Nýtt fagráð Landspítalans: „Búið að benda á vandann í mörg ár“

Rúma­nýt­ing á með­ferða­deild Land­spít­al­ans var hvergi undir 96% í maí, áður en ný bylgja Covid-far­ald­urs­ins fór af stað. Fagráð Land­spít­al­ans, sem var stofnað í maí, sendir frá sér áskorun á heil­brigð­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra og fram­kvæmda­stjórn Land­spít­al­ans.

Nýtt fagráð Landspítalans: „Búið að benda á vandann í mörg ár“
Frá Land­spít­al­anum Með­ferða­deildir ættu að vera með 85% rúma­nýt­ingu en engin þeirra fór undir 96% í maí síð­ast­liðnum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nýtt fagráð Land­spít­al­ans hefur sent frá sér sína fyrstu áskorun þar sem bent er á að ofá­lag á Land­spít­al­anum hafi átt sér stað óháð covid-bylgj­unni.

Skorað er á heil­brigð­is­ráðu­neytið, fjár­mála­ráðu­neytið og fram­kvæmda­stjórn Land­spít­ala „að gera það sem þarf til að heil­brigð­is­kerfið, með Land­spít­ala í far­ar­broddi, sé eft­ir­sóttur vinnu­staður þar sem veitt sé besta heil­brigð­is­þjón­usta sem völ er á hverju sinni“.

Í áskor­un­inni er bent á að starfs­fólkið búi við marg­vís­legt óvenju­legt álag, sem teng­ist bæði covid-far­aldr­inum og öðrum fyr­ir­liggj­andi aðstæðum, og að það grafi jafn­framt undan mönnun sem enn auki á álagið.

Dreift ábyrgð­ar­svið Bjarni Bendikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur talað um skort á skil­virkni á Land­spít­ala. Svandís Svav­ars­dóttir er heil­brigð­is­ráð­herra og er mála­flokk­ur­inn á hennar könnu.

Þannig sé heil­brigð­is­kerfið illa í stakk búið til að takast á við covid-vand­ann, enda hafi í maí­mán­uði „rúma­nýt­ing á með­ferð­ar­sviði á Land­spít­ala hvergi [verið] undir 96%, þar sem æski­leg rúma­nýt­ing á bráða­sjúkra­húsi er 85%“. 

„Að veita heil­brigð­is­þjón­ustu í far­sótt er flókið og krefj­andi. Starfs­fólk þarf að vera stöðugt á verði, sýna sveigj­an­leika og ganga inn í aðstæður þar sem ríkir óvissa. Starfs­fólk hefur þurft að vera í íþyngj­andi hlífð­ar­bún­aði sem gerir starfið mun erf­ið­ara auk þess sem það kallar á aukin mann­afla. Starfs­fólk býr jafn­framt við áreiti utan vinnu t.d. þegar óskað er eftir auknu vinnu­fram­lagi eða því að starfs­fólk búi í ein­hvers konar sótt­varnakúlu umfram aðra í sam­fé­lag­inu. Á sama tíma er starfs­fólk í sum­ar­fríi, fólk sem er margt búið að standa vakt­ina í meira en ár, undir gríð­ar­legu álagi,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Rúmnýting yfir mörkum fyrir covid

Á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­al­ans var rúma­nýt­ing 99% í maí, en þá lá engu að síður eng­inn inni á spít­al­anum vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. „Þegar hún er orðin full þá er Lungna­deild A6 breytt í COVID deild og þar er rúma­nýt­ing í maí 101%. Hafa ber í huga að í maí voru það ekki sjúk­lingar með COVID sem lágu á þessum deildum heldur aðrir sem þurfa sér­hæfða þjón­ustu sem veitt er þarna, þjón­ustu sem þarf nú að veita á öðrum deildum sem eru flestar með rúma­nýt­ingu yfir 95%.“

Þannig bendir fagráðið á að ekki „þýði að hika lengur“, því stjórn­völd og stjórn­endur spít­al­ans þurfi að byggja upp heil­brigð­is­kerfið allt til að hindra óvið­un­andi vinnu­að­stæður.

„Fagráð Land­spít­ala leggur áherslu á að stjórn­völd, sem og stjórn­endur Land­spít­ala, leiti allra leiða við að veita starfs­fólki við­un­andi vinnu­að­stæður t.d. með því að skapa umhverfi þar sem ekki er þörf á að kalla fólk inn úr sum­ar­fr­íum og að alltaf sé tryggt að ekki sé gengið á rétt­indi fólks. Til þess að þetta sé hægt þarf að fara í veru­lega upp­bygg­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu öllu. Stofn­anir þurfa að vinna þétt saman. Það þýðir ekki að hika lengur, búið er að benda á vand­ann í mörg ár, nú sem aldrei fyrr er tæki­færi til úrbóta.“

Fagráðið var stofnað 1. maí síð­ast­lið­inn  og er skipað full­trúum lækna, sjúkra­liða, rann­sókn­ar­stétta, þjálf­un­ar­stétta og við­tals­stétta. Þannig eru læknir, tveir hjúkr­un­ar­fræð­ingar, sjúkra­liði, sjúkra­þjálf­ari, sál­fræð­ingur og nátt­úru­fræð­ingur í fagráð­inu. Sex full­trú­anna eru skip­aðir af fag­stéttum spít­al­ans en sá sjö­undi af for­stjóra Land­spít­al­ans, Páli Matth­í­assyni.

Fólk koðni niður í starfi

Stundin ræddi við star­fólk á Land­spít­al­anum í júní­mán­uði sem lýsti sumt hvert vinnu­staðnum sem ham­fara­svæði. „Maður sér fólk bara koðna niður í starfi hérna,“ útskýrði Eysteinn Orri Gunn­ars­son, sjúkra­hús­prestur á Land­spít­al­anum, í sam­tali við Stundina. „Fólk er á helj­ar­þröm að kom­ast í gegnum dag­inn sinn og það getur ekki hætt. Það er með fjöl­skyldur heima og hafa allar sínar skyldur sem lífið býður upp á og lendir svo í því að geta varla unnið en það verður að gera það.“

Deilt um ábyrgðina

Áskorun fagráðs­ins er beint til fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og fram­kvæmda­stjórnar Land­spít­al­ans, en þetta eru þeir þrír aðilar sem bera opin­ber­lega ábyrgð á starf­rækslu spít­al­ans. Skot hafa gengið á milli þess­ara aðila síð­ustu daga.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði í síð­ustu viku að vandi spít­al­ans yrði ekki ein­göngu leystur með fjár­fram­lögum. „Við þurf­um að ganga eft­ir því að af­köst­in í kerf­inu vaxi til sam­ræm­is við bætta mönn­un og betri fjár­mögn­un.“ Þá sagði hann „auð­vitað rosa­legt ef við með þennan árangur í bólu­setn­ingm stöndum frammi fyrir því að þurfa að grípa til frek­ari ráð­staf­ana inn­an­lands vegna þessa vanda sem hefur í sjálfu sér ekk­ert með covid-heims­far­ald­ur­inn að gera heldur bara við­náms­þrótt heil­brigð­is­kerf­is­ins“.

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, sagð­ist á móti ekki „vita hvað fjár­mála­ráð­herra [væri] að tala um“ varð­andi skil­virkni: „Vissu­lega eru ákveðnir veik­leikar í heil­brigð­is­kerf­inu, ekki síst í fjár­mögnun sem er löngu þekkt. Hins vegar varð­andi afköst spít­al­ans, við erum að kalla folk úr sum­ar­leyfi og við erum með deildir sem eru 150% setnar. Spít­al­inn er rek­inn á langtum lægra verði en sam­bæri­legir spít­alar erlendis þannig ég veit ekki hvað er verið að tala um með afköst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár