Nýr þingmaður Flokks fólksins vill „taka á RÚV“ vegna umræðu um kynferðisbrot og KSÍ

Eyjólfur Ármanns­son sagði umdeildan brand­ara í kosn­inga­bar­átt­unni og er nú far­inn að berj­ast fyrir inn­gripum í mál­efni Rík­is­út­varps­ins. „Tján­ing­ar­frelsið krefst þess,“ segir hann.

Nýr þingmaður Flokks fólksins vill „taka á RÚV“ vegna umræðu um kynferðisbrot og KSÍ
Eyjólfur Ármanns­son Þing­maður Flokks fólks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Eyjólfur Ármanns­son, einn sex þing­manna Flokks fólks­ins, vill að tekið verði á mál­efnum Rík­is­út­varps­ins vegna umræðu um ásak­anir gegn lands­liðs­mönnum í knatt­spyrnu. 

Þing­mað­ur­inn nýkjörni boð­aði þessa afstöðu í ummælum undir færslu lög­manns­ins Sigurðar G. Guð­jóns­sonar á Facebook, þar sem hann kvartar undan því að lands­liðs­þjálf­ar­inn í knatt­spyrnu hafi ekki geta valið alla þá í lands­liðið sem hann vildi, vegna þess að sex lands­liðs­menn hefðu verið ásak­aðir um brot. Í umkvörtun sinni segir Sigurður G. að menn „bogni og brotni“ og gef­ist upp „af ótta við úthrópun og aftöku í berg­máls­helli sam­fé­lags­miðla“. Eyjólfur tekur undir það.

„Þessi kúltúr var búinn til á RÚV. Því fyrr sem tekið verður mál­efnum stofn­un­ar­innar því betra. Tján­ing­ar­frelsið krefst þess,“ skrif­aði Eyjólfur.

Eyjólfur var kjör­inn á þing í nýaf­stöðnum alþing­is­kosn­ingum í krafti kosn­inga­sig­urs Flokks fólks­ins, sem hlaut óvænt 8,8% atkvæða á lands­vísu. Hann hafði vakið athygli fyrir upp­á­halds „fimmaura­brandar­ann“ sinn, í svari til Vísis.is í kosn­inga­um­fjöllun, sem sner­ist um að Íslend­ingur myndi kasta Pólverja úr Eiffel-turn­inum, vegna þess að nóg væri af Pól­verjum hér á landi, eins og Frakki myndi kasta crossaint og Pólverji pylsu.

Sigurður G. Guð­jóns­son, sem verið hefur for­seti dóm­stóla KSÍ, var nýverið gagn­rýndur fyrir að birta trún­að­ar­skjöl um ásak­anir konu gegn lands­liðs­manni í knatt­spyrnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár