Skáldævisaga Michelangelos „The agony and the ectasy“ eftir Irving Stones heillaði mig mjög. Michelangelo var fæddur í Settignano rétt utan við Flórens. Ég fylgdi honum í huganum ganga til borgarinnar til að nema höggmyndalist móti vilja föður síns. Í kjölfarið skipulagði ég gönguferð í og umhverfis Flórens þar sem gengið var Í fótspor Michelangelos.
Þessi bók gefur einstaklega lifandi mynd af heillandi manneskju og listamanni sem og góða innsýn í endurreisnartímann, uppgang Flórens, Medici-ættina og völd páfanna, svo nokkuð sé nefnt.
Athugasemdir