„Ég er ekki hrædd lengur“

Sara Mardini og systir hennar björg­uðu lífi 18 manns þegar þær stukku út í Mið­jarð­ar­hafið og drógu bát fullan af hæl­is­leit­endum í þrjá og hálfan tíma að landi. Sara flúði átök í heima­landi sínu, Sýrlandi, en á núna yfir höfði sér 25 ára fang­elsi verði hún sak­felld af grískum dóm­stól fyrir þátt­töku sína í hjálp­ar­starfi á sama svæði og hún sjálf lenti í sjáv­ar­háska.

Aðeins 27 ára gömul hefur Sara Mardini upp­lifað meira en flest fólk gerir á heilli mannsævi. Hún og yngri systir hennar, Yusra, voru hylltar sem hetjur á alþjóða­vett­vangi fyrir björg­un­ara­frek þeirra árið 2015 þegar þær flúðu á gúmmí­bát yfir Mið­jarð­ar­hafið frá heima­landi sínu, Sýrlandi. Þá voru þær aðeins 20 og 17 ára. Yusra keppti í kjöl­farið á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó árið 2016 fyrir hönd nýskip­aðs ólymp­íuliðs flótta­manna.

„Ég fór með til Ríó til að styðja hana,“ segir Sara í sam­tali við Stundina um við­burða­ríka æsku þeirra systra. „Það var svo fal­legt að sjá hana keppa og það veitti mér mik­inn inn­blástur.“

En skömmu síðar þurfti Sara að dúsa í grísku fang­elsi fyrir að reyna að hjálpa öðrum sem voru í sömu stöðu og hún hafði verið. Fjögur ár eru nú liðin frá því að hún var hand­tekin og ákærð fyrir þátt­töku sína í hjálp­ar­starfi á eyj­unni Lesbos í Grikk­landi og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár