Sólveig Anna segir frá ofbeldishótun starfsmanns

Frá­far­andi for­maður Eflingar segir starfs­mann hafa ætlað sér að gera henni mein. Hún segir að starfs­menn Eflingar „telji mjög brýnt og nauð­syn­legt“ að hún „sitji áfram undir óleið­réttum ásök­unum“, þótt sama fólk hafi orðið vitni að ofbeld­is­hótun í hennar garð.

Sólveig Anna segir frá ofbeldishótun starfsmanns
Sólveig Anna Jóns­dóttir Sagði af sér for­mennsku í stétt­ar­fé­lag­inu Eflingu í gær. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sólveig Anna Jóns­dóttir, frá­far­andi for­maður Eflingar, seg­ist hafa verið boðuð á fund með starfs­mönnum Eflingar fyrir tveimur vikum, þar sem komið hefði fram að einn starfs­manna hefði hótað að gera henni mein.

„Þá gerð­ist það að ég var beðin að koma á fund þar sem mér var til­kynnt um að einn af karl­kyns starfs­mönnum skrif­stofu Eflingar hefði lýst því yfir við annan starfs­mann að hann væri mjög reiður út í mig og væri að hugsa um að fara heim til mín og vinna mér þar skaða sem ekki var lýst nánar en voru aug­ljós­lega ein­hvers konar ofbeldi,“ lýsir hún á Facebook-síðu sinni.

„Hann lét fylgja sög­unni, þegar hann lýsti ofbeld­is­hót­unum sínum gegn mér, að hann hefði í tvö ár rispað bíl manns sem honum var illa við,“ segir Sólveig Anna.

Hún gefur til kynna að hún hafi til­kynnt málið til lög­reglu. „Eins og vana­lega þá veit ég að ég verð nú sökuð um lygar, og beðin um sönn­un­ar­gögn sem aldrei verða nógu mark­tæk. Ég verð sjálf sögð vera vand­málið. Ég stundi ógn­ar­stjórn og gangi um með aftöku­lista. Skelli jafn­vel hurðum, svo fast að starfs­fólk Eflingar ótt­ist mig og þurfi sér­staka vernd. Það mun ekki skipta neinu þótt ég hafi til­kynnt um málið til lög­reglu. Það mun ekki skipta máli þótt að starfs­menn á vinnu­staðnum viti af og hafi rætt sín á milli um þessa upp­á­komu. Þeir munu eflaust ekki kann­ast lengur við neitt.“

Hún segir fyrr­ver­andi stjórn­endur Eflingar „á síð­ast­liðnum árum farið fram með enda­lausar lygar, hót­anir um dóms­mál og óhróður gegn [sér], í fjöl­miðlum og víðar“.

Frásögn Sólveigar Önnu í heild

Á Vísi í dag er sagt frá því að yfir­lýs­ing mín um ástæður afsagnar minnar úr stöðu for­manns Eflingar hafi „hleypt illu blóði í marga starfs­menn stétt­ar­fé­lags­ins“. Samkvæmt heim­ildum frétta­stofu Vísis fannst starfs­fólki að ég hafi gefið „opið skot­leyfi“ á það með því að segja satt frá aðdrag­anda og ástæðum afsagnar minnar.

Þessi orð fengu mig til að hugsa um atburði sem gerð­ust á vinnu­staðnum fyrir ríf­lega tveimur vikum. Þá gerð­ist það að ég var beðin að koma á fund þar sem mér var til­kynnt um að einn af karl­kyns starfs­mönnum skrif­stofu Eflingar hefði lýst því yfir við annan starfs­mann að hann væri mjög reiður út í mig og væri að hugsa um að fara heim til mín og vinna mér þar skaða sem ekki var lýst nánar en voru aug­ljós­lega ein­hvers konar ofbeldi.

Hann lét fylgja sög­unni, þegar hann lýsti ofbeld­is­hót­unum sínum gegn mér, að hann hefði í tvö ár rispað bíl manns sem honum var illa við. Það sann­aði að honum væri alvara og að hann væri fær um að fremja glæp. Hann bætti því við, að hann hefði ekki áhyggjur af að verða dæmdur í fang­elsi vegna þess sem hann kynni gera mér, af því að jafn­vel þó að hann yrði dæmdur þá þyrfti hann aldrei að sitja inni, þar sem hann væri með hreint saka­vott­orð.

Mér er ekki kunn­ugt um að hafa gert nokkuð á hlut þessa manns, en mér hefur þó skilist að hann sé óánægður með að annar starfs­maður fékk stöðu­hækkun sem hann taldi sig eiga rétt á. Það er alvitað að hann er náinn fyrrum stjórn­endum á skrif­stofu Eflingar, þeim sömu sem hafa á síð­ast­liðnum árum farið fram með enda­lausar lygar, hót­anir um dóms­mál og óhróður gegn mér, í fjöl­miðlum og víðar.

Þetta dæmi, sem er stað­fest með skrif­legum vitn­is­burði sem liggur inni hjá mannauðs­stjóra skrif­stofu Eflingar, er aðeins eitt af mörgum um það ofstæki og þá heift sem þótt hefur eðli­legt að ég sitji undir af hálfu starfs­fólks Eflingar frá þeim degi sem ég var kosin sem for­maður Eflingar.

Eins og vana­lega þá veit ég að ég verð nú sökuð um lygar, og beðin um sönn­un­ar­gögn sem aldrei verða nógu mark­tæk. Ég verð sjálf sögð vera vand­málið. Ég stundi ógn­ar­stjórn og gangi um með aftöku­lista. Skelli jafn­vel hurðum, svo fast að starfs­fólk Eflingar ótt­ist mig og þurfi sér­staka vernd. Það mun ekki skipta neinu þótt ég hafi til­kynnt um málið til lög­reglu. Það mun ekki skipta máli þótt að starfs­menn á vinnu­staðnum viti af og hafi rætt sín á milli um þessa upp­á­komu. Þeir munu eflaust ekki kann­ast lengur við neitt.

Á föstu­dag­inn ávarp­aði ég starfs­fólk Eflingar. Ég vildi spyrja þau hvort þau gætu hugsað sér að afstýra nei­kvæðri umfjöllun um vinnu­stað­inn, koma í veg fyrir enn eina rógs­her­ferð­ina um mig og minnka skaða fyrir bar­áttu félags­manna okkar. Þetta hefðu þau getað gert með því að bera til baka ofstæk­is­full orð úr dóm­greind­ar­lausri ályktun trún­að­ar­manna frá því í sumar sem stjórn­ar­maður hefur séð sig knú­inn að vekja athygli fjöl­miðla á. Að bera til baka ásak­anir um að ég stund­aði ógn­ar­stjórn og aftökur.

Svarið var nei, starfs­fólk Eflingar telur mjög brýnt og nauð­syn­legt að ég sitji áfram undir óleið­réttum ásök­unum um allt þetta.

Í salnum sat starfs­mað­ur­inn, sem sjálfur varð vitni að ofbeld­is­hót­unum í minn garð frá þessum sam­starfs­manni okkar, og sem hefur sagt frá upp­á­kom­unni við nokkra aðra starfs­menn. Í salnum sátu einnig fleiri úr hópi þeirra sem hafa fengið vit­neskju um hót­un­ina, til dæmis trún­að­ar­maður vinnu­stað­ar­ins, sá sami og gengið hefur harð­ast fram í glóru­lausum ásök­unum gegn mér og kröfum um að vinnu­staða­fundum verði snúið upp í rétt­ar­höld yfir "„glæpum“ mínum.

Ég var ekki á fund­inum. Ég veit því ekki hvort ein­hver fund­ar­manna sem hafði vit­neskju um rétt svo tveggja vikna gamlar ofbeld­is­hót­an­irnar gegn mér hafi rétt upp hönd, spurt ef til vill spurn­inga, velt því ef til vill upp hvort komið væri gott af „opnu skot­leyfi“ á mig? Það veit ég ekki, en ég veit hver nið­ur­staðan var af fund­inum.

Ég hef tekið mína ákvörðun og við hana stend ég. Ég er ekki hlaup­ast undan merkjum. Ég er ein­ungis að við­ur­kenna fyrir sjálfri mér og öðrum hverjar tak­mark­anir mínar sem mann­eskju eru, þegar fólk sem ég þarf að geta treyst hefur lýst sig reiðu­búið að svipta mig ærunni opin­ber­lega en stendur þög­ult hjá á meðan ég er sjálf beitt ofbeldi fyrir framan augun á þeim.

Ég legg til að við, und­ir­okað fólk af stétt verka- og lág­launa­fólks, stöndum saman. Ég hvet til þess að við áttum okkur á því að heim­ur­inn sem við lifum í er skakkur, við­snú­inn, bjag­aður. Í þess­ari skekkju hallar alltaf á okkur. Að átta sig á því er fyrsta skrefið. Svo fikrum við okkur áfram saman, eitt skref í einu, stöppum stál­inu hvert í annað, vinnum fyrst lít­inn sigur, svo annan lít­inn og svo stóran. Óhjá­kvæmi­lega getum við þurft að stíga skref til baka líka – það er erfitt – en við getum barist áfram og gert þennan skakka heim réttan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár