Máli Aðalsteins vísað frá: Hæstiréttur tekur ekki efnislega afstöðu

Hæsti­réttur hefur vísað frá kæru Aðal­steins Kjart­ans­sonar á hendur lög­reglu á Norð­ur­landi eystra. Telur Hæsti­réttur að Aðal­steini hafi ekki verið heim­ilt að áfrýja nið­ur­stöðu Lands­réttar. Lögmaður Aðal­steins segir koma til greina að vísa mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

<span>Máli Aðalsteins vísað frá:</span> Hæstiréttur tekur ekki efnislega afstöðu
Á erindi til Strass­borgar Lögmaður Aðal­steins Kjart­ans­sonar, blaða­manns Stund­ar­innar, telur til­efni til þess að vísa máli hans til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Hæsti­réttur vís­aði í dag frá kæru Aðal­steins Kjart­ans­sonar, blaða­manns Stund­ar­innar, á nið­ur­stöðu Lands­réttar í máli hans gegn Lög­regl­unni á Norð­ur­landi eystra. Aðal­steinn kærði ákvörðun lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra sem veitti honum rétt­ar­stöðu sak­born­ings og hugð­ist kalla hann til skýrslu­töku vegna umfjöll­unar hans um skæru­liða­deild Samherja. Hér­aðs­dómur Norð­ur­lands eystra úrskurð­aði upp­haf­lega að lög­reglu hefði verið óheim­ilt að veita Aðal­steini rétt­ar­stöðu grun­aðs manns en Lands­réttur vís­aði þeim dómi frá. Aðal­steinn áfrýj­aði þeim úrskurði til Hæsta­réttar sem nú hefur birt ákvörðun sína.

Frávísun Hæsta­réttar ger­ist sama dag og dóm­nefnd Blaða­mann­verða­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands til­kynnti að Aðal­steinn væri til­nefndur til blaða­manna­verð­launa árs­ins 2021, meðal ann­ars fyrir umfjöllun um téða skæru­liða­deild Samherja.

Telur ekki heimilt að kæra úrskurð Landsréttar

Í dómi Hæsta­réttar kemur fram sú lög­skýr­ing að Aðal­steinn hafi ekki haft heim­ild til að kæra úrskurð Lands­réttar til Hæsta­réttar, þar eð kæru­heim­ild sú sem stuðst var við og fram kemur í lögum um saka­mál hafi verið verið skýrð svo að hún tæki almennt aðeins til end­an­legra úrskurða um frá­vísun mála sem höfðuð hefðu verið með ákæru. Kæru­heim­ild­inn næði hins vegar ekki til úrskurða Lands­réttar um frá­vísun kæru vegna rannóknar­úr­skurð eða úrskurða um rétt­ar­fars­at­riði.

Í dómi Hæsta­réttar segir að hin kærða nið­ur­staða Lands­réttar hafi ekki falið í sér end­an­legar lyktir saka­máls heldur þá nið­ur­stöðu að dóm­stólar hefðu ekki vald til þess að kveða á um lög­mæti rann­sókn­ar­at­hafna lög­reglu á þessu stigi saka­mála­rann­sóknar. Ekki væri því heim­ild fyrir hendi til að kæra úrskurð­inn til Hæsta­réttar og var mál­inu því vísað frá.

Undanþáguákvæði eru í lögum er lúta að blaðamönnum

Hæsti­réttur tekur því ekki efn­is­lega afstöðu til þess hvort Lög­regl­unni á Norð­ur­landi eystra hafi verið heim­ilt að veita Aðal­steini rétt­ar­stöðu grun­aðs manns og kalla hann til yfir­heyrslu, ekki frekar en Lands­réttur gerði. Í úrskurði Hér­aðs­dóms kom hins vegar fram að í almennum hegn­ing­ar­lögum sé und­an­þágu­á­kvæði er snúi að þeim greinum lag­anna sem lög­reglan vill maina að Aðal­steinn hafi gerst brot­legur við, það er brot á frið­helgi einka­lífs. Lögin eigi ekki við þegar um sé að ræða almanna- eða einka­hags­muni. „Er ljóst að þar er meðal ann­ars átt við mót­töku blaða­manna á gögnum sem inni­halda upp­lýs­ingar sem eiga erindi við almenn­ing,“ sagði í dómi Hér­aðs­dóms. Enn fremur sagði í dómnum að „blaða­maður verði ekki tal­inn brot­legur við 228. gr. og/eða 229. gr. almennra hegn­ing­ar­laga fyrir það eitt að mót­taka og sjá við­kvæm per­sónu­leg gögn sem ekki varða almenn­ing, enda er það þáttur í starfi blaða­manna að mót­taka ýmis gögn og ábend­ingar sem þeir meta hvort eigi erindi við almenn­ing.“

Í grein­ar­gerð lög­reglu, bæði fyrir hér­aðs­dómi og fyrir Lands­rétti kom fram að þeir blaða­menn sem fjöll­uðu um skæru­liða­deild Samherja, þar á meðal Aðal­steinn, væru grun­aðir um að hafa tekið á móti eða deilt með öðrum kyn­ferð­is­legu efni af Páli Stein­gríms­syni, skip­stjóra Samherja og með­limi í yfir­lýstri „skæru­liða­deild“ útgerð­ar­innar. Páll kærði hins vegar ekki  slík brot til lög­reglu og lög­regla hefur ekki sýnt væri fram á að slíkt efni hafi farið í dreif­ingu.

Tilefni til að fara með málið fyrir Mannréttindadómstólinn

Gunnar Ingi Jóhanns­son

Gunnar Ingi Jóhanns­son, lög­maður Aðal­steins, segir nið­ur­stöðu Hæsta­réttar von­brigði þó hún hafi ekki verið með öllu ófyr­ir­séð, eftir nið­ur­stöðu Lands­réttar. „Eins og fjallað er um í dómi Hæsta­réttar þá töldum við þetta kær­an­legt, hverju sem liði ein­hverjum fyrri for­dæmum. Nið­ur­staðan felur hins vegar í sér að skýrslutakan af Aðal­steini hljóti að fara fram með ein­hverjum hætti. Til­gangur hennar er hins vegar orð­inn afskap­lega tak­mark­aður eftir mála­til­búnað lög­reglu og það sem fram hefur komið þar. Miðað við það sem komið hefur fram í mál­inu virð­ist manni ennþá minna til­efni nú en áður til þess að kalla Aðal­stein og aðra blaða­menn sem málið varðar til skýrslu­töku.“

Spurður hvort til greina komi að vísa mál­inu til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu segir Gunnar Ingi að ekki liggi fyrir ákvörðun þar um. „Ég tel það hins vegar ger­legt, þetta mál hefur byggt að veru­legu leyti á dóma­fram­kvæmd Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins. Það væri því ekki óeðli­legt að bera það undir dóm­stól­inn hvort þessi máls­með­ferð stand­ist, að ekki sé hægt að láta reyna á vafa­samar rann­sókn­ar­at­hafnir lög­reglu, að dóm­stólar eigi ekki end­ur­skoð­un­ar­vald um það og að það sé ekki einu sinni kær­an­legt til Hæsta­réttar. Að ekki sé hægt að fá end­ur­skoðun á frá­vísun á mál­inu á öðru dóm­stigi, það er vafa­samt að það sé smrým­an­legt rétt­látri máls­með­ferð gagn­vart sak­born­ingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár