Hamingjan er mikilvægasta hráefnið

Hvað er hamingjan fyrir þér?

Skúli S. Ólafsson

prestur í Neskirkju

Hamingju­samt fólk er stundum sagt vera „hátt uppi“ sem rímar við orð Biblíunnar um himnaríki. Sjálfur segir Jesús himna­sæluna bæði vera „innra með okkur“ og „mitt á meðal okkar“. Ég tengi við þau orð. Á mínum sælustu stundum er ég ýmist í algleymi góðrar einsemdar eða umvafinn fólki sem ég treysti, virði og elska. Himna­ríkinu er einnig líkt við veislu. Þar er hvorki hungur né einsemd og kenndin lifir áfram í hjörtunum. Hamingju­leitendur grípa gjarnan í tómt því hamingjan stendur ekki ein;  hún er afleiðing. Viðleitni okkar til að gleðja aðra er þess vegna líklegri til að veita okkur hamingju en þegar við eltumst við hana í eigin þágu.


Einar Mäntylä

framkvæmdastjóri Auðnu tæknitorgs

Hamingjan er ástand þar sem hugurinn fer á flug og manni hlýnar öllum innvortis, daglegt amstur hverfur og áhyggjur eru utan sjónmáls. Hamingjan er hverful, annars væri hún hversdagsleg. Augnabliks­hamingja er til dæmis full­kominn hljómur sem hreyfir við einhverju frumstæðu í tauga­kerfinu. Ég hef upplifað þetta bæði sem flytjandi í kór og sem áheyrandi. Hamingjan er þakklæti og auðmýkt. Þú hvorki heimtar hamingju né kaupir hana. Peningar hafa yfirhöfuð ekkert með hamingju að gera; of lítið eða of mikið af þeim stuðlar að  óhamingju, hóflega mikið skapar heldur ekki hamingju. Hún er þarna í minnstu hlutum í kringum okkur og það er hægt að koma auga á hana. Þakklæti hjálpar. Húmor léttir leitina. Vinátta, fjalla­hringur, börn og barnabörn, stakur hljómur, bragð­upplifun, heilsa, starf með tilgang – og hamingjan sem hljómar úr mögnurum bílskúrs­bands með vinunum. Hamingjan er jákvæð jól og neikvæð Covid-próf.


Sigurður Ingibergur Björnsson

forstjóri Klíníkurinnar

Hamingjan er köttur. Hún vitjar mín þegar henni hentar en ef ég eltist við hana, vill hún ekkert með mig hafa. Ef svo ber undir reyni ég að æðrast ekki en reyni heldur að skapa aðstæður sem henni líkar. Þá er hún líklegri til að koma og strjúka sér upp við mig, að minnsta kosti stundar­korn. Henni líkar vel við þakklæti, að ég taki eftir því þegar fólkinu mínu gengur vel og að ég sætti mig við að vera ekki full­kominn. En fyrst og fremst líkar henni við mig þegar ég reynist öðrum vel.


Sturla Þengilsson

Hamingjan er þegar núið kallar ekki á meira af einhverju og kemur því oft til manns þegar áfanga hefur verið náð eða á áfanga­stað er komið en líka þegar maður gefst upp fyrir því sem ekki er hægt og þakkar fyrir það sem maður fær áorkað. Hamingja augna­bliksins er mjög mikilvæg til að skilja og skynja hamingjuna og hvað mig varðar getur það verið útsýni af fjallstoppi yfir ósnortna náttúru, samvera með maka, börnum og barna­börnum eða aleinn í eyðifirði við logandi varðeld og sjávar­útsýni. Söknuður getur líka verið uppspretta hamingju þegar góðar stundir eru rifjaðar upp með gengnum vinum og ættingjum. Hamingjan er allt um kring og þarf bara að veita henni næringu.


Frosti Logason

blaðamaður

Mér finnst alltaf nauðsynlegt að rækta hamingjuna því hún er að mínu mati eitt mikil­vægasta hráefnið til þess að mér sjálfum líði vel og auðvitað fólkinu í kringum mig, fjöl­skyldu og vinum. Sjálfur tel ég helstu hamingjuna að finna í einfald­leika lífsins, góðum samskiptum, auðmýkt og þakklæti. Ég hef það reyndar fyrir reglu að reyna á hverjum degi að muna eftir því að þylja upp allt það sem ég hef til að vera þakklátur fyrir og það hefur reynst mér vel. Þannig fæ ég líka aukinn áhuga á sameiginlegri velferð samferða­manna minna og það hjálpar mér að leggja áherslu á að vera til staðar fyrir aðra. Það veitir mér mikla hamingju, frelsi og hugarró.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita hamingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finnist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki hamingjan að vera alltaf einhvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregðast við ef það finnur fyrir óhamingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlutina. Fjall­göngur hjálpuðu Jóhönnu Fríðu í kjölfar sambands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem farar­stjóri í aukavinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Friðriks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um árabil var hún skotspónn bekkjar­félaga sinna og upplifði sig eina þótt hún ætti vinkonur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við tilfinninga­doðann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risastórt og ótrúlega ógnvænlegt skref,“ segir Ingileif sem er nú hamingju­samlega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár