Vantrauststillaga á dómsmálaráðherra felld

Alls greiddu 35 þingmenn at­kvæði gegn van­traust­stil­lögu á Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag. 22 sögðu já og einn greiddi ekki at­kvæði. For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði í um­ræð­um um til­lög­una að rík­is­stjórn­ar­sam­starf­ið stæði styrk­um fót­um.

Ráðherra í sviðsljósi
Ráðherra í sviðs­ljósi Spjótum hefur ítrekað verið beint að dóms­mála­ráð­herra síð­ustu vikur en mál sem eru á verk­sviði hans hafa ratað æ oftar í fjöl­miðla, allt frá raf­byssu­um­ræðum til útlend­inga­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Vantrauststilllaga á Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra var felld á Alþingi í dag með 35 atkvæðum en fimm þingmenn voru fjar­staddir. 22 sögðu já og einn greiddi ekki atkvæði. 

Heimildin greindi frá því í gær að fjór­ir þing­flokks­for­menn Pírata, Við­reisn­ar, Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og Flokks fólks­ins hefðu lagt fram van­traust­stil­lögu á dómsmála­ráðherra. 

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra sagði í seinni ræðu sinni í umræðum um tillöguna að þingmenn Vinstri grænna legðust gegn þessari tillögu. „Þar með erum við ekki að smætta það viðfangs­efni sem hér er til umræðu,“ sagði hún. Margir þingmenn stjórnar­andstöðunnar voru harðorðir í garð dómsmála­ráðherra og stjórnar­flokkanna og hvöttu þeir aðra þingmenn til að greiða með tillög­unni. 

Segir ráðherrann hafa brotið gegn einni af grunnstoðum þingræðisins á Íslandi

Þórhildur Sunna Ævars­dóttir þing­flokks­formaður og flutnings­maður tillög­unnar sagði undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær, eftir að tillagan var lögð fram, að ráðherrann hefði brotið gegn þing­sköpum þegar hann „bannaði Útlendinga­stofnun að afhenda þinginu þau gögn sem þingið óskaði eftir“. 

„Með þessu athæfi braut ráðherrann gegn einni af grunn­stoðum þing­ræðisins á Íslandi. Hann braut gegn upplýsinga­rétti Alþingis Íslendinga. Það er grafal­varlegt brot gegn þinginu, brot sem þingið má ekki láta yfir sig ganga eins og ekkert hafi gerst. Réttur þingsins til að kalla eftir þeim upplýsingum sem það þarf til að sinna störfum sínum er bundinn í stjórnar­skrá, hann er víðtækur og gríðar­lega mikil­vægur. 

Við erum lýðveldi með þing­bundinni stjórn og það má ekki leyfa ráðherrum að taka sér það vald að velja hvaða upplýsingar þeim finnst þingið eiga rétt á að fá og hverjar ekki. Ef við samþykkjum það einu sinni erum við að setja fordæmi sem er ekki bara hættulegt heldur beinlínis andstætt stjórn­skipun lýðveldisins Íslands,“ sagði hún. 

Tillagan lögð fram „til að standa vörð um grundvallarstjórnskipan Íslands“

Ráðherra ætti ekki að njóta trausts AlþingisÞór­hildur Sunna sagði að til­lagan sner­ist um það að ráð­herra sem bryti jafn „frek­lega gegn upp­lýs­inga­rétti Alþingis“ gæti ekki, mætti ekki og ætti ekki að njóta trausts þings­ins.

Af þessum ástæðum sagði Þórhildur Sunna að þing­flokks­formenn flokkanna fjögurra legðu til vantraust á hendur dómsmála­ráðherra; til að standa vörð um grundvallar­stjórn­skipan Íslands. 

„Um það snýst þessi tillaga og ekkert annað. Hún snýst ekki um veitingu ríkis­borgara­réttar. Hún snýst ekki um Útlendinga­stofnun. Hún snýst ekki um útlendinga, hvað sem hver segir. Allra síst snýst hún um dylgjur dómsmála­ráðherra í garð þingmanna allsherjar- og menntamála­nefndar, sem er ein ógeð­felldasta afvega­leiðing sem ég hef orðið vitni að. Þessi tillaga snýst um það að ráðherra sem brýtur jafn freklega gegn upplýsinga­rétti Alþingis getur ekki, má ekki og á ekki að njóta trausts þess sama Alþingis,“ sagði hún.

Ríkisstjórnarsamstarfið „stendur styrkum fótum“

Margir tóku til máls í umræðu sem átti sér stað fyrir atkvæða­greiðsluna. Allir formenn stjórnar­flokkanna lögðu orð í belg. Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra og formaður Vinstri grænna sagði meðal annars í sinni ræðu að vantrausts­tillagan væri svo sannarlega ekki meðhöndluðu af neinni léttúð af þing­mönnum ríkis­stjórnar­flokkanna enda ekkert skemmtiefni um að ræða. „En við vitum það líka sem hér erum að slíkar tillögur eru iðulega settar fram til að kljúfa samstöðu í ríkis­stjórn, kannski eðlilega, og ég vil ítreka það hér að ríkis­stjórnar­samstarfið stendur styrkum fótum.“

Sigurður Ingi Jóhannsson innviða­ráðherra og formaður Framsóknar­flokksins sagði að tillagan hvíldi á veikum grunni. Í hans huga er tillaga stjórnar­andstöðunnar hluti af eitraðri orðræðu­hefð sem skapast hefði í kringum málefni útlendinga á Alþingi Íslendinga.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins sagði meðal annars í sinni ræðu að honum þætti þetta vera afar langsótt tilraun sem í hans huga byggði fyrst og fremst á því að fólk væri í grundvallar­atriðum pólitískt ósammála áherslum dómsmála­ráðherra. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár