Bóluefni fyrir alla Íslendinga kostaði milljarð

Bólefni fyrir alla íslensku þjóð­ina við Covid-19 virð­ist kosta rétt rúman millj­arð króna. Búið er að kaupa bólu­efni fyrir 1,1 millj­arð þegar 80 pró­sent íbúa hafa fengið fulla bólu­setn­ingu. Um tíu pró­sent eiga eftir að fá einn bólu­efna­skammt í við­bót og svo eiga stjórn­völd eftir að skila 40 þús­und skömmtum til Sví­þjóðar og Noregs.

Bóluefni fyrir alla Íslendinga kostaði milljarð
Stunga Hver stunga af bólu­efni við COVID-19 getur kostað allt frá nokkur hund­ruð krónum til rúm­lega þrettán þús­unda. Heild­ar­kostn­aður við kaup á bólu­efnum hefur verið 1,1 millj­arður króna. Mynd: Páll Stefánsson

Íslenska ríkið hefur reitt fram 1,1 millj­arð vegna kaupa á bólu­efnum við Covid-19. Stærstur hluti kostn­að­ar­ins hefur farið í kaup á efnum Pfizer og AstraZeneca. Þetta kemur fram í tölum frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Þó 20 pró­sent bólu­settra hafi fengið bólu­efni lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Janssen er minnstur kostn­aður við kaup á því efni. 

Um helm­ingur skammta þess efnis fékkst að láni frá Svíþjóð. Norðmenn lán­uðu Íslend­ingum svo 16 þús­und skammta af bólu­efni AstraZeneca en sam­tals hafa 112 þús­und slíkir skammtar verið gefnir hér á landi. Ísland á eftir að kaupa skammta í stað­inn fyrir þá til að skila til baka. Ólíklegt er að það verði kostn­að­ar­samt því bólu­efnin tvö eru þau ódýr­ustu sem gefin eru á Íslandi.

Fá skammtinn á klink

Skammt­ur­inn af AstraZeneca er langódýrstur þeirra bólu­efna sem notuð hafa verið á Íslandi. Samkvæmt tölum frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu hefur Ísland keypt AstraZeneca skammta fyrir um 35 millj­ónir króna en 112 þús­und slíkir skammtar hafa verið gefnir. Það þýðir að hver skammtur hefur kostað um það bil 370 krónur. 

Hafa verður í huga að þessir útreikn­ingar byggja á tölum um gefna skammta og heild­ar­kostnað við bólefna­kaup. Ráðu­neytið segir að trún­aður ríki um samn­ing­ana sem gerðir voru við lyfja­fyr­ir­tækin og hafa þeir ekki feng­ist afhentir.

Bóluefni Janssen, sem auð­veld­ara er í allri með­höndlun og krefst eins skammtar en ekki tveggja líkt og hin efnin, hefur verið gefið rúm­lega 50 þús­und sinnum. Kostn­að­ur­inn við kaup á efn­inu nemur þó aðeins 27,5 millj­ónum. Um helm­ingur skammt­anna er ógreiddur, þar sem þeir feng­ust að láni frá Svíþjóð, og má því gera ráð fyrir að kostn­að­ur­inn eigi eftir að um það bil tvö­fald­ast. Að teknu til­liti til þess má finna út að skammt­ur­inn af Janssen hafi kostað rúmar þús­und krónur.

Margfaldur munur á efnum

Á hinum enda skal­ans er bólu­efni Moderna. Það er lang­sam­lega dýrasta bólu­efnið sem notað er á Íslandi. Tæplega 46 pró­sent kostn­aðar við bólu­efna­kaup eru vegna þess efnis, eða sam­tals um 514 millj­ónir króna. 38 þús­und Moderna-skammtar hafa verið gefnir og má því reikna út að hver þess­ara skammta hafi kostað tæpar 13.500 krónur. Gefa þarf tvo skammta af efn­inu til að ein­stak­lingur telj­ist full­bólu­settur og kostar því bólu­setn­ing hvers og eins 27 þús­und krónur. Sam­an­borið við Janssen og AstraZeneca er 26 til 37 sinnum dýr­ara að bólu­setja með Moderna.

Pfizer lendir svo mitt á milli. Skammt­ur­inn þar virð­ist kosta rúmar 2.150 krónur. Tveggja skammta er kraf­ist og full bólu­setn­ing fæst því á 4.300, miðað við útlag­aðan kostnað vegna kaupa á efn­inu og fjölda gef­inna skammta. Samtals hefur íslenska ríkið keypt Pfizer-skammta fyrir 523,6 millj­ónir króna en lang­flestir bólu­settir Íslend­ingar, um það bil 130 þús­und ein­stak­lingar, hafa fengið það efni. 

Kaupum ekki mikið meira

Heim­ildir til kaupa á bólu­efnum við Covid-19 eru að klár­ast. Samþykkt var að verja allt að 1,4 millj­örðum króna til verk­efn­is­ins en nú er búið að eyða 1,1 millj­arði og flestir þeir sem vilja bólu­setn­ingu hafa verið bólu­settir.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sér­fræð­ingum heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins er nú unnið að því að skila skömmtum til Sví­þjóðar og Noregs auk þess sem síð­ustu skipu­lögðu bólu­setn­inga­dag­arnir eru nú að líða. Til skoð­unar er að bjóða börnum allt niður í 12 ára bólu­setn­ingu þegar grunn­skólar hefj­ast að nýju í haust en bólu­efni Pfizer má nota á svo ung börn. Bólu­setn­ing hér á landi hefur hingað til tak­markast við 16 ára og eldri. 

Engu að síður er ekki gert ráð fyrir öðru en að afgangur verði af bólu­efna­kaupa­heim­ild­inni þegar öllu verður aflokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár