Á Íslandi viðgengst kvenfyrirlitning og kynþáttafordómar

Kristín Lofts­dóttir, pró­fessor í mann­fræði, svarar því hvað við sjáum á myndum frá Vest­manna­eyjum þar sem Edda Falak var gerð að svartri tröllskessu, auk þess sem gengið var um með tröll í hefð­bundnum klæðum karl­manna í Katar.

Á Íslandi viðgengst kvenfyrirlitning og kynþáttafordómar

Ef við setjum umræður um hin svoköll­uðu tröll í þrett­ánda­gleði ÍBV í sam­hengi við kyn­þátta­for­dóma virð­ast þær end­ur­spegla svipuð mál sem hafa átt sér stað á und­an­förnum árum þegar birt­ing­ar­myndir ras­isma hafa verið gagn­rýndar í íslensku sam­fé­lagi. Við sjáum þannig að ein­hverju leyti svipuð þemu í við­brögðum ólíkra aðila við þessu máli, það er að ras­ismi hafi ekki verið áætl­unin; að þetta séu ekki for­dómar og að fólk eigi ekki að vera svona hör­undsárt. Mik­il­vægur þáttur í ras­isma á Íslandi hefur einmitt verið að stað­setja landið utan við sögu kyn­þátta­for­dóma, en hér og erlendis aðskilur fólk sig einnig oft frá for­dómum með því að reyna að smætta þá í við­horf eða ásetn­ing ákveð­inna per­sóna. Rasismi er miklu meira heldur en að ein­hver ein­stak­lingur ætl­aði að gera eitt­hvað; hann snýst jafn­framt um kerf­is­bundnar birt­ing­ar­myndir ákveð­inna hópa og mis­rétti sem þeir verða fyrir. 

„Rasismi er miklu meira heldur en að ein­hver ein­stak­lingur ætl­aði að gera eitt­hvað.“

Það er fyrir löngu síðan kom­inn tími á að horfast í augu við að á Íslandi við­gengst hvort tveggja kven­fyr­ir­litn­ing og kyn­þátta­for­dómar, sem skar­ast í mjög mörgum til­fellum. Við þurfum að spyrja hvernig þessar fígúrur líta út ef það er upp­haf­s­punktur umræð­unnar. Í því ljósi, hvaða merk­ingu hefur dökka fígúran með eldrauðar og þykkar varir? Það er sér­lega slá­andi þegar haft er í huga að fígúran á að tákna konu sem hefur reynt að vekja athygli á for­dómum og þegar orðið fyrir áreiti og hat­urs­orð­ræðu vegna þess.  

Það er líka mik­il­vægt að und­ir­strika að á und­an­förnum árum hafa for­dómar í garð múslima verið sterk birt­ing­ar­mynd kyn­þátta­for­dóma, ásamt skrípa­myndum af dökku fólki. Hin fígúran er eins og stað­al­mynd af múslima, þannig að sú fígúra talar líka inn í langa sögu for­dóma. Hér þarf upp­haf­s­punktur umræð­unnar einnig að vera sá að for­dómar í garð múslima eru veru­leiki á Íslandi og að fígúran talar inn í sam­fé­lag þar sem múslimar upp­lifa hat­ur­orð­ræðu og úti­lokun.  

Hvernig ætla þeir sem standa fyrir þessu að bregð­ast við þessum tveimur fígúrum í þessu ljósi? Og hvað ætla þeir að gera í fram­tíð­inni til þess að þessi skemmtun verði ekki ein­fald­lega aðgengi­legur vett­vangur til að tjá for­dóma og ýta undir hatur í garð ólíkra hópa og eða ein­stak­linga – burt­séð frá hvað þeir sem koma að þessu ætl­uðu sér?

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Furðulegast af öllu er að Vestmannnaeyingar skuli koma svona fram. Þeir þurftu að flýja eyjuna sína fyrir 50 árum vegna eldgoss. Voru flóttamenn rétt eins og flestir múslimar á Íslandi. Meirihlutinn flutti aftur heim og heldur uppi minningunni um hamfarirnar. Hafa þeir gleymt því hvernig var að missa heimili sitt og hvernig fólk á meginlandinu tók á móti þeim um miðja nótt. Ég gleymi því ekki þegar ég var vakin þessa nótt og mamma, með fimm börn á heimilinu, hafði upp á kunningjafjölskyldu og bauð húsaskjól. Við þrengdum að okkur og það var svo sjálfsagt. Búa engir múslimar í Vestmannaeyjum? Viðgengst ekki kynferðisofbeldi í Vestmannaeyjum?
    2
  • HH
    Hildur Harðardóttir skrifaði
    Þessi fordómatröll minna mig á rándýr. Þau hrekja eitt dýrið úr hjörðinni og ráðast síðan á það. Svona fara tröllin að, ráðast á einn í einu. Við konur og karlar verðum að standa saman sem einn maður gegn þessum tröllum
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Því miður er þetta sorglega satt.
    0
  • Ingimundur Stefánsson skrifaði
    Hví undanskilur Ingibjörg Dögg og mannfræðiprófessorinn grasserandi miðaldra-karlmanna-fyrirlitninguna?
    -6
    • JHP
      Jónas Helgi Pálsson skrifaði
      Hvaða "miðaldra-karlmanna-fyrirlitning" skyldi það vera?
      1
    • Thorgerdur Sigurdardottir skrifaði
      Þađ er ekki til neitt sem heitir miđaldra karlmanna fyrirlitning. Aftur à mòti er algengt ađ miđaldra karlar sèu fullir af fyrirlitningu gagnvart konum ,innflytjendum og samkynhneigđum vegna þess ađ þeir hafa alist upp viđ dýrkun à eigin tilveru og hafa àkveđiđ(mannfyrirlitning er àkvörđun) ađ þeir einir sèu guđs ùtvöldu....
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár