999. spurningaþraut: Og á morgun birtist þúsundasta þrautin, ef guð lofar

999. spurningaþraut: Og á morgun birtist þúsundasta þrautin, ef guð lofar

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að sjá á mynd­inni hér að ofan? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Donbass heitir svæði sem er innan landamæra ... hvaða ríkis?

2.  Ingi Björn Alberts­son var á sínum tíma fyrst og fremst kunnur sem iðk­andi hvaða íþróttar?

3.  En hann sat líka á þingi 1987-1995 fyrir þrjá flokka. Nefnið tvo þeirra til að fá stig. Ef þið hafið alla þrjá hár­rétta skul­uði sæma ykkur lár­við­ar­stigi.

4.  Enid Blyton var rit­höf­undur. Hvers konar bækur skrif­aði hún?

5.  Í hvaða heims­álfu er Zambezi fljótið?

6.  Hver skrif­aði bók­ina um Gargantúa og Panta­gr­úel?

7.  Hvaða þjóð vann bronsið á HM í fót­bolta karla í des­em­ber síð­ast­liðnum?

8.  Hvað heitir lang­fræg­asti og besti fót­bolta­karl þeirrar þjóðar síð­ast­lið­inn ára­tug?

9.  Eftir þrjá daga lýkur að kín­versku tíma­bili ári til­tek­ins rán­dýrs af stærra tag­inu. Frá seinni hluta 2022 hefur sem sé verið í Kína ár ... hvaða dýrs?

10.  Dýrið sem nú tekur við í kín­verska tíma­tal­inu er talið heldur mein­laus­ara en það sem nú er að kveðja. Vinalegt dýr, en reyndar finnst sumum það hálf­gert mein­dýr, þótt sú sé ekki raunin á Íslandi - ennþá. Eftir þrjá daga tekur við í Kína ár ... hvað dýrs?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir karl þessi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Úkraínu.

2.  Fótbolta.

3.  Ingi Björn sat á þingi fyrir Borg­ara­flokk­inn, Frjáls­lynda hægri flokk­inn („hægri“ verður að vera með) og loks Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

4.  Barna­bækur.

5.  Afríku.

6.  Rabelais.

7.  Króatía.

8.  Modric.

9.  Tígris­dýrs.

10.  Kanínu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er eitt af Apollo-tungl­förum Banda­ríkj­anna. „Geimfar“ dugar ekki.

Á neðri mynd­inni er Thomas Markle, en eft­ir­nafn hans dugar. Hér að neðan má sjá hann á á sömu mynd, ásamt dóttur sinni Meghan.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár