Engin rök fyrir takmörkunum ef 97% smitaðra veikjast lítið

Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður seg­ist ekki sjá rök fyrir sam­komu­tak­mörk­unum ef þorri Covid-smit­aðra sýni væg eða engin ein­kenni.

Engin rök fyrir takmörkunum ef 97% smitaðra veikjast lítið
Björn Leví Gunn­ars­son Þing­maður Pírata segir vik­una geta skorið úr um nauð­syn sam­komu­tak­mark­ana. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, gagn­rýnir stefnu­leysi stjórn­valda í sótt­varn­ar­að­gerðum og segir mark­mið þeirra óskýr. Aðal­at­riðið nú sé að lang­flest hinna smit­uðu finni ekki fyrir sterkum ein­kennum.

Fram hefur komið að 97 pró­sent smit­aðra eru með væg eða engin ein­kenni vegna Covid eins og staðan er í dag. Aðeins sextán af rúm­lega sex hund­ruð sjúk­lingum sem sæta eft­ir­liti vegna veirunnar, eru gul­merktir sam­kvæmt lita­kóð­un­ar­kerfi Land­spít­al­ans sem flokkar sjúk­linga eftir alvar­leika ein­kenna. Enginn er rauð­merktur, en 593 græn­merktir.

„Eftir því sem tím­inn líður fáum við skýr­ari mynd af því hvernig þessu fólki reiðir af,“ segir Runólfur Pálsson, yfir­maður Covid-göngu­deildar Land­spít­ala í við­tali við Morg­un­blaðið í dag.

Björn Leví sagði á föstu­dag að þessi vika mundi lík­lega skera úr um hvort þorri sýktra yrði áfram ein­kenna­laus. „Ef þró­unin verður áfram svona, 97 pró­sent með nær engin ein­kenni, þá sé ég ekki rök fyrir tak­mörk­unum,“ skrif­aði hann um málið á Facebook. „Það þyrfti að minnsta kosti ein­hver að útskýra það betur en hefur verið gert hingað til.“

Sé stefnan ein­fald­lega sú að kom­ast að því hvort þessi nýjasta bylgja far­ald­urs­ins reyn­ist alvar­leg, sem sé ekki raunin hingað til, þurfi að taka það skýrt fram. Þannig skorti skýrar sviðs­myndir og lang­tíma­mark­mið tak­markanna.

„Hefur það til dæmis ein­hverja þýð­ingu ef áhrifin reyn­ast ekki alvar­leg á fólk sem er bólu­sett? Hverju myndi það breyta og hvert yrði fram­haldið?“ spyr Björn Leví í sam­tali við Stundina.

„Ef ótt­inn er á hinn bóg­inn að hér þró­ist sér­ís­lenskt afbrigði veirunnar þarf líka að segja það skýrt,“ bætir hann við. „Af því að það er ekki verið að bólu­setja allan heim­inn á sama tíma munu koma upp ný afbrigði sem ferð­ast milli landa. Ef þetta er fram­kvæmdin verða að vera tak­mark­anir út um allan heim og mun þurfa að verða þannig í nokkur ár. Hvenær verður það sagt með skýrum hætti hvort ein­hvers konar tak­mark­anir verði við­var­andi næstu árin?“

Nærri öll dauðsföll meðal óbólusettra

Nær öll dauðs­föll af völdum veirunnar í Banda­ríkj­unum eru meðal óbólu­settra, bendir þing­mað­ur­inn síðan á og vitnar þar í rýni AP-frétta­stof­unnar. Af fleiri en 18.000 dauðs­föllum þar vest­an­hafs í maí voru um 150 hinna látnu bólu­settir, eða rétt tæp­lega eitt pró­sent.

„Þetta sýnir fram á að bólu­efnin er að virka. Spurn­ingin er þá hvað það þýðir í stóra sam­heng­inu varð­andi tak­mark­anir?“ spyr Björn Leví.

Dauðs­föllum hefur farið snar­fækk­andi í Banda­ríkj­unum frá því sem mest var í jan­úar þegar um 3.400 manns lét­ust dag­lega af völdum Covid. Um 53 pró­sent Banda­ríkja­manna eru full­bólu­settir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár