Lögmaður Ballarin orðinn eigandi helmingshlutar nýja WOW

Páll Ágúst Ólafsson, lög­maður og tals­maður Michele Ballarin, sem keypti eignir þrota­bús WOW air árið 2019 er orð­inn eig­andi helm­ings hluta­fjár í félag­inu sem stendur að baki hinu nýja WOW. Félagið er sagt hafa sótt um flug­rekstr­ar­leyfi hjá Sam­göngu­stofu.

Lögmaður Ballarin orðinn eigandi helmingshlutar nýja WOW
Páll Ág­úst Ólafs­son og Michele Ball­ar­in. Mynd: legaliceland.com / mbl

Páll Ágúst Ólafsson lög­maður er nú skráður eig­andi af helm­ingi hluta­fjár íslenska félags­ins sem stendur að baki end­ur­reisn WOW Air; félags­ins sem full­yrt er að hafi sótt um flug­rekstr­ar­leyfi til Sam­göngu­stofu. Hann hefur starfað sem lög­maður og tals­maður Michele Lynn Golden-Ballarin, líka kölluð Michele Roosevelt Edwards, sem keypti eignir úr þrota­búi WOW árið 2019. 

Óljóst er hvort hann leppi eign­ar­hald ein­hvers ann­ars; að hann sé ekki hinn raun­veru­legi eig­andi þó hann komi fram sem slíkur gagn­vart almenn­ingi og stjórn­völdum. Í við­tali við Kveik fyrr á árinu sagð­ist Ballarin hafa þann hátt­inn á gagn­vart hlutum sem hún sagð­ist eiga í Icelandair.

Ekki náð­ist í Pál Ágúst, annan aðal­eig­anda hins nýja WOW, í dag. 

Gjald­þrotaWOW air varð gjald­þrota árið 2019 og birt­ist þá Micele Ballarin óvænt og keypti eignir þrota­bús­ins.

Í Frétta­blað­inu í morgun var greint frá …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár