Hvítrússneski athafnamaðurinn Alexander Moshensky segir í viðtali við Stundina að hann sé ekki með neina starfsmenn á Íslandi. „Ég er ekki með neina starfsmenn á Íslandi.“ Hann segist enn frekar ekki eiga óbeina hluti í neinum íslenskum fyrirtækjum.
Stundin fjallaði í síðasta tölublaði sínu um breska félagið Max Credit Investments sem var áður í eigu Alexanders Moshenskys en er nú eign íslensks fyrirtækis sem Karl Konráðsson á. Karl hefur um árabil unnið fyrir Alexander Moshensky, eftir að hafa kynnst honum þegar hann var starfsmaður MP Banka í Austur-Evrópu á árunum fyrir hrunið. Moshensky hefur í gegnum árin verið sagður einn af þremur áhrifamestu auðmönnum Hvíta-Rússlands, landi sem stýrt er af einræðisherranum Alexander Lukashenko. Hann hefur verið stórtækur kaupandi að íslenskum uppsjávarfiski síðastliðin 20 ár og er heiðurskonsúll Íslands í Hvíta-Rússlandi.
Athugasemdir (1)