Hjólað og hermt eftir

Stundar­skrá dagana 14. janúar til 4. febrúar.

Muggur - Guðmundur Thorsteinsson

Hvar? Listasafn Íslands

Hvenær? Stendur til 13. febrúar 2022

Á sýningunni „Muggur – Guðmundur Thorsteinsson“ kynnast gestir sérstæðum myndheimi Muggs þar sem meðal annars prinsar og prinsessur dvelja í fögrum höllum, þeir kynnast trölla­heimum myrkurs og ógnar, landslagi og sveita­sælu á Íslandi, ferða­minningum frá framandi stöðum, náðar­heimi trúarinnar þar sem Kristur læknar sjúka auk þess sem á sýningunni er að finna skoplegar og skondnar teikningar og þjóðsögur. 

„Muggur var einstakur lista­maður og heillandi persónu­leiki sem lést aðeins 32 ára að aldri. Hann hefur réttilega verið kallaður fyrsti fjöl­listamaður Íslands. Á sýningunni er leitast við að gera stuttum en glæsi­legum listferli hans ítarleg skil og sýna fjöl­breytnina í áhrifa­miklu höfundar­verki hans sem spannar breitt svið bæði hvað efni og inntak varðar,“ segir Kristín G. Guðna­dóttir sýningar­stjóri.

Jazz í hádeginu: Ferðalag með Elvari Braga

Hvar og hvenær? Borgar­bókasafnið Gerðu­bergi 14. janúar kl. 12.15 og Borgar­bókasafnið Spönginni 15. janúar kl. 13.15

Hljóm­sveitina skipa þeir Elvar Bragi (flugelhorn og trompet), Hróðmar Sigurðsson (gítar) og Leifur Gunnarsson (kontrabassi). Lögin á efnis­kránni koma úr öllum áttum svo sem Kind folk (Kenny Wheeler), Sirrý (Elvar Bragi Kristjónsson), Gone fishing (Hróðmar Sigurðsson) og Skuggar í dimmum borgum (Leifur Gunnarsson).

„Tilvera okkar er undarlegt ferðalag“ skrifaði ljóð­skáldið á sínum tíma. Ferðalög eru marg­slungin, þau geta verið bókstafleg, andleg og líkamleg. Á þessum tónleikum bjóðum við gestum upp á alls konar ferða„lög“,“ segir Elvar sem hefur verið virkur í tónlist síðan hann byrjaði í ball­hljómsveit með pabba sínum aðeins 15 ára gamall. Hann útskrifaðist frá TFÍH með burtfarar­próf í jazztrompetleik vorið 2016. Elvar er hljóðfæra­leikari, laga­höfundur og útsetjari. Hann hefur spilað, útsett og samið tónlist með Unu Stef, Babies flokknum, Hróðmari Sigurðs­syni, Stórsveit Reykja­víkur, Bangoura Band, Big Band Samma svo eitthvað sé nefnt.

Hjólatúr | Stefnumót við skáldin í hverfinu

Hvar? Borgar­bókasafnið Kringlunni

Hvenær? Laugar­daginn 15. janúar

Árni Davíðsson hjá Hjóla­færni á Íslandi og Guttormur Þorsteinsson, sagn­fræðingur og deildar­bókavörður á Borgar­bókasafninu, fara með áhugasama í hjólatúr á vegum Borgar­bóka­safnsins. Guttormur les upp ljóð og prósa sem tengjast hverfunum í kringum Kringlu­mýri, þátt­takendur kynnast skáldunum í Hlíðunum og Háaleitis­hverfi og svo verður elst við ketti í Kringlunni og ræningja í Öskju­hlíðinni.

Hjóla­túrinn hefst við Borgar­bókasafnið Kringlunni og ættu þátt­takendur að mæta í hlýjum fatnaði og með hjól sem henta veðri og færð. 

Boðið er upp á fleiri hjólatúra með bókmennta­legu ívafi til apríl, sjá heimasíðu Borgar­bóka­safnsins. Verkefnið er samstarfs­verkefni Borgar­bóka­safnsins, Hjóla­færni á Íslandi og Lands­samtaka hjólreiða­manna og fékk það styrk frá Miðborgar­sjóði Reykja­víkurborgar.

Ljósmyndahátíð Íslands: Loftþétt

Hvar: Ásmundar­salur

Hvenær: 15.–30. janúar

Laugar­daginn 15. janúar opnar sýningin Loftþétt í Ásmundarsal. Að sýningunni standa Klængur Gunnarsson og Hrafn Hólmfríðarson Jónsson (Krummi). Í verkum sínum takast lista­mennirnir á við hversdags­lega tilburði, fyrirbæri og staði. Sýningin veltir fyrir sér lágstemmdum mögu­leikum í hversdags­leikanum og hátíð­legum áformum um uppbrot hans.

Barrokk – óperu – jazz | Tíbrá tónleikaröð

Hvar? Salurinn

Hvenær? 25. janúar

Verð 4.400 kr.

Á tónleikunum verða fluttar aríur, dúettar og forleikir úr barrokkóperum eftir meðal annars Händel, Glück og Purcell og munu klassískar söngkonur og jazztónlistarmenn tvinna saman tónlistar­stefnur og -stíla. Lista­mennirnir eru Ingibjörg Guðjóns­dóttir sópran­söngkona, Nathalía Druzin Halldórs­dóttir mezzósópransöngkona, Kjartan Valdemarsson píanó­leikari, Magnús Tryggvi Elíasen gítar­leikari og Óskar Guðjónsson saxófón­leikari.

„Barrokk-óperu-jazz er dálítið sérstök samsetning en einstak­lega spennandi og forvitnilegt hvernig þessar ólíku en þó líku tónlistar­stefnur koma saman,“ segir Ingibjörg Guðjóns­dóttir. Og Nathalía Druzin bætir við: „Það sem við leyfum okkur að gera er að taka þekktar aríur og dúetta sem okkur þykir vænt um og höfum flutt áður á hefð­bundinn hátt og leyfum okkur að spinna þær og snúa þeim í svolítið nýjar áttir og víddir.“

Sóli Hólm - Loksins eftirhermur

Hvar? Bæjarbíó

Hvenær? 27.–29 janúar, 10.–12. febrúar og 24.–26. febrúar.

 Sýning Sóla Hólm, Loksins eftirhermur, var frumsýnd í haust og hafa um 5.000 gestir séð hana. Sóli heldur áfram að gleðja landann á nýju ári og er markmiðið að gera tilveru fólks örlítið jákvæðari.

„Þetta gekk fáránlega vel fyrir áramót og sem betur fer náði ég að klára að sýna allar sýningar fyrir jól. Nú get ég ekki beðið eftir að byrja aftur,“ segir Sóli. „Þetta er þriðja sýningin sem ég set upp og fólk sem hefur ekki hag af því að láta mér líða sem best hefur sagt mér að þetta sé mitt besta verk og ég hef ákveðið að trúa því. Þarna er ég bara að gera það sem ég geri best, sem er að herma eftir fólki og gera grín að málefnum líðandi stundar.“

Jóhannes S. Kjarval: Í íslenskum litum

Hvar: Kjarvals­staðir

Hvenær: Opnuð 29. janúar.

Á sýningunni „Jóhannes S. Kjarval: Í íslenskum litum“ er lögð áhersla á litinn í verkum lista­mannsins og kannað hvernig lita­notkun hans var háttað. Kjarval notaðist við fjöl­breytta liti í lista­verkum sínum en á síðu listasafsins segir að veður og birtu­skilyrði hverju sinni hafi stýrt litavali landslags­verka og að í fantasíum og öðrum verkum hafi það verið tilfinning og persónuleg sýn lista­mannsins sem réði för. Á sýningunni á Kjarvals­stöðum hafa verið valin verk með það í huga að endur­spegla frjálsa lita­notkun og flæði hugmynda og tjáningar í list Kjarvals.

„Kjarval var mikill náttúru­unnandi og málaði fjölda verka af litadýrð íslenskrar náttúru. Hann leit svo á að náttúra landsins væri lita­spjald í sjálfri sér og vann þó nokkur verk af lita­spjöldum samofnum nátt­úrunni,“ segir Edda Halldórs­dóttir sýningar­stjóri. „Á sýningunni verða nokkur lita­spjöld til sýnis, þar á meðal tómt lita­spjald sem var síðasta verkið sem hann vann áður en hann lést.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár