Ævintýrið um íslenska matar(ó)menningu

Í nýrri bók um íslenskar mat­ar­hefðir er íslensk mat­ar­menn­ing síð­ustu alda og fram í sam­tím­ann greind með margs konar hætti. Sú mikla fábreytni sem ein­kenndi íslenska mat­ar­menn­ingu öldum saman er dregin fram í dags­ljósið. Í bók­inni er sýnt fram á að það er eig­in­lega ekki fyrr en á allra síð­ustu ára­tugum sem hrá­efnis- og fæðu­fram­boð á Íslandi fer að líkj­ast því sem tíðkast í öðrum stærri og minna ein­angr­uðum löndum.

Ævintýrið um íslenska matar(ó)menningu
Fábreytni, dýra­fæða, kol­vetna­þurrð og kalt í aski Í bók­inni um íslenska mat­ar­menn­ingu eru helstu ein­kenni hennar dregin fram. Fram eftir öldum ein­kennd­ist mat­ar­menn­ing þjóð­ar­innar af dýra­fæðu, kol­vetna­þurrð, salt­leysi og þeirri stað­reynd að matur var yfir­leitt bor­inn fram kaldur í öskum. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Vinur minn er með útstæða og hvelfda ístru. Hann er samt alls ekki jafn­feitur, bara belg­mik­ill. Útlimir hans, háls, hnakki, rass og bak eru að mestu lausir við skvap, öfugt við lík­ama sumra okkar vina hans sem fitu­bjúg­ur­inn sest á með jafn­ari hætti. 

Fyrir skömmu þegar vinur minn var heima hjá mér í mat gekk fjög­urra ára dóttir mín að honum, lagði hönd­ina blíð­lega á læri hans, hall­aði undir flatt og sagði: „Ertu með barn í mag­anum?“

Bumban á vini mínum á sér ákveðna ástæðu sem segja má að teng­ist mat­ar­menn­ingu og mat­ar­sögu íslensku þjóð­ar­innar kol­vetna­böndum: Mjólk.

Þegar við vorum ung­lingar tuð­aði mamma vinar míns oft og ítrekað yfir því að bumban á honum væri hvim­leið. Mamma hans sagði frá því að hann væri svona útþan­inn um miðj­una vegna þess að hann drykki of mikla nýmjólk, allt upp í tvo til þrjá lítra á dag. Mjólkin leynir á sér vegna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórir Jóhannsson skrifaði
    Næringarketósa er ekki hættuleg og er annað en ketoacidosis. Leitt að sjá öðru haldið fram í annars mjög áhugaverðum greinum í bókinni. https://www.dietdoctor.com/low-carb/ketosis
    0
  • Margrét Sig skrifaði
    Ekkert dvelur oní mér / upp ég sel um daga. / Sendu pela af Sjenever / sem fer vel í maga. !
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Mér finnst fiskur bestur.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár