Tæpir 30 milljarðar í styrki til bænda

Á síð­asta ári nam beinn og óbeinn stuðn­ingur rík­is­sjóðs við íslenskan land­búnað 29,1 millj­arði króna. Hag­fræði­pró­fessor telur óhætt að líta svo á að sú tala séu lægri mörk raun­veru­legs stuðn­ings.

Tæpir 30 milljarðar í styrki til bænda
Beinir styrkir 16 millj­arðar Íslenskir bændur fengu 16,3 millj­arða í beina styrki á síð­asta ári og 12,8 millj­arða í mark­aðs­stuðn­ing, að lág­marki. Mynd: Shutterstock

Stuðn­ingur rík­is­sjóðs Íslands við íslenskan land­búnað á síð­asta ári nam að minnsta kosti tæpum 30 millj­örðum króna, þegar bæði beinir og óbeinir styrkir eru teknir saman. Beinir styrkir úr rík­is­sjóði til bænda námu 16,3 millj­örðum króna en óbeinn stuðn­ingur, mark­aðs­stuðn­ingur sem skap­ast með hærra vöru­verði til neyt­enda vegna toll­verndar og inn­flutn­ings­tak­mark­ana, nam 12,8 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í nýlega birtu svari Þórólfs Matth­í­as­sonar hag­fræði­pró­fess­ors á Vís­inda­vefnum. Svarið byggir á styrkja­grein­ing­ar­kerfi OECD um jafn­gild­is­virði fram­leið­enda­styrkja. Nið­ur­staða útreikn­ing­anna sýna að fram­leið­enda­styrkir nemi 57 pró­sentum af heild­ar­verð­mæti inn­lendrar land­bún­að­ar­fram­leiðslu.

Í svari Þórólfs má sjá að dregið hefur úr heild­ar­verð­mæti inn­lendrar land­bún­að­ar­fram­leiðslu frá árinu 1986, sem er upp­haf­s­punktur upp­lýs­ing­anna sem birtar eru, um tæpa 22 millj­arða króna á verð­lagi árs­ins 2020, eða um 40 pró­sent. Þá hefur mark­aðs­stuðn­ingur dreg­ist saman um 70 pró­sent á sama tíma­bili en beinir styrkir hafa lækkað um 20 pró­sent. Heild­ar­stuðn­ingur við inn­lendan land­búnað fór lækk­andi til árs­ins 2010, frá árinu 1986, en hefur hækkað frá árinu 2010.

Sem fyrr segir má slá því föstu að styrkir til bænda hafi á síð­asta ári numið 29,1 millj­arði króna. Þórólfur nefnir hins vegar að þar með sé öll sagan ekki sögð. Reikni­að­ferðir OECD taki aðeins til ákveð­inna þátta, það er þess sem teng­ist hverju býli fyrir sig. Auk inn­flutn­ings­tak­mark­ana sem skapi mark­aðs­styrk­ina búi úrvinnslu­greinar land­bún­aðar við und­an­þágur frá sam­keppn­is­lögum, sem geri þeim kleift að stunda sín við­skipti með hætti sem aðilar í sam­keppn­is­rekstri hafi ekki tök á. Vís­bend­ingar séu um að slíkir við­skipta­hættir þrýsti upp verði á fram­leiðslu afurða­stöðva í land­bún­aði.

Þá sé ekki tekið til­lit til þess að bændur hafi gjald­frjálsan aðgang að afréttum, sem þeir hafi nýtt með ósjálf­bærum hætti. „Líklega ber því að líta á þá nið­ur­stöðu að íslenskur land­bún­aður fái tæp­lega 30 millj­arða með­gjöf frá skatt­greið­endum og neyt­endum sem lægri mörk hins raun­veru­lega stuðn­ings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár