Leigumarkaðurinn hefur setið á hakanum

Vísitala leigu­verðs á höfuð­borgar­svæðinu hækkaði um 6,5 prósent á sex mánuðum þrátt fyrir að húsnæðis­verð hafi á sama tíma staðið í stað. „Ég hef áhyggjur af því að þetta endi ekki vel fyrir leigjendur,“ segir Már Mixa hagfræðingur.

Vísitala leigu­verðs á höfuð­borgar­svæðinu hækkaði um 6,5% á sex mánuðum samkvæmt síðustu tölum Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar (HMS), þrátt fyrir að húsnæðis­verð hafi á sama tíma nánast staðið í stað.

Vísitala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til mars 2011-2023Heimild: HMS

Máx Wolfgang Mixa, lektor í hagfræði við HÍ, segir að staðan á leigu­markaði sé að snúast við. „Í Covid-faraldrinum tók húsnæðis­verð mikinn kipp en leiguverð stóð í stað. Þetta er óvenjulegt því yfirleitt hefur verið mikil fylgni milli húsnæðis­verðs og leigu­verðs. En nú er spáð metfjölda ferða­manna og miklar líkur á því að íbúðir fari aftur á skamm­tímaleigu. Ég hef áhyggjur af því að þetta endi ekki vel fyrir leigjendur.“

Þar að auki voru vextir á húsnæðis­lánum í sögulegu lágmarki meðan á faraldrinum stóð, sem gerði kaupendum auðveldara fyrir að kaupa húsnæði, en nú er öldin önnur. Vextir á óverðtryggðum húsnæðis­lánum voru minnst 3,3% vorið 2021 en hafa síðan þá hækkað um sex prósentu­stig og eru nú í kringum 9,3%.

Hefur lengi fylgst með stöðunni á húsnæðismarkaðnum

Már Wolfgang Mixatelur vera miklar líkur á því að leigu­verð haldi áfram að hækka á næst­unni.

„Það eru um það bil fimmtán ár síðan ég fór að beina sjónum mínum að húsnæðis­málum og þá ekki síst leigu­málum. Þegar ég byrjaði að skrifa hafði enginn áhuga á þessu. Núna er um það bil þriðja hver ritgerð sem ég er að leiðbeina að fjalla um fasteigna­markaðinn. Fólk hefur mikinn áhuga á þessu.“

Sjálfur fór Már að hafa áhuga á leigu­markaðnum eftir að hafa heyrt sögu kunningja sem hafði erfiða reynslu af leigu­markaðinum og óvissunni sem honum fylgdi. „Vinkona dætra minna þurfti að flytjast úr miðbæ Hafnar­fjarðar einhvers staðar út í Mosfellsbæ. Og þá þurfa börnin að skipta um skóla, það þarf að endur­skipuleggja allt saman. Það var eiginlega í framhaldi af því sem augun mín opnuðust fyrir hversu slæm staða fólks á leigu­markaði er hérna. Það er líka áhyggju­efni að margir þeirra sem flæmdust á leigu­markað eftir að hafa misst húsið í hruninu eru stundum að festast á leigu­markaði árum saman og komast aldrei aftur inn. Og nú hafa vextir hækkað svo mikið að greiðslu­byrðin af nýju láni er orðin óviðráðanleg fyrir marga.“

Aðeins 10% leigjenda eru á leigumarkaði af fúsum og frjálsum vilja.

Samkvæmt viðhorfs­könnun HMS segjast aðeins 10% leigjenda vera á leigu­markaði af fúsum og frjálsum vilja, en 19% telja sig ekki búa við húsnæðis­öryggi. Könnunin var hins vegar framkvæmd árið 2021 og hlut­fallið gæti hafa hækkað síðan þá. Hlutfall ráðstöfunar­tekna sem fór í leigu mældist 45% að meðaltali en talað er um „íþyngjandi húsnæðis­kostnað“ þegar hlut­fallið mælist yfir 40%. Síðan þá hefur leiguverð hækkað um nær 20% og því má gera ráð fyrir að hlut­fallið hafi hækkað enn frekar.

Fjöldi íbúða í skammtímaleigu eykst hratt

Eignir í skamm­tímaleigu til ferða­manna voru tiltölu­lega fáar á Covid-árunum 2020-2021 en fjöldi þeirra tvöfaldaðist síðan úr 1.082 upp í 2.180 samkvæmt Sýslu­manninum á höfuð­borgar­svæðinu. „Við erum að sjá mikla aukningu í umsóknir um heima­gistingu núna. Það eru margar umsóknir að berast á hverjum degi og það sem af er árinu hafa 1732 umsóknir verið samþykktar og það er mjög líklegt að þær verði fleiri í ár en í fyrra,“ segir Oddur Björn Tryggvason, sérfræðingur hjá Sýslu­manninum.

Við þetta bætist að aukin umsvif ferða­þjónustunnar kalla eftir meira vinnuafli. Til þess að manna störfin er gjarnan leitað til útlanda en fólks­fjölgun af þessum sökum skapar aukna eftir­spurn eftir leigu­húsnæði. „Á síðustu 20 árum hefur lands­mönnum fjölgað um 100.000,“ segir Már. „Af þessum fjölda má gera ráð fyrir að 25% vinni við ferða­þjónustu.“ Þá eru afleidd störf ekki talin með, svo sem störf í smásölu og þjónustu sem tengist ekki ferða­þjónustu eingöngu en hefur vaxið vegna aukins fjölda ferða­manna.

Ferðamála­stofa spáir 50% fjölgun ferða­manna fram til 2030. Verði þessi spá að veruleika er ljóst að álagið á leigu­markaðnum verður áfram mikið.

Vill miða lán við húsnæðisvísitölu

Ein lausn sem Már hefur talað fyrir er að tengja húsnæðislán við húsnæðis­vísitölu frekar en vísitölu neyslu­verðs eins og venjan hefur verið með verð­tryggðum húsnæðis­lánum. „Í hruninu lenti fólk í því að höfuð­stóll lánsins hækkaði vegna verðbólgu á sama tíma og fasteigna­verð lækkaði og þá þurrkaðist allt út sem fólk hafði fjárfest í eigið húsnæði. Séu lán tengd við húsnæðis­vísitölu þá lækkar höfuð­stóllinn í sama takti og húsnæðis­verð lækkar. Það dregur úr hættunni á því að eigið fé fólks þurrkist út við slíkar aðstæður.“

Séreignarstefnan og einstaklingshyggjan skemma fyrir

„Hér á landi hefur séreignar­stefnan lengi ráðið ríkjum, og það hefur verið á kostnað leigu­markaðarins, en það er ekki endilega slæmt að vera á leigu­markaði. Fyrir suma hentar hreinlega betur að vera á leigu­markaði, t.d. námsmenn sem hafa ekki ákveðið hvar þeir vilja búa, ungt fólk sem er að safna sér fyrir eigin húsnæði, eða fólk sem er í tíma­bundnu starfi einhver staðar og gerir ekki ráð fyrir að búa lengi á einum stað. Það sem er slæmt er óvissan sem getur fylgt því að vera á leigu­markaði þegar sveiflurnar í framboði og eftir­spurn verða miklar.“

„Við þurfum að taka afstöðu til þess hvort við lítum á leigu­markaðinn sem einhvers konar neyðar­úrræði eða bara eðlilegur hluti af húsnæðis­framboði. Það er ákveðin einstaklings­hyggja sem er kannski meira ráðandi hér á landi en hjá öðrum Norður­landaþjóðum og hún hefur kannski líka spilað inn í.“

Leiguþak tvíeggjað sverð

Formaður Leigjenda­samtakanna hefur talað fyrir ýmsum aðgerðum til að bæta aðstöðu leigjenda, meðal annars þak á leiguverð. „Það er frábært að leigjendur séu komnir með svona sterkan talsmann,“ segir Már. „Hins vegar hef ég ekki mikla trú á því að leiguþak geti leyst málið.“ Hann nefnir sem dæmi að leiguþak hafi verið innleitt í Stokk­hólmi í Svíþjóð, en þar hefur leigu­þakið ekki komið í veg fyrir skort á leigu­húsnæði og margir neyðast til þess að leigja á svörtum markaði. Þeir sem eru með löglegan leigu­samning með leiguþaki leigja þá gjarnan áfram til þeirra sem hafa ekki aðgang að slíkum samningi, en 500.000 manns eru á biðlista eftir löglegum leigu­samningi og biðin getur tekið 20 til 30 ár.

Erfitt að ráða við miklar sveiflur í fólksfjölgun

Kári Frið­riks­sonhag­fræð­ingur hjá HMS.

Kári Friðriksson, hagfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun, tekur í sama streng og segir leiguþak geta verið tvíeggjað sverð. Að hans mati sé flösku­hálsinn fyrst og fremst skortur á lóða­framboði en bæði stjórn­sýslan og byggingar­ferlið séu seinvirk og það geti tekið mörg ár frá því að ákveðið er að skipuleggja nýtt íbúða­hverfi þangað til nýjar íbúðir eru afhentar. Þá sé erfitt að ráða við miklar og tíðar sveiflur í eftir­spurn eftir húsnæði. Á Íslandi séu slíkar sveiflur sérstak­lega miklar og ýktari en í nágranna­löndum.

Sveiflur í umsvifum bygg­ing­ar­iðn­að­ar­ins eru meiri á Íslandi en í fjöl­menn­ari löndum

Miklar sveiflur í eftir­spurn eftir húsnæði skýrast líklega af sveiflum í íbúa­fjölgun en vegna fámennisins hér á landi geta slíkar sveiflur verið talsvert meiri en í fjölmennari löndum. Erfitt og dýrt getur reynst fyrir byggingar­iðnaðinn að aðlagast þessum sveiflum og það endur­speglast í hærra húsnæðis­verði.

Árleg fólks­fjölgun í nokkrum Evr­ópu­löndumHeimild: United Nation Population Division

Þá eru hagsveiflur sömuleiðis miklar hér á landi en fólks­fjölgun hefur verið mjög háð hagsveiflunni. Í niður­sveiflunni árin 2008-2011 var fólks­fjölgunin nær engin eða jafnvel neikvæð en þegar hagvöxtur verður mikill kallar það á innflutt vinnuafl og þá getur fólks­fjölgunin allt í einu orðið 2-2,5% á ári (árið 2022 reyndist einmitt metár í fólks­fjölgun en þá mældist hún 3%). Í fjölmennari löndum er fólks­fjölgun jafnari yfir tímann og munurinn milli ára sjaldan meiri en 1%.

Ofan á hagsveiflurnar bætast sveiflur í fjölda flótta­manna sem sækja til Íslands. Til að mynda voru umsækjendur um alþjóð­lega vernd árið 2022 fimm sinnum fleiri en árið á undan, eða 4.500 (52% þeirra voru frá Úkraínu). Uppbygging húsnæðis­kerfisins er langtíma­verkefni sem þarf að undirbúa mörg ár fram í tímann en spár um mann­fjölgun eru mjög ónákvæmar þar sem erfitt er að spá fyrir bæði um hagvöxt og fjölda flótta­fólks sem sækir til landsins. Fólks­fjölgunin ein og sér er ekki endilega vandamál heldur sveiflurnar í fólks­fjölgun sem gera áætlana­gerð erfiða.

Fólk á leigumarkaði minnihluti sem lítið er hugsað um

Aðeins 16-17% lands­manna eru á leigu­markaði, og stór hluti þeirra eru innflytjendur sem hafa ekki kosninga­rétt. Þessi hópur hefur því mjög veika rödd þegar kemur að því að kalla eftir umbótum.

Flestar aðgerðir sem hefur verið gripið til á húsnæðis­markaðnum á undan­förnum árum hafa verið í þágu kaupenda og eigenda húsnæðis. Leið­réttingin svokallaða, sem farið var í eftir fjármála­hrunið, miðaði að því að létta með þeim sem þegar höfðu keypt húsnæði. Skatt­frjáls ráðstöfun séreignar­sparnaðar til niður­greiðslu á húsnæðis­láni var sömuleiðis ætluð þeim sem búa í eigin húsnæði og það sama má segja um hlutdeildar­lánin sem núverandi stjórn­völd eru að veita til kaupa á fyrstu fasteign.

Allt bendir til þess að leigu­markaðurinn hafi einfald­lega setið á hakanum í langan tíma.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Yngvi Sighvatsson skrifaði
    1. Leigumarkaðurinn er miklu stærri en 16-18% því stór hluti samninga er ekki gefin upp og er það í beinu samhengi við hækkun leigu, því ef þú hefur efni á að borga þetta háa leigu, þá áttu ekki rétt á bótum. Þessi staðreynd er falin viljandi af HMS en samkvæmt upplýsingum frá hagstofu varðandi fólksfjölgun þá ættu um 10 manns að búa í hverri íbúð svo þessi uppgefna tala HMS um 16-18% gæti staðist.
    2. Hömlur á leiguverði eru víðast hvar í Evrópu og virka vel. Ef við kæmum slíku á hér þá væri það gríðarlegur ávinningur fyrir venjulegt fólk sem vill kaupa sér sitt eigið húsnæði, þvi þá væri ekki stöðugur slagur við fjárfesta um hverja eign, staðan frá 2005 til dagsins í dag er : Fjárfestar 2 íbúðir fyrir hverja eina sem venjulegt fólk kaupir sér.
    3. Að hafa nauðsynjavöru eins og húsnæði algerlega án neinnar kostnaðartengingar og láta verðið eingöngu ráðast af neyð fólks er ekki siðuðu samfélagi bjóðandi.
    ps. ég átti ekki von á þessum áróðri frá Wolfgang enda gefur hann sig út fyrir að vera hlynntur því að staða leigjenda sé bætt. En hver er lausnin önnur en að stöðva gullgrafaræðið á leigumarkaði ?
    Varðandi manninn frá HMS þá hvet ég ykkur til að hlusta sem minnst á hann enda er sú stofnun gerandi í ástandinu, sérstaklega á leigumarkaði og hafa samtök leigjenda send inn erindi til ríkisendurskoðunnar varðandi starfshætti HMS.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár