Viðar hafði ekki heimild stjórnar Eflingar fyrir viðskiptunum við Andra

Í lög­fræði­á­liti Odds Ást­ráðs­sonar fyrir stjórn Eflingar kemur fram að Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri félags­ins, hafði ekki heim­ild til að stofna til við­skipta við Andra Sig­urðs­son fyrir hönd félags­ins árið 2019.

Viðar hafði ekki heimild stjórnar Eflingar fyrir viðskiptunum við Andra
Hafði ekki heim­ild stjórnar Viðar Þor­steins­son samdi við Andra Sig­urðs­son um vinnu sem 13,3 millj­ónir voru greiddar fyrir án þess að hafa fyrir því sam­þykki stjórnar Eflingar.

Viðar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eflingar stétt­ar­fé­lags, hafði ekki heim­ild stjórnar félags­ins fyrir þeim við­skiptum sem hann stofn­aði til við Andra Sig­urðs­son og fyr­ir­tæki hans, Sigur vef­stofu, fyrir hönd félags­ins á árinu 2019. Þetta er nið­ur­staða lög­fræði­á­lits sem sitj­andi stjórn Eflingar lét gera á við­skiptum félags­ins. Þá fór Viðar einnig út fyrir heim­ildir með útgjöldum til verk­efna vegna heima­síðu félags­ins á árinu 2020.

Formaður Eflingar, Agnieszka Ewa Ziól­kowska, óskaði fyrir hönd stjórnar félags­ins eftir því 15. mars síð­ast­lið­inn við lög­manns­stof­una LGM slf. og Odd Ást­ráðs­son lög­mann að gerð yrði lög­fræði­leg úttekt vegna við­skipta Eflingar við Sigur vef­stofu, fyr­ir­tækis Andra Sig­urðs­sonar. Óskað var eftir úttekt á því hvort starfs­menn Eflingar hefðu haft heim­ild til að skuld­binda félagið með sam­þykkt og greiðslu reikn­inga Sigur vef­stofu, svo sem gert var.

Frá 12. nóv­em­ber 2018 til 9. ágúst 2021 gaf Sigur vef­stofa út 25 reikn­inga vegna þjón­ustu við Eflingu. Sam­an­lögð fjár­hæð reikn­ing­anna, með virð­is­auka­skatti, er 23.446.354 krónur. Að baki reikn­ing­unum lá vinna sem nam 1.721,5 vinnu­stundum, þar sem inn­heimtar voru 10.900 krónur fyrir hverja vinnu­stund. Fram kemur að flesta daga hafi Andri unnið sléttar 8 vinnu­stundir í þágu Eflingar.

Umboðið náði aðeins til ársins 2018

Stjórn Eflingar sam­þykkti að „greiða Andra Sig­urðs­syni (Sigur vef­stofa ehf.) fyrir vinnu hans við vef­hönnun og tengd verk­efni fyrir Eflingu“ hinn 23. ágúst 2018. Var til­greint að sá samn­ingur gilti frá 1. sept­em­ber 2018 til 31. des­em­ber sama ár og fæli í sér 24 klukku­stunda vinnu á viku. Samkvæmt sam­þykkt stjórnar hefði Andri fengið greiddar 4.447.200 krónur fyrir umrædda vinnu. Hins vegar héldu við­skipti Eflingar við Andra áfram til árs­loka 2019 án þess að stjórn félags­ins hafi end­ur­nýjað heim­ild eða umboð þar um.

Í fund­ar­gerð stjórnar 23. ágúst 2018 kemur fram að sam­þykkt var nýtt verk­lag við aðkomu stjórnar að fjár­málum félags­ins. Stjórn myndi sam­þykkja fjár­hags­á­ætlun sem gilti eitt ár fram í tím­ann og hefðu for­maður félags­ins og stjórn­endur þess heim­ild til að vinna innan þess ramma. Færi kostn­aður fram úr áætlun væri skylt að taka það upp á stjórn­ar­fundi. Þá kom fram í fund­ar­gerð stjórnar, dag­settri 20. sept­em­ber 2018, í umræðum um að Viðari yrði veitt pró­kúra til úttekta og sam­þykktar úttekta af reikn­ingum félags­ins að vara­for­maður stjórnar árétt­aði að stjórn félags­ins þyrfti eftir sem áður að sam­þykkja „allar meiri háttar upp­hæðir“.

Vinnan þegar hafin þegar samningur var gerður

Þann 25. júní 2019 und­ir­rit­uðu Andri, fyrir hönd Sigurs vef­stofu, og Viðar, fyrir hönd Eflingar, samn­inga um að Andri myndi inna af hendi vinnu við hönnun og þróun vef­síðu og einnig vinnu á sviði upp­lýs­inga­tækni, sem næmi 40 vinnu­stundum á viku. Ekki er til­greint til hversu langs tíma sá samn­ingur átti að taka en til­greindir eru ákveðnir „milesto­nes“ eða áfangar í verk­efn­inu. Sá fyrsti var 17. maí árið 2019, rúmum mán­uði áður en samn­ing­ur­inn var gerður, og sá síð­asti 12. júlí 2019. Í samn­ingnum kom þó fram að und­ir­rita þyrfti hann áður en Andri gæti hafið vinnu við verk­efnið en sem fyrr segir var þó til­greint í samn­ingnum að ákveð­inn áfangi átti að vera búinn fimm vikum áður.

„Með því rækti stjórn ekki skyldur sínar til að hafa hlið­sjón og eft­ir­lit með fjár­reiðum félags­ins“
Oddur Ást­ráðs­son
lög­maður, um aðgerð­ar­leysi stjórnar Eflingar þegar stjórn­inni bár­ust upp­lýs­ingar um fjár­út­lát vegna vinnu Andra Sig­urðs­sonar.

Stjórn var því lítt eða ekki upp­lýst um vinnu Andra og gaf ekki heim­ild fyrir þeim fjár­út­látum sem henni fylgdu. Samkvæmt svörum við fyr­ir­spurn fund­ar­manna eftir kynn­ingu á árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2019, sem bár­ust 7. maí 2020, nam kostn­aður vegna end­ur­bóta á heima­síðu Eflingar um 13,3 millj­ónum króna árið 2019. Hins vegar verður ekki séð á fund­ar­gerðum að stjórn hafi gert athuga­semdir við kostn­að­inn. „Með því rækti stjórn ekki skyldur sínar til að hafa hlið­sjón og eft­ir­lit með fjár­reiðum félags­ins,“ segir í lög­fræði­á­lit­inu.

Viðar fór á svig við samþykkt stjórnar

Í upp­færðri fjár­hags­á­ætlun Eflingar fyrir árið 2020, sem útbúin var 16. júní sama ár, kemur fram að ráð­gert sé að kostn­aður vegna heima­síðu og vefs verði krónu 11.622.108 á árinu. Samkvæmt árs­reikn­ingi félags­ins fyrir sama ár, sem kynntur var á stjórn­ar­fundi 29. apríl 2021, var raun­kostn­aður vegna liðs­ins 23.228.562 krónur, því sem næst tvö­falt það sem fram kom í sam­þykktri fjár­hags­á­ætlun fyrir árið 2020. Stjórn gerði ekki athug­semdir við þann kostnað svo séð verði og brást þar með skyldum sínum. Rétt er að árétta að annar kostn­aður en við­skipti við Andra og Sigur er þar undir en reikn­ingar Sigurs vef­stofu námu um 5,6 millj­ónum króna það ár.

Í lög­fræði­á­lit­inu kemur fram að lausund hafi verið á verk­lagi og hlut­verka­skipt­ingu milli stjórnar og fram­kvæmda­stjóra. Stjórn­ar­sam­þykkt um fyr­ir­komu­lag ákvarð­ana um fjár­út­lát hafi þenni ekki verið fylgt fyrr en á öðru ári eftir sam­þykkt­ina og stjórn hafi ekki fylgt því eftir að rekstur væri innan áætl­unar. „Svo virð­ist sem fram­kvæmda­stjóri hafi á sama tíma­bili litið svo á að hann gæti, þrátt fyrir stjórn­ar­sam­þykkt­ina, ákveðið hvaða verk­efni skyldu unnin og hvaða fjár­munum skyldi varið til þeirra án þess að bera það undir stjórn félags­ins, jafn­vel þó um væri að ræða fjár­út­lát sem teld­ust ekki til dag­legs rekstrar,“ segir í lög­fræði­á­lit­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (18)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Ég hélt að heiðarleiki væri ykkar aðalsmerki. Tek ekki þátt í svínslegri umfjöllun. Segi hér með upp Stundinni
    0
  • BG
    Birna Gunnarsdóttir skrifaði
    Verst að það eru ekki veitt sérstök verðlaun fyrir kranablaðamennsku, höfundar greinarinnar væru vel að þeim komnir.
    1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það er fráleitt að borga kr. 10.900 á tímann fyrir svo mikla vinnu. Væri í lagi fyrir nokkurra tíma útkall. Hámark 5000 kall eftir það.
    0
  • SBR
    Sæþór Benjamín Randalsson skrifaði
    And to think I've paid for Stundin and defended Helgi's persecution to those in my life previously. This is a hit piece, based on a hit piece. If there was any journalistic integrity, rather than dissecting just the final second in time, y'all would have looked into the events leading up to this and wonder why it took the acting forman two tries to get her custom ordered dirt. Why is a random lawyer more believable than an actual international auditing firm?

    The acting chairman has made it so crystal clear that she has a grudge against Sólveig and Viðar that even a beginner journalist could have discovered this fact. The very same individual told me herself that these kind of results can be custom ordered by the person paying for them, to get any outcome you want.

    The really outrageous thing is to give meeting details of our union away without board approval to someone who's family is diametrically apposed to everything Efling and it's members stand for. I have no doubt she's deposited useful information to the hands of our enemies that will be used in the next contract negotiations.

    And all this while we were engaging in the SGS conference. Her actual job as chair would have been to watch the interview between the two candidates for SGS chair (she didn't) and then to prepare those of us being sent to Akureyri on the goals there and if there are people we should support or appose. Instead, she was obsessed with this revenge fantasy, delayed the board's vote for an early transfer of power, silenced council members at the board illegally, helped silence resolutions illegally, and otherwise made a giant baby of herself when we needed leadership.

    What a rag.
    2
    • Þór Jóhannesson skrifaði
      Nailed it 👌
      -1
    • GE
      Guðmundur Einarsson skrifaði
      Aside from the "rag" point, I fully agree with your assessment of the major problems within the "Efling" union and the current management.
      -1
  • Viðar Magnússon skrifaði
    Helgi Seljan að lesa þessa grein er eins og að lesa DV
    1
  • RB
    Reynir Böðvarsson skrifaði
    Er Stundin þá eftir allt saman flokksblað hægri krata? Þá líður ekki langur tími í uppsögn áskriftar minnar.
    5
    • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
      Það lengi legið í augum uppi.
      -1
    • Þór Jóhannesson skrifaði
      Ekki bara hægri krata heldur eru margir þessara gaura sem eru að búa til spunann fyrrum ung VG liðar sem eru birtir út í tilkomu Sósíalistaflokksins og að hættu VG og krata þá fara þeir í mannorðsmorðsherferðir til að grafa undan fólki og æru þess.
      -2
    • GE
      Guðmundur Einarsson skrifaði
      Hvernig lest þú það. Hvar er þessi "hægri krata" tilvitnun?
      2
  • Steinþór Grímsson skrifaði
    Eruð þið að fara með fleipur?
    “„... Agnieszka Ewa Ziólkowska hafi áréttað eitthvað á stjórnarfundi meira en hálfu ári áður en hún tók sæti í stjórn! ...„
    9
  • Þór Jóhannesson skrifaði
    Samkvæmt aðkeyptu áliti Odds Ástráðssonar aðkeypts lögmanns Agnieszka Ewa Ziól­kowska. Hinsvegar gerði lögfræði fyrirtækið Deloitte, að ósk sömu Agniezku, hlutlaust álit á þessu sama máli og komust að hinu gagnstæða fyrir nokkrum dögum. Hún hefur því greinilega ekki sætt sig við þá niðurstöðu og því leitað eftir einhverjum sem væri til í að finna eitthvað fyrir hana. Come on ppl. hversu lengi ætum við að sitja hjá og sætta okkur hið svona glórulausar persónuárásir á eina fólkið sem þorir að spyrna fæti við kúgun valdastéttarinnar?

    Úff, Helgi Seljan svona vinnubrögð eru ekki beint til að styrkja ímynd þína sem besta og hlutlausasta rannsóknarblaðamann þjóðarinnar eftir flutninginn yfir á Stundina. Skil ekkert í manni eins og þér að setja nafn sitt undir svona spuna.
    8
  • Sveinn Hansson skrifaði
    Skíturinn, frændhyglin og viðbjóðurinn er um allt.
    Þessir svokölluðu sósíalistar eru ekki hótinu skárri en hið sótsvarta íhald og kapítalistahyskið.
    -6
    • Valur Bjarnason skrifaði
      https://stundin.is/grein/15062/thessi-fengu-ad-kaupa-i-islandsbanka/
      0
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Mér sýnist að Agníeska og aðrir stjórnarmenn Eflingar hafi samþykkt að kaupa vinnu af Andra Sig., vitlegt sem það hefir verið. Einnig hafi hún og aðrir fundarmenn á Aðalfundi Eflingar samþykkt ársreikninga félagsins athugasemdalaust og þar með þær penigaupphæðir sem Andra var greitt fyrir vefsíðugerð og fleira. Ég fæ ekki betur séð en að þar með sé þetta mál úr sögunni.
    11
    • Sveinn Hansson skrifaði
      Nei, aldeilis ekki.
      -3
    • ÁHG
      Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
      Rétt hjá þér Jóhannes,fyrir utan að Agnígska virðist hafa reinslu í að selja sig og skoðanir sínar hæðstbjóðanda auðvaldinu í þessu máli .
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár