Þetta þurfa hluthafar að gera til að fá upplýsingar um leynda eigendur Íslandsbanka

Flest bendir til að hlut­haf­alisti Íslands­banka verði ekki birtur eftir opinberum leiðum. Íslands­banki segir að birting listans brjóti gegn lögum. Þar af leiðandi mun hið opinbera ekki vera milli­liður í því að greint verði frá því hvaða aðilar keyptu hlutabréf í Íslands­banka í síðustu viku. Útboðið hefur verið harðlega gagnrýnt, meðal annars af Kristrúnu Frosta­dóttur, þingkonu Samfylk­ing­ar­innar. Banka­sýsla Íslands birti skýrslu um útboðið í morgun þar sem fram kemur að 140 óþekktir einka­fjárfestar hafi keypt 30 prósent bréfanna í útboðinu.

Upplýsandi skýrsla
Upp­lýsandi skýrsla Banka­sýsla rík­is­ins, sem Jón Gunnar Jónsson stýrir, birti upp­lýsandi skýrslu um útboð rík­is­ins í Íslands­banka fyrr í dag.Þar kom fram að 140 einka­fjár­festar hefðu tekið þátt í útboði Íslands­banka.

Allir hluthafar Íslands­banka, sama hversu mikið þeir eiga í bankanum, geta bókað tíma í bankanum til að skoða hluthafalista bankans. Þetta þurfa þeir að gera í gegnum fjárfesta­tengil bankans samkvæmt svari frá Íslands­banka: „Öllum hluthöfum er heimilt að sjá hluthafalista Íslands­banka samkvæmt lögum um hluta­félög. Hluthöfum er bent á að hafa samband við fjárfesta­tengil bankans í netfangið ir@islandsbanki.is til að bóka tíma,“ segir í svarinu frá bankanum. 

Kallað hefur verið eftir því á Alþingi að íslenska ríkið birti opinber­lega upplýsingar um það hvaða ríflega 200 aðilar það voru sem keypti hlutabréf í Íslands­banka af íslenska ríkinu fyrir tæpa 43 milljarða króna í síðustu viku. Hluta­bréfin voru seld með rúmlega tveggja milljarða króna afslætti.

Aðferðin sem viðhöfð var við söluna var svokallað tilboðs­fyrir­komulag en það virkar þannig að ráðgjafar stjórn­valda á fjármála­markaði safna saman aðilum sem taldir eru „hæfir fagfjárfestar“ til að kaupa hluta­bréfin. Þetta er annað fyrir­komulag …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslandsbankasalan

FréttirÍslandsbankasalan

Bjarni segir það Alþingi að kenna að hann hafi ekki gætt að hæfi sínu

Bjarni Benediktsson, fyrr­verandi fjármála- og efnahags­ráðherra, segir að hann hafi gert ráð fyrir blessun þingsins á að ekki þyrfti að gæta að hæfi hans gagnvart hverjum og einum kaupanda á Íslands­banka í mars 2022. Þinginu hefði átt að vera augljóst að ekki væri hægt að fylgja hæfis­reglum í sölu­meðferðinni sem valin var. Bjarni sat fyrir svörum á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í dag.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár