Umdeildar öryggismyndavélar í notkun hjá Reykjavíkurborg

Örygg­is­mynda­vélar frá umdeildum kín­verskum fyr­ir­tækjum eru í notkun hjá Reykja­vík­ur­borg sem og við opin­berar bygg­ingar á Íslandi. Vélar frá þessum fyr­ir­tækjum eru bann­aðar víða um lönd, ýmist vegna mögu­legra örygg­is­bresta eða þátt­töku í mann­rétt­inda­brotum í Kína. Sér­fræð­ingur í tækni­ör­yggi segir engan hug­búnað full­kom­lega öruggan.

Til stendur að fjölga öryggismyndavélum í miðborg Reykjavíkur.
Til stendur að fjölga örygg­is­mynda­vélum í mið­borg Reykja­víkur. Mynd: Shutterstock

Kín­versku fyr­ir­tækin Hikvison og Dahua eru meðal stærstu fram­leið­enda örygg­is­mynda­véla í heim­inum. Vélarnar þeirra eru til­tölu­lega ódýrar og hafa sömu­leiðis verið afar vin­sælar. Á síð­ustu miss­erum hafa hins vegar borist fregnir af því að vélar frá þessum fram­leið­endum séu bann­aðar, og hafa þær til að mynda verið fjar­lægðar úr opin­berar bygg­ingum í Banda­ríkj­unum, Bret­landi, Ástralíu og við Evr­ópu­þingið. Banda­ríkin segja notkun þess­ara véla vera ógn við þjóðar­ör­yggi.

Ástæð­urnar eru mögu­legir örygg­is­brestir en hvað Hikvison varðar teng­ist það einnig því að vélar þeirra séu nýttar af kín­verskum yfir­völdum til að fremja mann­rétt­inda­brot­ í Xinjiang-hér­aði gagn­vart úíg­úra-múslim­um.

Örygg­is­mynda­vélar frá Hikvison eru meðal þeirra sem not­aðar eru í mið­borg Reykja­víkur og örygg­is­mynda­vélar frá bæði Hikvison og Dahua eru meðal þeirra mynda­véla sem not­aðar eru við opin­berar bygg­ingar á Íslandi. Þetta kemur fram í svörum frá rík­is­lög­reglu­stjóra og Neyð­ar­lín­unni.

Þétta netið fyrir leiðtogafundinn

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri lagði í síð­asta …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Flosi Guðmundsson skrifaði
    Þegar öryggi Kínverks tæknibúnaðar er dregið í efa byggist það mest á fabúleringum. Það er aldrei neitt fast í hendi, ekkert sérstakt sem bendir til neins annað en þessi eilífi efi. Kínverski síminn minn notar helminginn af orkunni til að njósna um mig eins og allir símar, en hann sendir mest af þessum gagnsljausu upplýsingum um mig til Bandríkjanna. Google Facebook og Microsoft fylgjast grannt með.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár