Þurfum við nokkuð meira?

„Veist þú hvernig við skilgreinum hamingju í okkar menningu?“ spyr Visvaldis blaða­manninn.

Mér var boðið hingað til lands af vina­hópnum. „Kemurðu með?“ spurðu karlarnir. Fyrsta giggið var í fisk­vinnslu í Sandgerði, árið 2006 ef ég man rétt.

Ég entist í einn mánuð í þeim sóðaskap áður en ég hreinlega hljópst á brott af þessu landi. Hefur þú einhvern tímann unnið 12 til 14 tíma vaktir sex daga í viku fyrir 140 til 150 þúsund krónur í laun? Finnst þér það vera í lagi?

Næst komum við til Íslands í apríl árið 2008. Eftir eina viku fengum við stöður hjá Ístaki byggingar­verktaka við að reisa háskóla­byggingar rétt fyrir hrunið. Svo skall hrunið á árið 2009. Manstu það? Við neyddumst til að fara á atvinnu­leysis­bætur á þessum tíma. Eftir það fór maður að bera út blöð.

Veistu hvað, það er allt í lagi hér á þessu landi. Veist þú hvernig við skilgreinum hamingju í okkar menningu? Hamingjan er að vera laus við sárs­aukann. Núna er ég til dæmis að þjást af bakverkjum og kemst ekki til heimilis­læknisins því hann er veikur. Ég fékk tíma fyrir þann 10. nóvember og fór í milli­tíðinni á Lækna­vaktina. Það var ekkert gagn af heim­sókninni, ég fékk ávísað Parkódíni en það slær ekki á bakverkina.

Stundum fer ég í messu í kaþólsku kirkjunni. Við Lettar erum kaþólikkar. Ég er ekki bókstafs­trúaður, en það kemur samt sem áður með árunum að maður endur­túlkar tilvist sína. Þannig kemur trúin smátt og smátt.

Það er ekki að ástæðu­lausu að ég sagði áðan að hamingjan er að vera laus við sárs­aukann. Þegar sárs­aukinn kemur þá er maður ráðalaus. Sjúk­leikinn eltir okkur. Hún konan mín í Ríga vinnur á spítala og nældi sér nýlega í krabba­mein. Veit ekki hvað varð til þess, aldrei hefur nokkuð slíkt komið fyrir áður. Efna­meðferðin gengur erfiðlega, henni líður illa. Ég veit ekki hvort hún mun komast í gegnum þetta. Hún er svo falleg núna, með ekkert hár.

Af hverju fór ég frá Ríga? Ja, hvað er svo sem að gera í þessu fjárans Lettlandi? Allt er að falla í mola þarna, allt gjör­spillt. Síðan ég flutti í burtu hef ég heimsótt landið tvisvar eða þrisvar. Það er ekkert vit í því að vera á stans­lausu flakki til og frá. Ég er fráskilinn, þótt við konan viðhöldum tengslum. Ég tala við fjöl­skylduna í gegnum Messenger á hverjum degi.

Fyrir einhverjum árum drattaðist dóttir mín hingað til lands til að vinna í ræstingum. Mér tókst með naumindum að sannfæra hana um að snúa aftur til baka til að klára háskóla­námið. Hún er búin að útskrifast úr lögfræði núna og allt komið í lag. Hún vinnur í stóru fyrirtæki á sviði gasiðnaðar. Stöðugt fyrirtæki, stöðug laun. Þurfum við nokkuð meira?

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár