1097. spurningaþraut: Dánargríma sögufrægs kóngs — eða hvað?

1097. spurningaþraut: Dánargríma sögufrægs kóngs — eða hvað?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér er forn dán­ar­gríma sem grafin var úr jörð á ákveðnum stað. Gríman hefur (með réttu eða röngu) verið kölluð eftir ákveðnum kóngi sem sagður er hafa ríkt á þeim slóðum fyrir löngu. Í hvaða landi fannst þessi dán­ar­gríma — og svo er lár­við­ar­stig fyrir að þekkja nafnið á kóng­inum.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Tarja Halonen var í tólf ár — 2000-2012 – for­seti hvaða ríkis?

2.  Hver er nyrsta höf­uð­borg í heimi — og hér er aðeins um sjálf­stæð ríki að ræða?

3.  En hver skyldi vera næst-nyrst?

4.  Hvaða tafl­maður er eft­ir­sókn­ar­verð­astur í sam­kvæmum?

5.  Hvaða hljóm­sveit gaf út plöt­una Rubber Soul árið 1965?

6.  Hvað er kossa­geit?

7.  Hvað hét mað­ur­inn sem á að hafa fengið epli í haus­inn og fengið við það snjalla hug­mynd?

8.  Hvaða him­in­hnöttur í sól­kerf­inu okkar hefur fimm tungl: Charon, Styx, Nix, Kerberos og Hydru?

9.  Eng­il­bert Jensen var söngv­ari en spil­aði líka á hljóð­færi. Hvað var eft­ir­lætis hljóð­færi hans?

10.  Frá 1996 hefur það aðeins tví­vegis gerst að Úrvals­deild­ina í karla­fót­bolt­anum á Bret­landi hafi unnið lið sem ekki kemur frá London eða Manchester. Hvaða tvö eru það? Nefna þarf bæði.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr er þetta? Hér þarf að gæta ákveð­innar

nákvæmni.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Finn­lands.

2.  Reykja­vík.

3.  Helsinki.

4.  Hrókur alls fagn­aðar.

5.  Bítl­arnir.

6.  Sýking með smáum blöðrum, oft­ast í and­liti.

7.  Newton.

8.  Plútó.

9.  Trommur.

10.  Liverpool og Leicester.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir dán­ar­grímu sem grafin var upp í Grikk­landi og hefur verið nefnd eftir Aga­mem­non kon­ungi — þótt mjög vafa­samt sé að hún hafi til­heyrt honum.

Á neðri mynd­inni er smokk­fiskur. Athugið að þetta er EKKI kol­krabbi, þótt kol­krabbar og smokk­fiskar séu vissu­lega nokkuð skyldir.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár