Vextir banka farið úr því að vera rúmlega þrjú prósent í að vera í kringum níu prósent

Vorið 2021 lán­uðu stærstu lán­veit­endur íbúða­lána á óverð­tryggðum breyti­legum vöxtum sem voru á bil­inu 3,3 til 3,44 pró­sent. Nú bjóða sömu lán­veit­endur, stærstu bankar lands­ins, upp á vexti á sömu lánum sem eru 9,0 til 9,34 pró­sent.

Vextir banka farið úr því að vera rúmlega þrjú prósent í að vera í kringum níu prósent
Lán Umfang óverð­tryggðra íbúða­lána banka hefur þre­fald­ast síðan fyrir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Mynd: Pexels

Í apríl 2021 voru efna­hags­legar aðgerðir stjórn­valda og Seðla­banka Íslands vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hófst snemma árs 2020, farnar að koma nokkuð skýrt í ljós. Í þeim fólst meðal ann­ars að lækka stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent, það lægsta sem þeir hafa nokkru sinni verið, og Seðla­bank­inn jók sam­hliða svig­rúm við­skipta­banka til útlána mikið með því að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem áður hafði lagst á þá, og gerði það að verkum að þeir þurftu að halda á minna af eigin fé. 

Vegna þessa gátu bank­arnir lánað út mörg hund­ruð millj­arða króna, sem þeir höfðu áður þurft að sitja á. Þessum fjár­munum beindu þeir fyrst og síð­ast að heim­ilum sem vildu kaupa sér íbúð­ar­hús­næði. 

Óverð­tryggð lán urðu skyndi­lega afar hag­kvæmur kostur fyrir lán­tak­endur, enda buðu stærstu lán­veit­endur slík lán á vöxtum sem voru á bil­inu 3,3 til 3,44 pró­sent vorið 2021. 

Hlið­ar­á­hrif af þessu urðu þau að íbúða­verð á …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár