Brim komið yfir hámarksaflahlutdeild

Útgerð­ar­fé­lagið Brim er komið yfir lög­bundna hámarks­hlut­deild í afla­heim­ildum. Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims, hefur aukið enn á per­sónu­lega hlut­deild sína í fisk­veiði­kvóta. Þetta sýna nýbirtar tölur Fiski­stofu.

Brim komið yfir hámarksaflahlutdeild
Stór­tækur Guð­mundur Krist­jáns­son stýrir bæði félag­inu sem stýrir mestum afla­heim­ildum og er sá ein­stak­lingur sem á stærstan eign­ar­hlut í félag­inu. Hans eigin útgerð­ar­fé­lag er líka meðal stærstu útgerða lands­ins.

Útgerð­ar­fé­lagið Brim er komið yfir lög­bundna hámarks­hlut­deild í afla­heim­ildum, sam­kvæmt nýbirtum lista Fiski­stofu. Útgerðin fer með 13,2 pró­sent allra afla­heim­ilda, mælt í þorskígildistonnum, sam­kvæmt útreikn­ingum stofn­un­ar­innar. Lög­bundið hámark er 12 pró­sent. 

BlokkinÚtgerð­ar­fé­lagið Brim og þær útgerðir sem ýmist eiga eða eru í eigu þess fara sam­tals með 17,4 pró­sent afla­heim­ilda á Íslandi.

Til við­bótar við þessi rúmu þrettán pró­sent á Brim útgerð­ina Ögurvík að fullu, sem fer með 0,76 pró­sent afla­heim­ilda, og útgerð­ina Grunn, sem fer með 0,31 pró­sent afla­heim­ilda. Grunnur á 40,8 pró­sent í útgerð­inni Þórs­bergi, sem fer með 0,25 pró­sent afla­heim­ilda. Samtals er því Brim með yfir­ráð yfir 14,37 pró­sent kvót­ans. Það er 2,37 pró­sentu­stigum umfram lög­bundið hámark.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem að stærstum hluta er í eigu Guð­mundur Krist­jáns­sonar, for­stjóra Brims, fer svo með 2,23 pró­sent afla­heim­ilda. KG fisk­verkun, sem er í eigu bróður Guð­mundar, Hjálmars Þórs Krist­jáns­sonar og sona hans, fer með 0,66 pró­sent afla­heim­ilda. Blokkin sem þessi sex útgerð­ar­fé­lög, sem tengj­ast í gegnum eign­ar­hald sitt, stýrir 17,4 pró­sentum kvót­ans.

Brim hefur, sam­kvæmt lög­unum um hámarks­hlut­deild í afla­heim­ildum, sex mán­uði til að koma sér aftur undir 12 pró­senta markið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár