Segir vændi „rústa“ konum í neyslu

Ung kona sem er á bata­vegi eftir að hafa verið háð ópíóðum segir algeng­ara en fólk heldur að giftir menn sem ekki séu í neyslu kaupi vændi af ungum konum í ópíóða­neyslu og nýti sér þannig neyð þeirra. Hún segir hræði­legt að fylgj­ast með því hvað þeir hafi mikil völd yfir konum í afar við­kvæmri stöðu sem sam­fé­lagið vilji helst ekki vita af.

Segir vændi „rústa“ konum í neyslu
Konan seg­ist oft hafa farið inn í hættu­legar aðstæður til að verða sér úti um efni. Slíka neyð nýti sumir karl­menn sér og hafi „rosa­leg“ völd yfir konum sem séu í afar við­kvæmri stöðu. Mynd: Shutterstock

Konan sem er í við­tali hjá Eddu Falak í hlað­varps­þætt­inum Eigin Konur seg­ist hafa átt margar vin­konur sem séu fastar í vændi og að karl­menn nýti sér neyð þeirra. Flestar þeirra séu mjög veikar, sér­stak­lega þær sem séu háðar ópíóðum því að þær þurfi skammt­inn sinn dag­lega og stundum oft á dag til að forð­ast frá­hvörf sem hún segir vera hræði­lega erfið. Því grípi margar þeirra til alls kyns örþrifa­ráða til að „lifa dag­inn af“. Margar stundi vændi til að fjár­magna neysl­una. „Þetta rústar þeim og maður horfir uppá þær verða að engu,“ segir konan sem er nú á góðum bata­vegi eftir að hafa verið háð ópíóðum í nokkur ár. Á því tíma­bili seg­ist hún hafa búið um tíma á göt­unni, í athvörfum fyrir heim­il­is­laust fólk og flakkað á milli íbúða vina og kunn­ingja í leit að skjóli.  

Leiðirnar til að verða sér úti um efni oft skelfilegar 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár