og mjúk inn í les­and­ann.

Sjálfur talar hann um það í bók­inni að stundum sé texta hans líkt við „konfekt“ en kannski má líka tala um vel gerðan smíð­is­grip eða hand­verk. Þegar Guð­mundur Andri skrif­aði sínar viku­legu greinar í Frétta­blaðið lagði ég mig fram við að lesa þær. Það var ekki endi­lega alltaf það sem Guð­mundur Andri sagði í pistl­unum sem vakti athygli heldur hvernig hann sagði það. Þessi bók er líka þannig: Guð­mundur Andri er úti að leika sér með penna eða lykla­borð. 

Í þess­ari bók eru text­anir eðli­lega mis­á­huga­verðir og djúpir. Sumir eru létt­póli­tískir, og segja til dæmis frá sjáv­ar­út­vegi og kvóta­kerfi, á meðan aðrir  fjalla um túristana á Íslandi og lund­ann.

Einn fjallar svo til dæmis um efni sem Guð­mundur Andri hefur fjallað um áður, án þess að ég muni hvar. Þetta er minimal­ism­inn sem á að ein­kenna nútíma­leg heim­ili. Mini­smal­ism­inn gengur út á það að hlutir heima hjá fólki eigi helst ekki að sjást, það á að fela lífið og mennsk­una sem birt­ist í hlutum á heim­il­inu. Gegn minimal­ism­anum teflir hann max­imal­ism­anum og kallar þá sem aðhyll­ast þessar ólíku hug­myndir „fáskrúðs­hyggju­menn“ og „fjöl­skrúðs­fólk“ og er ljóst að hvorum -ism­anum höf­und­ur­inn hall­ast: „En ég fagna samt geymslum fullum af aflögðum nytja­hlutum, hrúgum af ósam­stæðu glingri, hillum þöktum hlutum sem eru ekki til neins, og ótal bókum sem hafa að geyma, hver og ein, sinn alheim.“

Við lest­ur­inn fannst mér ljóst að Guð­mundur Andri hafði gaman af því að skrifa þessa texta, alveg eins og það var morg­un­ljóst í bók­inni fal­legu sem hann skrif­aði um pabba sinn fyrir nokkrum árum. Vonandi kemur svo líka bók um mömmu hans með tíð og tíma því sú fyrri var nammi.   

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár