Landsréttur: Efling þarf ekki að afhenda ríkissáttasemjara kjörskrána

Lands­réttur kvað upp dóm sinn fyrir stundu. Þetta eru gríð­ar­legar vend­ingar í einni snún­ustu kjara­deilu síðstu ára.

Landsréttur: Efling þarf ekki að afhenda ríkissáttasemjara kjörskrána

Efling hafði betur í Land­rétti gegn rík­is­sátta­semj­ara og þarf því ekki að afhenda honum kjör­skrá félags­ins.  Lands­réttur sneri þannig við dómi Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem féll fyrir viku.

Í nið­ur­stöðukafla dóms Lands­réttar frá í dag segir að sam­kvæmt lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur sé rík­is­sátta­semj­ara heim­ilt að leggja fram miðl­un­ar­til­lögu til lausnar vinnu­deilu ef samn­inga­um­leit­anir hans bera ekki árangur.

Þar kemur einnig fram að rík­is­sátta­semj­ari hafi ótví­ræðan lög­bund­inn  rétti til að taka ákvörðun um að atkvæða­greiðsla skuli fara fram um miðl­un­ar­til­lögu sem hann hefur sett fram. 

Hins vegar sé hvergi í lögum til­tekið að aðila vinnu­deilu sé skylt að afhenda rík­is­sátta­semj­ara kjör­skrá sína áður en til slíkrar atkvæða­greiðslu kemur, eða veita honum aðgang að henni.

Haft er eftir Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­manni Eflingar, í til­kynn­ingu á vef félags­ins vegna tíð­ind­anna: 

„Þetta er versti áfell­is­dómur yfir vinnu­brögðum rík­is­sátta­semj­ara sem hægt var að hugsa sér. Ég treysti því að íslenska ríkið taki ræki­lega til í sínum ranni gagn­vart kjara­deilu Eflingar og SA í ljósi þess­arar nið­ur­stöðu. Við krefj­umst þess að Aðal­steinn Leifsson verði lát­inn segja sig sam­stundis frá deil­unni. Við fögnum þess­ari nið­ur­stöðu inni­lega.“

Samþykktu verkfallsboðanir fyrir 1650 manns

Samn­inga­nefnd Eflingar sam­þykkti ein­róma á fundi sínum í gær þrjár verk­falls­boð­anir sem eiga við um alls 1650 manns. Þetta er við­bót við verk­fall hátt í fimm hund­ruð hót­el­starfs­manna í Reykja­vík og um 70 olíu- og vöru­flutn­inga­bíl­stjóra sem að óbreyttu hefst um hádegi á mið­viku­dag. Nú þegar eru um 300 starfs­menn Íslands­hót­ela og Foss­hót­ela í Reykja­vík í verk­falli.

Boð­an­irnar þrjár sem sam­þykktar voru nú eru eft­ir­far­andi, eins og fram kemur á vef Eflingar:

  • Verkfall á öllum gisti­heim­ilum og hót­elum á félags­svæði Eflingar. Þar undir falla hót­el­keðj­urnar Centerhotels og Kea­hot­els, auk fjölda ann­arra hót­ela og gisti­húsa. Áætlaður fjöldi er um sex hund­rað manns. Með þess­ari vinnu­stöðvun yrðu öll störf undir kjara­samn­ingum Eflingar á hót­elum komin í verk­fall.

  • Verkfall hjá örygg­is­vörslu­fyr­ir­tækjum. Undir boð­un­ina falla fyr­ir­tækin Securitas og Örygg­is­mið­stöð Íslands, auk smærri fyr­ir­tækja. Um er að ræða um fjögur hund­ruð manns.

  • Verkfall hjá ræst­inga­fyr­ir­tækjum. Undir boð­un­ina falla stærstu þrifa­fyr­ir­tæki lands­ins á borð við Sólar og Daga auk minni fyr­ir­tækja. Áætlaður fjöldi á kjör­skrá er um 650 manns.

Fyrri þrjár verk­falls­boð­anir félags­ins voru sam­þykktar með afger­andi meiri­hluta og góðri kjör­sókn. Atkvæða­greiðslur hefj­ast klukkan 12 á hádegi á fimmtu­dag og lýkur klukkan 18 á mánu­dag eftir viku.

Vika frá dómi héraðsdóms

Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari lagði þann 26. jan­úar síð­ast­lið­inn fram miðl­un­ar­til­lögu í miðl­un­ar­til­lögu í kjara­deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins, sem felur í sér að allir félags­menn Eflingar á almennum vinnu­mark­aði munu kjósa um kjara­samn­ing sam­bæri­legan þeim sem önnur félög innan Starfs­greina­sam­bands­ins hafa þegar gert og að samn­ing­ur­inn feli í sér aft­ur­virkar greiðslur frá 1. nóv­em­ber.

Rík­is­sátta­semj­ari sagði á blaða­manna­fund­inum að það hefði krist­all­ast á síð­asta fundi Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins að engin leið væri að frekar sam­tali á milli samn­ings­að­ila að það sem blasti við væru verk­föll og jafn­vel verk­bönn og að aft­ur­virkni í samn­ingum yrði slegin út af borð­inu af hálfu Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Kjörskrá Eflingar inni­heldur kenni­tölur allra atkvæða­bærra félags­manna sem hafa atkvæð­is­rétt í atkvæða­greiðslu um miðl­un­ar­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara.

Vika er síðan Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu að Efling þurfi að afhenda rík­is­sátta­semj­ara félaga­tal sitt. Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, hafði áður lýst því yfir að ef þetta yrði nið­ur­staðan myndi Efling kæra þann úrskurð til Lands­réttar. 

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Ríkissáttasemjari ætlaði að svifta Eflingu bæði samningsrétti og verkfallsrétti með miðlunartillögu sem var alls ekki miðlunartillaga. Héraðsdómur reyndi í raun að svifta Eflingu réttinum til að áfrýja með því að skipa því að afhenda kjörskrána þegar í stað. Eftir þessi ósköp er mikill léttir að Landsréttur hafi stoppað þetta ofbeldi af hálfu opinberra aðila.
    0
  • trausti þórðarson skrifaði
    Dómur beinn var dæmdur einn / dýrt var ævintýri /Aðalsteinn til sátta seinn / situr úti í mýri.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaradeila Eflingar og SA

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár