Vilja opna augu almennings fyrir neyð kvenna í vændi

Bryn­hildur Björns­dóttir, fjöl­miðla­kona og Eva Dís Þórð­ar­dóttir, leið­bein­andi hjá Stíga­mótum segja að sam­fé­lagið átti sig ekki á ömur­legri stöðu þeirra kvenna sem neyð­ist til að vera í vændi og að flestar þeirra beri af því var­an­legan skaða. Í þætt­inum Eigin Konur segja þær frá bók um vændi á Íslandi sem kemur út innan skamms. Í henni eru meðal ann­ars birtar reynslu­sögur sex kvenna sem hafa verið í vændi.

Vilja opna augu almennings fyrir neyð kvenna í vændi
Eva Dís Þórð­ar­dóttir og Bryn­hildur Björns­dóttir vildu gefa kon­unum sem hafa verið í vændi tæki­færi til að segja sínar sögur en ekki síður reyna að opna augu almenn­ings fyrir við­kvæmri og oft hættu­legri stöðu sem konur sem stunda vændi séu í.

„Sam­fé­lagið virð­ist ekki átta sig á neyð­inni sem veldur því að konur selja aðgang að lík­ama sínum. Að þessu sé leyft að grass­era í okkar sam­fé­lagi sem er svona lítið, að það við­gang­ist að fólk í neyð, veikar konur, fátækar konur neyð­ist til að grípa til slíkra ráða,“ segir Eva Dís Þórð­ar­dóttir. Hún vinnur hjá Stíga­mótum og hefur þar umsjón með svoköll­uðum Svana­hópum sem eru stuðn­ings­hópar fyrir þolendur vændis. Eva Dís segir að kon­unum gef­ist þar tæki­færi til að tala um afleið­ingar vændis og vinna úr áföllum því tengdu. Eva Dís segir að hug­myndin um að skrifa bók með reynslu­sögum kvenna af vændi hafi kviknað árið 2019 þegar hún var með hópnum og ein kvenn­anna spurði hvar þær gætu sagt sögur sínar. „Sumar þessar sögur sitja veru­lega á sál­inni okkar, inni í tauga­kerf­inu okkar. Við erum að fá jafn­vel svona leiftur, svona „flashback“ af því að lang­flestar okkar ef ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár