Fossar dæmdir til að una sekt FME út af bónusum fyrirtækisins sem „klæddir“ voru í búning arðs

Fjár­mála­fyr­ir­tækið Fossar Markaðir greiddi út of háa kaupauka til starfs­manna sinna á árunum 2016 og 2017 og kall­aði þessar greiðslur rang­lega arð. Þetta er mat FME og nú Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem hefur dæmt íslenska rík­inu í hag eftir að Fossar reyndu að fá sekt­ar­greiðslu vegna máls­ins hnekkt. For­stjóri Fossa segir fyr­ir­tækið vera að íhuga næstu skref.

Fossar dæmdir til að una sekt FME út af bónusum fyrirtækisins sem „klæddir“ voru í búning arðs
Tekið undir mat FME Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur tekið undir mat FME um að arð­greiðslur Fossa Markaða hafi verið kaupauka­greiðslur klæddar í bún­ings arðs. Unnur Gunn­ars­dóttir er for­stjóri FME.

Fjár­mála­fyr­ir­tækið Fossar mark­aðir þarf að una sekt­ar­greiðslu frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu (FME) upp á 10,5 millj­ónir króna fyrir að hafa greitt út of háar bón­us­greiðslur til starfs­manna og kallað þær arð á árunum 2016 og 2017.

Umræddir starfs­menn voru svo­kall­aðir B-hlut­hafar í félag­inu. Um var að ræða greiðslur sem námu allt frá 52 pró­sentum af heild­ar­launum starfs­manna og allt upp í 226 pró­sent en leyfi­legt hlut­fall bón­us­greiðslna er 25 pró­sent. Þetta kemur fram í nýjum dómi frá Hér­aðs­dómi Reykja­víkur en Fossar mark­aðir vildu ekki una sekt­inni og höfð­aði því mál gegn Seðla­banka Íslands og íslenska rík­inu.  

„Engu skipti í þessu sam­bandi þótt téður kaup­auki hafi verið klæddur í bún­ing arð­greiðslna af hlutum í B-flokki.“

Kaupauki klæddur í búning arðgreiðsla

Eins og FME sagði í upp­haf­legri nið­ur­stöðu sinni um sekt­ina þá taldi stofn­unin að arð­greiðsl­urnar hafi verið end­ur­gjald í þágu starfs­mann­anna fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár