Lýsir ósýnileika þunglyndis: Brosandi og hrósandi með sjálfsvígshugsanir

„Myrkrið var orðið svo þétt og mér fannst ég vera svo mikil byrði með vesen og hafa valdið svo miklum von­brigðum að eina rök­rétta leiðin væri að kveðja,“ segir Olga Björt Þórð­ar­dóttir, rit­stjóri Hafn­firð­ings, sem lýsir reynslu sinni af þung­lyndi.

Lýsir ósýnileika þunglyndis: Brosandi og hrósandi með sjálfsvígshugsanir

Olga Björt Þórð­ar­dóttir, rit­stjóri Hafn­firð­ings, lýsir því í áhrifa­ríkri færslu á Facebook hversu ósýni­legt þung­lyndi getur verið jafn­vel þótt það legg­ist þungt á við­kom­andi. „Ósýni­leiki þessa sjúk­dóms lýsti sér til dæmis þannig hjá mér þannig að sömu daga og ég var í rusli var ég hrós­andi fólki á messen­ger, bros­andi með mynda­vél­ina á við­burðum og að reyna að selja aug­lýs­ingar í blaðið mitt.“

Sjálf var hún komin á þann stað að hún ótt­að­ist um líf sitt, þegar hún fékk loks hjálp frá vin­konu sinni og sál­fræð­ingi við að gefa líf­inu annan séns. „Myrkrið var orðið svo þétt og mér fannst ég vera svo mikil byrði með vesen og hafa valdið svo miklum von­brigðum að eina rök­rétta leiðin væri að kveðja,“ segir hún. 

„Þegar ég lít til baka sé ég hversu ógn­væn­lega ósýni­legur sjúk­dómur þung­lyndi getur verið. Meira að segja mín nán­ustu spott­uðu það ekki frekar en ég og ég hef í raun ekki viljað ræða þennan dag við þau, þótt ég viti að þau elska mig og vilja mér vel. Það er of sárt. Það fylgir því nefni­lega ofan á allt skömm að hafa „látið sér“ detta slíkt dóm­greind­ar­leysi í hug. Dagana og vik­urnar á undan hafði ég líka bætt eigið Norð­ur­landa­met í sjálfs­nið­ur­rifi sem algengt er meðal þung­lyndra.“

Á Íslandi þjást 12 til 15 þús­und manns af þung­lyndi á hverjum tíma. Þótt þung­lyndi sé svo algengt gerir fólk sér oft litla grein fyrir eðli sjúk­dóms­ins og þar gætir oft mis­skiln­ings, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Land­spít­al­anum. Orsaka er að leita í flóknu sam­spili arf­gengra áhættu­þátta, áfalla og við­var­andi álags sem móta við­brögð ein­stak­lings­ins gegn streitu og áföllum og auka líkur á sjúk­legu þung­lyndi. Síð­ast­liðin ára­tug hafa sjálfs­víg að með­al­tali verið 39 á ári, sam­kvæmt tölum frá Embætti land­læknis. En það er hægt að fá hjálp, eins og Olga bendir á, en hún vísar meðal ann­ars á Píeta-sam­tökin sem veita fyrstu hjálp fyrir fólk í sjálfs­vígs­hættu. 

Nú er rúmt ár síðan hún fékk við­eig­andi aðstoð og það er erfitt að hugsa til baka og til þess hversu hætt hún var komin, þegar tíma­mótin runnu upp var hún komin með kvíða­hnút og öran hjart­slátt. Í dag er lífið hins vegar mun betra en áður, hún er komin á rétt lyf, líður betur og hefur lært mjög mikið um mann­legt eðli, áhrif and­legs ofbeldis, með­virkni og þolenda­skömm­unar. „Ég ætla að nýta þessa þekk­ingu áfram í störfum mínum og verk­efnum og vona að ég geti komið að gagni. Ég ætla líka að halda áfram að sýna dætrum mínum fram á að það er hægt að rísa upp (enn og aftur) eins og Fönix og brjálast úr ham­ingju. Þannig er lífið.“

Færslu Olgu má lesa hér að neðan:

Þann 20. sept­em­ber 2020 fékk ég ómet­an­lega hjálp frá vin­konu og sál­fræð­ingi við að gefa líf­inu annan séns, þegar myrkrið var orðið svo þétt og mér fannst ég vera svo mikil byrði með vesen og hafa valdið svo miklum von­brigðum að eina rök­rétta leiðin væri að kveðja.

Þegar ég lít til baka sé ég hversu ógn­væn­lega ósýni­legur sjúk­dómur þung­lyndi getur verið. Meira að segja mín nán­ustu spott­uðu það ekki frekar en ég og ég hef í raun ekki viljað ræða þennan dag við þau, þótt ég viti að þau elska mig og vilja mér vel. Það er of sárt. Það fylgir því nefni­lega ofan á allt skömm að hafa „látið sér“ detta slíkt dóm­greind­ar­leysi í hug. Dagana og vik­urnar á undan hafði ég líka bætt eigið Norð­ur­landa­met í sjálfs­nið­ur­rifi sem algengt er meðal þung­lyndra. 

Ósýni­leiki þessa sjúk­dóms lýsti sér t.d. hjá mér þannig að sömu daga og ég var í rusli var ég hrós­andi fólki á messen­ger, bros­andi með mynda­vél­ina á við­burðum og að reyna að selja aug­lýs­ingar í blaðið mitt. Blaðið sem var umbrotið dag­inn eftir, 21. sept­em­ber, með hjálp sobril og elsku umbrots­manns­ins sem gaf mér rými til að eiga skrýt­inn dag.

Þann sama dag fékk ég tölvu­póst um að ráðið hefði verið í stöðu sem ég sótti um; sér­fræð­ing hjá emb­ætti for­seta Íslands. Ég sam­gladd­ist svo inni­lega kon­unni sem fékk starfið (já, þung­lyndir geta átt auð­velt með að sam­gleðj­ast) því ég þekki hana, að ég svar­aði póst­inum með ham­ingju­óskum til skrif­stofu emb­ætt­is­ins um að þarna hefðu þau valið hæf­ustu mann­eskj­una. Beint frá hjart­anu.

22. sept­em­ber dreifði ég blað­inu mínu um bæinn og á þeim rúnti fékk ég óvænt skila­boð frá sjálfum for­set­anum (núna vini mínum) þar sem hann sagð­ist hafa séð tölvu­póst­inn til emb­ætt­is­ins og þakk­aði mér fyrir stór­mennsk­una, því hún væri ekki öllum fær og óskaði mér síðan alls góðs. Ég hor­grenj­aði af þakk­læti í klukku­tíma á bíla­stæði Fjarð­ar­kaupa. Ég bið elsku Guðna að fyr­ir­gefa mér að opin­bera þetta en ég geri það fyrst og fremst til að sýna fram á hversu auð­veld­lega hrós og hlýja geta bjargað dögum fólks. Og hversu ein­stök mann­eskja og mann­vinur hann er.

Í dag er lífið fal­legt og gott. Ég er komin á rétt lyf og hef á einu ári lært ótal margt í við­bót við fyrri þekk­ingu um mann­legt eðli, áhrif and­legs ofbeldis, með­virkni og þolenda­skömm­unar (sem teng­ist öllu ofbeldi, ekki bara kyn­ferðis-). Ég ætla að nýta þessa þekk­ingu áfram í störfum mínum og verk­efnum og vona að ég geti komið að gagni. Ég ætla líka að halda áfram að sýna dætrum mínum fram á að það er hægt að rísa upp (enn og aftur) eins og Fönix og brjálast úr ham­ingju. Þannig er lífið.

Einn góður maður sem ég er búin að þekkja lengi sagði við mig í sumar: „Hættu að skrifa þessar löngu færslur þínar. Það les þetta eng­inn.“ Hann vissi ekki betur og les þetta mögu­lega ekki...haha. Hann vissi ekki um hóp ynd­is­legs fólks sem ég hef tengst sterkum böndum und­an­farin ár einmitt vegna þess að það hefur tengt við færsl­urnar og við lært mikið hvert af öðru. Teng­ingar geta bjarga manns­lífum.

Við berum ábyrgð sem per­sónur og leik­endur í lífi ann­arra. Við höfum alltaf val um fram­komu og orða­lag og jafn­vel að láta bara kyrrt liggja ef eitt­hvað pirrar okkur. Við getum oftar valið að vera nær­vera án þess að dæma og ráð­leggja, þótt við getum ekki sett okkur í spor eða jafn­vel skiljum ekki. Við getum í það minnsta hugsað okkur um.

Það eru Alþing­is­kosn­ingar framundan. Ég er ávallt hlut­laus þar til í kjör­klef­ann er komið. Ég á eftir að kynna mér almenni­lega stefnu­mál fram­boð­anna, en það eru miklar líkur á að atkvæði mitt fari til þeirra sem ætla að tryggja betra geð­heil­brigð­is­kerfi. Við verðum að hysja upp um okkur í þeim mála­flokki og eyða biðlistum. Yfir og út. ❤

Píeta sam­tökin, sími 552 2218.
Kt. 410416-0690, reikn 0301-26-041041

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár