15 ára missti bragð- og lyktarskyn: „Svo kærulaus áður en ég fékk Covid“

Elín Birna Yngva­dóttir, nem­andi í Haga­skóla, von­ast til þess að grímu­skylda verði aftur tekin upp. „Þetta er miklu verra en ég hélt að þetta myndi vera,“ segir hún um eft­ir­köstin af Covid.

15 ára missti bragð- og lyktarskyn: „Svo kærulaus áður en ég fékk Covid“
Elín Birna Yngva­dóttir 15 ára nem­andi í Haga­skóla biður fólk um að gæta að per­sónu­legum sótt­vörnum.

Fimmtán ára nem­andi í Haga­skóla er að eigin sögn búin að vera bragð- og lykt­ar­skyns­laus í sjö mán­uði eftir að hafa smit­ast af kór­ónu­veirunni. Hún varð illa veik miðað við aldur, fann fyrir slapp­leika vikum saman og hefur enn ekki náð sér eftir eft­ir­köst veirunnar.

„Ég man eftir morgn­inum þegar ég fatt­aði að ég væri ekki með bragð­skyn. Ég var búin að vera með hósta í svona þrjá daga, vakn­aði og beit í gul­rót. Ég fann ekki bragð,“ segir Elín Birna Yngva­dóttir, sem hefur hvorki fundið bragð né lykt um sjö mán­aða skeið. „Daginn eftir var bragð­skynið alveg farið.“

Elín Birna var heilsu­hraust áður en hún greind­ist og var slegin þegar hún fann hvað veiran hafði alvar­leg veik­indi í för með sér. „Ég var svo kæru­laus áður en ég fékk Covid. Eftir að ég fékk þetta, vegna þess að ég fór svo illa úr þessu, þá er ég svo stressuð um alla í kringum mig. Þetta var stór lexía.“

„Þetta var stór lexía“

Smitið greind­ist í des­em­ber síð­ast­liðnum og Elín Birna lýsir hósta og slapp­leika dag­ana sem hún var veik­ust. Janúar og febr­úar ein­kennd­ust síðan af þrótt­leysi eftir veik­indin. „Ég gat ekki gert neitt. Ég þurfti að fá far í skól­ann í margar vikur,“ segir hún. Núna sé eina ráðið að bíða og sjá hvað verður. Hún er sann­færð um að hún fái aftur bragð­skyn áður en yfir lýkur. „Ég vona það að minnsta kosti.“

Missti smekk fyrir paprikum og banönum

Þrátt fyrir að bragð­skynið hafi enn ekki náð sér tekur Elín Birna fram að hún finni þó ein­hvers konar bragð af paprikum. Það minni hins vegar helst á myglu. „Ég elskaði paprikur, mér fannst þær ógeðs­lega góðar,“ segir hún. „Svo beit ég í eina. Ég get ekki borðað paprikur núna.“ Svipaða sögu segir hún af bönönum. „Ég get ekki borðað ban­ana út af áferð­inni.“ 

Elín hvetur fólk til að hafa var­ann á, meðal ann­ars á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter þar sem hún greinir frá hremm­ing­unum. „Mér finnst áhuga­vert núna að fylgj­ast með umræð­unni vegna þess að ég er með reynslu af þessu,“ segir Elín Birna og tekur fram að til­hugs­unin um hert­ari sótt­varn­ar­að­gerðir sé hreint ekki svo galin. „Mér finnst hund­rað pró­sent að það ætti að koma aftur grímu­skylda,“ segir hún.

„Passið ykkur ógeðs­lega mikið, sprittið ykkur enda­laust og verið með grímu,“ segir Elín Birna. „Þetta er ekki gaman, þetta er hræði­legt. Þetta er miklu verra en ég hélt að þetta myndi vera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár