Sjálfstæðisflokkurinn byggir blokk á umdeildri lóð Valhallar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hyggst byggja blokk með 47 íbúðum og atvinnu­hús­næði á lóð sinni við Háa­leit­is­braut þar sem Valhöll er til húsa. Þegar Valhöll var byggð á sínum tíma var fram­kvæmdin sögð vera spillt vegna fjár­mögn­unar ýmissa fyr­ir­tækja á hús­bygg­ing­unni sem Albert Guð­munds­son, borg­ar­full­trúi og þing­maður flokks­ins, var hvata­maður að.

Sjálfstæðisflokkurinn byggir blokk á umdeildri lóð Valhallar

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hyggst byggja fjöl­býl­is­hús með 47 íbúðum á 4 til 6 hæðum á lóð­inni sem höf­uð­stöðvar flokks­ins, Valhöll, standa á við Háleit­is­braut í Reykja­vík. Þá stendur einnig til að atvinnu­hús­næði verði í hús­inu. Um er að ræða sam­tals rúm­lega 7.300 fer­metra fast­eign. Beiðni Sjálf­stæð­is­flokks­ins um hús­bygg­ing­una var sam­þykkt á fundi bygg­inga­full­trúa Reykja­vík­ur­borgar þann 19. októ­ber síð­ast­lið­inn. 

Eins og segir í fund­ar­gerð­inni frá bygg­inga­full­trú­anum: „570269-1439 Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Pósthólf 5296, 125 Reykja­vík. Sótt er um leyfi til þess að byggja 4-6 hæða stein­steypt fjöl­býl­is­hús, klætt málm­klæðn­ingu, með alls 47 íbúðum, atvinnu­rými á hluta jarð­hæðar og bíla­kjall­ara, mhl. 02, á lóð nr. 1 við Háa­leit­is­braut. Stærðir: 7.329.4 ferm., 21.079.7 rúmm.“

Byggja fjöl­býl­is­hús við ValhöllSjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætlar að byggja fjöl­býl­is­hús á lóð Vall­hallar á Háa­leit­is­braut. Hér sést tölvu­gerð mynd af því, með Valhöll í bak­sýn.

Kvaðir um „félagslega blöndun“ í samningnum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Reykja­vík­ur­borg gerðu með sér sam­komu­lag um umrædda upp­bygg­ingu á lóð­inni …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár